bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 25. May 2025 22:33

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 14:19 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18
Posts: 657
Ég var stoppaður á mínum í gær og ég sagði bróður minum frá því og hann sendi mér þennan póst :lol:

Nú verða sagða BMW fréttir

"Óttuðust aðgerðir þeirra sem stóðu að fíkniefnainnflutningi í BMW-bifreið"

Aðalmeðferð í máli fimm manna sem eru ákærðir í tengslum við smygl á miklu magni af amfetamíni og hassi í BMW-bifreið í Sundahöfn um síðustu páska hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Skýrslutöku er lokið yfir tveimur mannanna og segir annar þeirra að hann hafi ekki vitað um fyrirhugaðan innflutning á fíkniefnunum fyrr en hann var kominn út til Belgíu til að skoða BMW-bifreiðina vegna innflutnings á henni. Hinn maðurinn sagði við skýrslutöku í morgun að það væru menn í Hollandi og Belgíu sem hafi staðið á bak við smyglið.

Maðurinn sem var sendur út til að skoða bílinn í Belgíu sagði í morgun að hann hafi ekki vitað að það ætti að flytja fíkniefni í bifreiðinni fyrr en hann hafi verið búinn að ljúka erindum sínum varðandi skoðun á bílnum. Hann fékk upplýsingar um að það ættu að vera fíkniefni í bílnum kvöldið áður en hann fór sjálfur heim til Íslands með flugi. Hann sagðist hafa verið hræddur við að segja lögreglu frá því af ótta við mennina sem fengu hann til þess að fara til Belgíu. Maðurinn skrifaði undir afsal á bifreiðinni í Belgíu og sagði í skýrslutöku að hann hafi verið hræddur í þessum fíkniefnaheimi. Hann tók það fram að hann hefði ekki flutt bifreiðina til landsins ef hann hefði vitað að það væru fíkniefni í henni. Þegar hann hafi áttað sig á því þá hafi hann ekki þorað að segja frá því.

Hinn maðurinn sem kom fyrir dóm í morgun sagði að það væru menn í Hollandi og Belgíu sem höfðu skipulagt innflutninginn en hann vildi ekki greina frá nöfnum þeirra þar sem hann óttaðist aðgerðir gegn sér og fjölskyldu sinni. Hann margítrekaði undir yfirheyrslum í dag að það væri of hættulegt fyrir hann að greina frá þætti annarra í þessu máli af sömu ástæðu en hans hlutverk var að koma til Íslands og taka fíkniefnin úr bifreiðinni. Þetta var hann að gera þegar hann var handtekinn ásamt fleirum um síðustu páska.

Aðalmeðferð málsins stendur enn yfir og verða teknar skýrslur af hinum þremur sem einnig eru ákærðir í málinu í dag.

"Ökufantur handtekinn"

Lögreglan í Keflavík handtók í morgun ökumanninn sem mældist aka á 201 km hraða eftir Reykjanesbrautinni í nótt. Ökumaðurinn náði að stinga lögregluna af en hún náði hinsvegar bílnúmerinu og hafði hún uppi á ökumanninum er hann var mættur til vinnu í morgun. Maðurinn er núna í yfirheyrslu en ökutækið, svört BMW-bifreið, er ófundin.

Ertu svo hissa á því að vera stoppaður á BMW :lol: :lol: :lol:

_________________
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 14:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
bara með að taka svona hálft ár aftur í tímann af fréttum sem eru stílaðar beint á BMW, gætirðu sprengt plássið sem hýsir spjallið okkar :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 14:35 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Posts: 1498
Location: Hrollkalda Ísland
Virðist mikið loða við bimmana að það þurfi að taka fram á kvaða apparati brotið var framið, hvort sem það er innflutningur efna eða hraðakstur. Þetta sést ekki með aðrar tegundir. :? :?

_________________
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 15:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
þetta er allt E32 að kenna 8) voru fluttir inn í massavís fullir af lyftidufti, svo keyrðu gæjanir því út á þessum líka eðal bifreiðum, og orðsporið fast við þá

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 15:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
íbbi_ wrote:
þetta er allt E32 að kenna 8) voru fluttir inn í massavís fullir af lyftidufti, svo keyrðu gæjanir því út á þessum líka eðal bifreiðum, og orðsporið fast við þá

það sem mér finnst allra fyndnast er að þessir bjánar eru ENN að reyna að smygla inn dópi í kolsvörtum shadowline bmw :lol:

