bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 30. May 2025 06:49

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 22 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: BRM V16
PostPosted: Wed 27. Dec 2006 00:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
BRM V16. British Racing Motors

Þeir sem til þekkja og hafa fylgst með Formúlu 1 frá miðri síðustu öld ásamt því að drekka í sig fróðleik um allt sem tengist þessum þekkta og líklega frægasta kappakstri fyrr og síðar, hljóta að hafa heyrt um kappakstursframleiðanda er hét BRM.
Þetta ágæta fyrirtæki varð sérstaklega þekkt fyrir einn bíl ........og það er BRM V16.
Er þróun bílsins lauk um mitt árið 1955 var vélin að skila 600 hö. @ 12.000 rpm.
Samkvæmt þeim heimildum er ég (( og aðrir)) hef aflað mér er þetta mesta afl er stimpilvél miðað við rúmmál framleiddi og stóð óhaggað í 30 ár. Þetta magnaða met varð ekki brotið fyrr en um níunda áratugin er þáverandi Formúla 1 vélar náðu yfir 1100 hö @ 1.5 L
Stærsti Akkilesarhæll þessa magnaða bíls var óáræðanleiki mótorsins.
Vélin var V 16 1490 cc Supercharged með 4 yfirliggjandi knastásum.
Gráðan á V formi vélar er 135° og þykir lengdin vera gríðarleg miðað við sprengirými og umfang. Pústgreinin var allsérstök.. eða 16 einstök rör ,, tólf þumlungar að lengd
og hljóðið sem fór um þessi rör þykir að margra mati ,,,,,,,ALFLOTTASTA vélarhljóð nokkurn tíman sem komið hefur úr sprengihreyfli.Að mati allmargra er hafa hrærst í mótorsporti er þetta það vélarhljóð er kemur upp í huga þeirra ef á að velja það vélarhljóð er þykir skara framúr á einhvern máta. Með ólíkindum þykir hve mikla gleði og ánægju þetta einstaka vélarhljóð getur fært mönnum. þrumur Þórs eða Herbert von karajan með sína sveit að baki fá hreinlega ..njálg.. við að hlusta á BRM V16 í álagi. Er ansi magnað að heyra er stimplarnir örsmáu vakna til lífsins einn af öðrum og ,,ÖSKRA,, að lokum, nóg um það. Á þessum tíma voru vélar að snúast í kappakstursgræjum til ca. 6000 rpm +/- þannig að 12000 var 100% aukning í snúningi miðað við aðra framleiðendur. Mótorinn var ,,brauðfæddur með Rolls-Royce keflablásara er var þróaður uppúr þeirri reynslu er fékkst við hina frægu MERLIN flugvélavél er var notuð í Supermarine Spitfire Englendinga og Mustang vélum Bandarikjamanna í annari heimstyrjöldinni, snúningur blásarans var miðaður við ca. 40.000 rpm/min.
Vélin gekk á methanoli, Átti þessi eldfimi vökvi stundum til að frjósa í blöndungnum sem gerði ökumönnum vægast sagt erfitt fyrir, eins og vandamálin voru ekki nóg fyrir. Það þótti einnig löstur þessa mikilfengnu vélar að við 6000 rpm þá virkilega vaknaði hún til lífsins.Aflið jókst svo mikið við aukin snúning vélarinnar að við hverja 2000 rpm aukningu þá tvöfaldaðist aflið, reykspól og grip voru slíkt vandamál að menn þurftu að vera framúrskarandi snjallir ökumenn til að ná þeirri hröðun er bíllinn bauð upp á, stundum drap bíllinn á sér eins og hefði verið skorið á allt, en með smá eftirgjöf á bensínfetlinum vöknuðu allir 16 stimplarnir til lífsins með slíkum látum að allt umhverfið hvarf í reyk, dekkin sem voru ca. 25 cm breið áttu ekki nokkurn möguleika að beisla slíku afli í malbik móður jarðar, bíllin þótti svo leiðinlega .........tricky.. að jafnvel snillingar eins og ,,,,Sir Stirling Moss og sjálfur Juan Manuel Fangio gáfu frat í bílinn, en gáfu afar jákvæð ummæli um alla tæknilegu hönnunn bílsins , óáræðinleikin var það sem knésetti þennan magnaða mótor.Til gamans má geta að stærð stimpla í þessari vél er sambærileg og í sláttuorfi nútíma garðyrkjumanna.
Þessi stórkostlegi bíll var á sínum tíma algert tækniundir í Formúlu 1,
ALLIR hlutir,, gjörsamlega með tölu eru renndir úr hágæða tæringarfríu stáli og er hreint með ólíkindum að slíkt skuli hafa átt sér stað nær fjórum áratugum áður en cnc tölvu og fræsibekkir fóru að ryðjasér til rúms.
Diskabremsur voru á öllum 4 hjólum,, Gormar einnig og það besta af öllu GAS demparar,
Lokahnykkurinn í þessu tækniundri er svo gírkassinn. Engin átök eða neitt þessu þurfti til að skipta milli gíra ,,heldur rann skiptistöngin ,,slíkt mjúklega milli gíra að menn höfðu í flimptingum að Adam og Eva gætu ekki gert betur,
Eins og áður er nefnt var áræðinleiki vélarinnar það sem felldi þessa stórkostlega kappakstursgræju ,, um það bil 350 aðilar og ,,skaffendur komu við sögu bílsins og má geta þess til að á þeim tíma eða i kring um 1950 voru fjarskipti ,,ekki á sömu viðmiðunarnótum og tíðkast í dag, gallar osfrv, tóku margfalt lengri tíma að kljúfa til mergjar, ásamt að fjárflæði til kappaksturs var brotabrot miðað við það sem gerist í dag,
Einnig skal þess getið hvað hönnuðurnir lögðu hreint fásinnu metnað í að létta hina og þessa hluti ,, t.d. að hafa burðarvirki með ..götum.. allt HÁRNÁKVÆMT reiknað út af verkfræðilegri kunnáttu til að viðhalda styrk ,, en eins létt og mögulegt var,
Eitt ber einnig að nefna .
Kveikjukerfi þessa sextán cýlindra mótors var ekki að skila tilætluðum árangri,, enda voru bifvélavirkjarnir í endalausum vandræðum við að koma bílnum í gang ,,aftur og aftur ,, þurfti að taka ÖLL kertin úr ,hreinsa og prófa.
Að lokum er hægt að segja að BRM V16 er goðsögn í lifanda lífi
Vonlaus bíl með svo mikið af nútímalegum lausnum að telja mætti að um Leonardo da Vinci sins tíma væri að ræða en engin hefði skynbragð til að ná heildarsýn yfir hið mikla vandamál sem hrjáði bílinn frá grunni
........ Óáræðinleiki............
Eins frægasta F1 mótor samtímans.

((undirritaður hefur séð viðtalsþætti við þekkta safnara í Englandi er sérhæfa sig í Grand-Prix bílum og þekktum kappakstursbílum , og er það ansi oft sem samdóma álit þeirra er að BRM V 16 er sá bíll sem stendur uppúr flórunni ,, og er það líklega vélarhljóðið ásamt þeim tækninýjungum þess tíma sem heillar menn))


Sveinbjörn Hrafnsson

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Last edited by Alpina on Sat 13. Oct 2007 08:36, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 27. Dec 2006 00:59 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Frábær, fræðandi lesning og heillandi saga :clap:

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 27. Dec 2006 01:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
ömmudriver wrote:
Frábær, fræðandi lesning og heillandi saga :clap:


úúú kærar þakkir :wink:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 27. Dec 2006 04:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Þegar menn með athyglisbrest byrja lestur og hætta ekki fyrr en texta lýkur, er um mikið afrek að ræða.

Takk fyrir þetta Sveinbjörn, sérdeilis prýðileg afþreying og fræðandi.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 27. Dec 2006 07:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Kristjan wrote:
Þegar menn með athyglisbrest byrja lestur og hætta ekki fyrr en texta lýkur, er um mikið afrek að ræða.

Takk fyrir þetta Sveinbjörn, sérdeilis prýðileg afþreying og fræðandi.



Lagði ekki í að lesa þetta..

Get ekki lesið eitthvað lengra en þessi póstur minn :oops:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 27. Dec 2006 10:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Stend við það sem ég skrifaði annars staðar :wink:

Einkar fræðandi pistill og að sama skapi skemmtilegur, hér er smá brókarslys:


_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 28. Dec 2006 01:29 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 13. Dec 2006 19:05
Posts: 133
ég er nokkuð viss að ekkert bílahljóð muni komast í tæri við þetta , allavegna ekki strax , þetta er :o

_________________
BMW 730I V8 E32


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 28. Dec 2006 08:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
zazou wrote:
Stend við það sem ég skrifaði annars staðar :wink:

Einkar fræðandi pistill og að sama skapi skemmtilegur, hér er smá brókarslys:




Eins og heyrist glögglega í hljóðklippuni sem Brynjar skellti inn

hvar mótorinn ,,stallar,, á köflum, eða eins og kom fram í áðurnefndri grein, hvar metanólið eða kveikjan svíkur, en vaknar svo snögglega til lífsins

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 02. Jan 2007 13:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
trukkið inn á vélina ,,,var AÐEINS 5.7 bar

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 02. Jan 2007 13:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55
Posts: 5729
Hressandi pistill og hljóðbúturinn er :shock: :-({|= :-({|= :-({|= :burnout:

_________________
Haffi W. Schnurrenberger.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Oct 2007 08:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Fann

góða klippu


_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Oct 2007 08:49 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Gæti verið að þessi klippa sé frá bókinni Into the Red en það fylgdi einmitt diskur með henni. Þar er skrifað um bílana hans Nick Masons sem er náttúrulega algjör töffari 8)

Þetta hljóð er svo ómennskt að það er fyndið :lol: Þetta hljómar eins og ragnarök!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Oct 2007 09:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
er með fyrri hljóðfælinn á desktoppinu hjá mér, hlustaði síðast í gær :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Oct 2007 11:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Kennarinn minn var að fara yfir þessa vél með okkur.

Alpina verður ekki ánægður með þetta.


Þessi vél er mestu mistök EVER.
Hún var svo mörg þúsund sinnum dýrari í þróun heldur enn F1 vélar
á sama tíma að kostnaður vs. árangur á sér engann líkan í sögu mótorsports.
Þessi vél vann tvo sigra 1950 og aldrei aftur í þau ár sem hún var notuð.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Oct 2007 11:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
gstuning wrote:
Kennarinn minn var að fara yfir þessa vél með okkur.

Alpina verður ekki ánægður með þetta.


Þessi vél er mestu mistök EVER.
Hún var svo mörg þúsund sinnum dýrari í þróun heldur enn F1 vélar
á sama tíma að kostnaður vs. árangur á sér engann líkan í sögu mótorsports.
Þessi vél vann tvo sigra 1950 og aldrei aftur í þau ár sem hún var notuð.


Mistök eða ekki mistök þá hlýtur öllum petrolheads að vera sama um það hvað hlutirnir kostuðu. Að mönnum skuli detta svona vitleysa í hug, framleiða svona flókinn mótor sem soundar svona rosalega.. það er maður bara þakklátur fyrir.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 22 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group