bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Enn kemur BMW við sögu í blöðunum https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=18738 |
Page 1 of 9 |
Author: | jens [ Thu 30. Nov 2006 07:33 ] |
Post subject: | Enn kemur BMW við sögu í blöðunum |
Quote: Innlent | mbl.is | 30.11.2006 | 07:04
Mældist á 201 km hraða á Reykjanesbrautinni Lögreglan í Keflavík mældi, rétt fyrir klukkan þrjú í nótt, svarta BMW bifreið á 201 km hraða á Reykjanesbraut við enda tvöföldunarinnar vestan megin en hámarkhraði þar er 90 km. Bifreiðinni var ekið í vesturátt og gáfu lögreglumenn ökumanninum merki, með bláum aðvörunarljósum lögreglubifreiðarinnar, um að stöðva. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu heldur hélt áfram á ofsahraða. Lögreglumenn hófu eftirför en hættu henni nokkru síðar þar sem þeir misstu sjónar af bifreiðinni. Lögreglu bárust nokkrar vísbendingar um bifreiðina og er unnið að rannsókn málsins. |
Author: | arnibjorn [ Thu 30. Nov 2006 07:41 ] |
Post subject: | |
Var Angelico ekki að fá bílinn sinn aftur? ![]() Djók ![]() |
Author: | Schulii [ Thu 30. Nov 2006 08:00 ] |
Post subject: | |
Djöfulsins hálfvitar undir stýri ![]() |
Author: | Schulii [ Thu 30. Nov 2006 08:30 ] |
Post subject: | |
En annars er þetta óþolandi hvað það virðist vera þetta trend að tilgreina bíltegundina þegar BMW kemur við sögu. Ég fékk nóg núna um daginn þegar einhver unglingsstrákur keyrði næstum niður lögreglumann þegar hann var að flýja af bílaplani. Þá hringdi ég á fréttastofu Rásar 2 og talaði við fréttakonu þar. Þá var ennþá í fersku minni þegar talsvert magn af fíkniefnum höfðu náðst eftir að reynt hafi verið að flytja þau inn í bensíntanki á BMW og það að sjálfsögðu alltaf tekið fram. En ég talaði sérstaklega um þetta dæmi við hana sem hafði verið í fréttum þann daginn. Þar var sagt að "ökumaðurinn hafi verið á kraftmikilli BMW-bifreið" þegar hann var nálægt því að aka niður lögreglumanninn. Ég spurði konuna hvort að, hefði hann verið á Toyotu, að þá hefði verið sagt "ökumaðurinn var á afl-lítilli Toyota bifreið"? Hún hló að þessu og sagðist skilja hvað ég ætti við. Ég bætti því við að ég væri í BMW-bílaklúbb sem væri mjög stór klúbbur og þar væru margir orðnir þreyttir á þessari tegunda tilgreiningu í fréttaflutningi. Þetta hefði án efa áhrif á ímynd bíltegundarinnar fyrir utan að það væri óskiljanlegt að þegar þessi bíltegund væri notuð í atvikum sem þessum væri það mjög oft tekið fram en aldrei annars. Hún þakkaði bara fyrir ábendinguna. |
Author: | gstuning [ Thu 30. Nov 2006 09:12 ] |
Post subject: | |
Schulii wrote: En annars er þetta óþolandi hvað það virðist vera þetta trend að tilgreina bíltegundina þegar BMW kemur við sögu. Ég fékk nóg núna um daginn þegar einhver unglingsstrákur keyrði næstum niður lögreglumann þegar hann var að flýja af bílaplani. Þá hringdi ég á fréttastofu Rásar 2 og talaði við fréttakonu þar. Þá var ennþá í fersku minni þegar talsvert magn af fíkniefnum höfðu náðst eftir að reynt hafi verið að flytja þau inn í bensíntanki á BMW og það að sjálfsögðu alltaf tekið fram. En ég talaði sérstaklega um þetta dæmi við hana sem hafði verið í fréttum þann daginn. Þar var sagt að "ökumaðurinn hafi verið á kraftmikilli BMW-bifreið" þegar hann var nálægt því að aka niður lögreglumanninn. Ég spurði konuna hvort að, hefði hann verið á Toyotu, að þá hefði verið sagt "ökumaðurinn var á afl-lítilli Toyota bifreið"? Hún hló að þessu og sagðist skilja hvað ég ætti við. Ég bætti því við að ég væri í BMW-bílaklúbb sem væri mjög stór klúbbur og þar væru margir orðnir þreyttir á þessari tegunda tilgreiningu í fréttaflutningi. Þetta hefði án efa áhrif á ímynd bíltegundarinnar fyrir utan að það væri óskiljanlegt að þegar þessi bíltegund væri notuð í atvikum sem þessum væri það mjög oft tekið fram en aldrei annars.
Hún þakkaði bara fyrir ábendinguna. hefðir ekki átt að segja henni frá klúbbnum , L2C er alltaf í fréttunum orðið, það er stundum betra að vera bara í skugganum |
Author: | Logi [ Thu 30. Nov 2006 09:54 ] |
Post subject: | |
Það er nú alltaf tekið fram á hvernig bíl menn eru sem stinga lögguna af, enda er það bara alveg sjálfsagt finnst mér. Þá eru meiri líkur á því að vísbendingar berist... Þannig að þetta á rétt á sér í þessu tilviki að mínu mati! |
Author: | RamLing [ Thu 30. Nov 2006 10:15 ] |
Post subject: | |
EKKI Ég, var sofandi í nótt :p !! |
Author: | snorri320 [ Thu 30. Nov 2006 11:03 ] |
Post subject: | |
sammála Loga, þar sem það er eftirför og verið að leita að bílnum er allt í lagi að tilgreina tegundina, sennilega bara "óheppilegt" að það sé BMW í þessu tilviki ![]() |
Author: | IceDev [ Thu 30. Nov 2006 11:07 ] |
Post subject: | |
Kæmi mér allavega óvart ef að þetta væri toyota yaris á 201 ![]() |
Author: | Lindemann [ Thu 30. Nov 2006 11:09 ] |
Post subject: | |
það eru nú ansi margir svartir BMW'ar á suðurnesjum, og þessvegna gæti þetta verið dökkblár bíll þar sem munurinn sést ekki svo auðveldlega í myrkrinu. Svo var ekkert tekið fram hvernig bíll þetta var, lítill-stór, gamall-nýr. Það er alveg eins hægt að segja grá toyota í fréttinni eins og svartur BMW því ekki finnst bíllinn útfrá þessum upplýsingum. Það er slæmt ef þessar upplýsingar eiga að hjálpa til við leitina að bílnum því þá verða svartir BMW'ar lagðir í einelti. ![]() |
Author: | bimmer [ Thu 30. Nov 2006 11:11 ] |
Post subject: | |
Af gefnu tilefni....... minn er á verkstæði þannig að þetta var ekki ég.... |
Author: | Kull [ Thu 30. Nov 2006 11:32 ] |
Post subject: | |
Menn ættu kannski að reyna spurjast fyrir hjá moggamönnum hvaða bíltegundir komu við sögu í þessari frétt: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/fr ... id=1238400 |
Author: | ///MR HUNG [ Thu 30. Nov 2006 11:34 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: það eru nú ansi margir svartir BMW'ar á suðurnesjum, og þessvegna gæti þetta verið dökkblár bíll þar sem munurinn sést ekki svo auðveldlega í myrkrinu. Tjahh..Þegar ég lenti í hasarnum í sumar þá átti ég að eiga svartan bmw og á krómfelgum og einkanúmerið seeyaa eða eitthvað svoleiðis Svo var ekkert tekið fram hvernig bíll þetta var, lítill-stór, gamall-nýr. Það er alveg eins hægt að segja grá toyota í fréttinni eins og svartur BMW því ekki finnst bíllinn útfrá þessum upplýsingum. Það er slæmt ef þessar upplýsingar eiga að hjálpa til við leitina að bílnum því þá verða svartir BMW'ar lagðir í einelti. ![]() ![]() |
Author: | ///MR HUNG [ Thu 30. Nov 2006 11:42 ] |
Post subject: | |
Þessi bjáni tók fram úr mér um miðnætti og beint í fangið á löggumann sem var í felum ![]() Quote: Þá stöðvaði lögreglan í Hafnarfirði bíl eftir að hann mældist á 117 kílómetra hraða, eða rösklega tvöföldum hámarkshraða, á Reykjanesbraut á móts við IKEA í gærkvöldi.
|
Author: | ValliFudd [ Thu 30. Nov 2006 11:43 ] |
Post subject: | |
Kull wrote: Menn ættu kannski að reyna spurjast fyrir hjá moggamönnum hvaða bíltegundir komu við sögu í þessari frétt: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/fr ... id=1238400
nákvæmlega ![]() ![]() Svo er annað, ég var stoppaður um daginn.. Ég gef vel í á ljósum en upp að rétt rúmlega hámarkshraða.. Og það fór eitthvað í lögreglumann að hafa ekki geta náð mér strax.. Ég var ekkert að gera af mér þannig séð, bara fór í hann að vera á aumum Hyundai eða eitthvað. En allavega þá án þess að vita nokkurn skapaðan hlut um minn bíl, ekkert badge, einfalt púst o.s.frv.. þá sagði hann mér að passa mig þar sem ég væri á "mjög öflugum bíl". Nokkuð örugglega BARA af því að hann heitir BMW ![]() En ég er mjög sáttur við að eiga rauðan BMW... ekkert vesen frá lögreglunni nema þegar ég er að gera eitthvað af mér ![]() |
Page 1 of 9 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |