bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vetrarleikdagur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=19459 |
Page 1 of 7 |
Author: | Porsche-Ísland [ Wed 10. Jan 2007 20:22 ] |
Post subject: | Vetrarleikdagur |
Leikdagur verður haldinn Laugardaginn 13. Janúar. Menn þurfa ekki að eiga eitthverjar ofurgræjur til að skemmta sér. Skiptir engur máli hvort drifið er að framan eða aftan eða allan hringinn, en samt engir jeppar. Góð vetradekk eru nauðsynleg en engir naglar leyfðir. Allir velkomnir. Brautin verður opin frá 10 og fram eftir degi. Fer eftir aðsókn og síðan birtu. Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína. Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna. Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka. Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir. Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskírteini. Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir. Það verður enginn tímatökubúnaður í gangi enda er þetta bara leikur. Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það. Gjald fyrir að aka er 2000 krónur. Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og 2000 krónur í seðlum. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Ég endurtek. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim. Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020. Þáttökuyfirlýsing Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri sem fram fer þ. 13 / 01 / 2007 Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu. Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð. Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón. ______________________________________ Nafn ökumanns ___________________ Kennitala _____________ Bílnúmer ____________ ____________________ GSM númer og e-mail (vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára) Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi. _____________________________________ Nafn forráðamanns _____________________ Kennitala ![]() ![]() |
Author: | bjahja [ Wed 10. Jan 2007 20:29 ] |
Post subject: | |
SNILLD ég kem og horfi á ![]() |
Author: | moog [ Wed 10. Jan 2007 20:36 ] |
Post subject: | |
Skyldumæting fyri iX eigendur ![]() |
Author: | Stanky [ Wed 10. Jan 2007 20:40 ] |
Post subject: | |
myndi taka þátt ef eg væri ekki á nagladekkjum! |
Author: | arnibjorn [ Wed 10. Jan 2007 20:41 ] |
Post subject: | |
Djöfull langar mig að koma og taka þátt!! ![]() |
Author: | F2 [ Wed 10. Jan 2007 20:42 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: Djöfull langar mig að koma og taka þátt!!
![]() Og er þá ekki málið að hætta að væla og mæta á ix ![]() ![]() |
Author: | arnibjorn [ Wed 10. Jan 2007 20:44 ] |
Post subject: | |
F2 wrote: arnibjorn wrote: Djöfull langar mig að koma og taka þátt!! ![]() Og er þá ekki málið að hætta að væla og mæta á ix ![]() ![]() Hef ekki náð að fara með eigandaskiptin og þar af leiðandi er ég ekki orðinn tryggður fyrir bílnum og þar af leiðandi ætti það að vera erfitt að fá tryggingarviðauka.. ![]() Nemi ég geti reddað þessu öllu á 2 dögum! ![]() |
Author: | ömmudriver [ Wed 10. Jan 2007 21:00 ] |
Post subject: | |
Damn it ![]() ![]() |
Author: | Arnarf [ Wed 10. Jan 2007 21:02 ] |
Post subject: | |
Snilld, Myndi koma ef minn væri iX Annars bíð ég bara rólegur eftir sumarinu |
Author: | ValliFudd [ Wed 10. Jan 2007 21:23 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ÆTLAR ENGINN AÐ MÆTA???? Verð ég ein á brautinni? ![]() |
Author: | ömmudriver [ Wed 10. Jan 2007 21:26 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: :shock:
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ÆTLAR ENGINN AÐ MÆTA???? Verð ég ein á brautinni? ![]() Já, I guess so ![]() ![]() |
Author: | Steinieini [ Wed 10. Jan 2007 21:27 ] |
Post subject: | |
telst X5 jeppi ![]() |
Author: | ömmudriver [ Wed 10. Jan 2007 21:27 ] |
Post subject: | |
Hehe ![]() ![]() |
Author: | ValliFudd [ Wed 10. Jan 2007 21:28 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: ValliFudd wrote: :shock: ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ÆTLAR ENGINN AÐ MÆTA???? Verð ég ein á brautinni? ![]() Já, I guess so ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | arnibjorn [ Wed 10. Jan 2007 21:30 ] |
Post subject: | |
Ég ætla að gera mitt besta að mæta! Þráiiii að vetrarleikdag og er búinn að vera bíða eftir þessu ![]() |
Page 1 of 7 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |