Já hæ.
Fyrir áhugasama þá var dúddi á Discovery að kaupa sér BMW E30 325i Touring á uppboði og er að láta laga hitt og þetta og koma honum í stand.
S.s. þáttur í gangi núna á Discovery.
edit: Þátturinn heitir Wheeler Dealers og .... æji veit ekki. Þeir halda samt áfram með hann í næsta þætti.
Tók samt eftir dáldið áhugaverðu. Þeir keyptu hvarfakút á 94 pund... stykki sem mig minnir að kosti 220 þús í B&L þegar ég hringdi einhverntíman. Ekki það að við þurfum þannig.
Töff bíll samt, þeir keyptu nýtt húdd og sprautuðu, ætla að laga plast lista, kúplingu, skiptu um loftsíuboxið fyrir kraftsíu og svo er kúplingin slöpp + pústkerfið.
Þeir borguðu 950 pund fyrir bílinn (sem er með ljósu leðri) á uppboði og eyddu í hann um 600 pundum (paint job á húddi 275 pund, loftsíufixið um 80 pund, púst kerfið (aftasti + hvarfi) á 210 pund) og eitthvað annað smástöff.
Fyndið samt að þeir voru ekkert með á hreinu nákvæmlega árgerðina og sögðu ekki hvað hann var keyrður en gaurinn sagði hvað eftir annað að þetta væri ein besta vélin sem BMW hefði hannað.
Held þeir ætli svo að selja hann þegar þeir eru búnir.
Hann keypti btw. ekki frá BMW dealer heldur aftermarket fyrirtæki.
Kom mér svo á óvart að það var BMW E30 325i í "uppgerð" í sjónvarpnu að ég held ég hafi ekki haft svona mikla athygli yfir öll prófin