Og skilja líklega ekki af hverju í ósköpunum tollararnir föttuðu þetta :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 15:23 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Posts: 424
Location: Oslo
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=687924
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=687693
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=548888
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=536547
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=531800
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=477378
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=357286
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=353786
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.ht ... _id=218923

Alltaf er minnst á BMW :lol:

_________________
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 15:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég man eftir nokkrum af þessum málum,

"sportbifreiðin" er 318is bíll, sem Sezar átti og varð svo fazmó mobile og lifir núna í rauða bílnum sem umræðurnar voru um um daginn,

bíllin sem stútaði öllumn hinum bílunum var 735i E32, rann til í hálku endaði inn á bílastæði og fór ansi illa með japönsku vísitölubílana sem voru á stæðinu, félagi minn reif bílin

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 16:53 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Spurning hvort þetta eigi eingöngu við um að BMW séu "nafngreindir" í blöðunum. Ég veit vel að þetta á ekki við um Toyota, VW eða Mazda. En ég held þetta eigi jafnvel við dýrari tegundir, líkt og BMW, Lexus, Benz og eitthvað slíkt.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 16:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Jói wrote:
Spurning hvort þetta eigi eingöngu við um að BMW séu "nafngreindir" í blöðunum. Ég veit vel að þetta á ekki við um Toyota, VW eða Mazda. En ég held þetta eigi jafnvel við dýrari tegundir, líkt og BMW, Lexus, Benz og eitthvað slíkt.

oftast sagt "sportbíll" eða eitthvað í þá áttina þegar það er camaro og eitthvað svoleiðis dótarí :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 17:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
ValliFudd wrote:
Jói wrote:
Spurning hvort þetta eigi eingöngu við um að BMW séu "nafngreindir" í blöðunum. Ég veit vel að þetta á ekki við um Toyota, VW eða Mazda. En ég held þetta eigi jafnvel við dýrari tegundir, líkt og BMW, Lexus, Benz og eitthvað slíkt.

oftast sagt "sportbíll" eða eitthvað í þá áttina þegar það er camaro og eitthvað svoleiðis dótarí :)


eða Honda Civic :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 18:21 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 26. Feb 2004 11:19
Posts: 354
Location: Skagaströnd
íbbi_ wrote:
ég man eftir nokkrum af þessum málum,

bíllin sem stútaði öllumn hinum bílunum var 735i E32, rann til í hálku endaði inn á bílastæði og fór ansi illa með japönsku vísitölubílana sem voru á stæðinu, félagi minn reif bílin


Getur verið að þetta hafi verið bíll sem ég átti.

Svartur, beinskiptur 730 reyndar. Númerið á honum var ST 363.

_________________
Þetta er bara blær, blíður og vær.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 19:06 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
_Halli_ wrote:


Þetta er frábær samantekt! Segir ansi mikið finnst mér.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 19:23 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 13. Sep 2005 13:41
Posts: 354
sjáiði fyrir ykkur.. frétt á borð við þessa

Lögreglan gerði tilraun tilað stoppa ökuníðing á 234kmh á reykjanesbraut kl 3 í nótt ökumaðurinn var handtekin þegar leið að morgni.. Blá skoda bifreið enn ó fundinn


eða

maður reyndi að flytja inn 3kg af amfetamíni i sætisbaki á polo bifreið fyrr í mánuðinum... and on and on..

það verður alltaf tekið framm ef það er Bmw þetta heitir einelti i garð bmw eiganda..

þetta á upptökin þegar stóra fíkniefnamálið kom i ljós áttu allir sem þar að komu stóran bmw

og á sama tima vastu ekki díler nema eiga bmw

þannig að humm afhverju er þetta orð á bmw? i guess? :lol:

_________________
[ARNARF]


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 19:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
Jonni s wrote:
íbbi_ wrote:
ég man eftir nokkrum af þessum málum,

bíllin sem stútaði öllumn hinum bílunum var 735i E32, rann til í hálku endaði inn á bílastæði og fór ansi illa með japönsku vísitölubílana sem voru á stæðinu, félagi minn reif bílin


Getur verið að þetta hafi verið bíll sem ég átti.

Svartur, beinskiptur 730 reyndar. Númerið á honum var ST 363.


þetta var 735

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Nov 2006 19:46 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
En hvernig í ósköpunum dettur fólki í hug að nota BMW til að flytja inn fíkniefni? Held að það sé ekkert til að bæta líkurnar að komast í gegnum tollinn.


Annars hef ég einu sinni verið stoppaður í check, það var í Janúar á þessu ári.
Fyrir utan það hef ég aldrei verið stoppaður á bílnum mínum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group