bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hvað ætli ég fái fyrir hann??
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1870
Page 1 of 1

Author:  Schulii [ Thu 03. Jul 2003 00:15 ]
Post subject:  Hvað ætli ég fái fyrir hann??

Voðalega eru menn orðnir eitthvað latir að skrifa hérna núorðið!!

Ég hef verið að spá í hvað ég fengi fyrir bílinn minn ef ég myndi selja hann. Eins og þið kannski vitið þá er þetta 325ix '88. Hann var fluttur inn frá Ítalíu 1990 og hann er keyrður 238.000km. Hann var sprautaður núna í febrúar og lítur mjög vel út. Hins vegar er bílstjórasætið rifið, er að koma tími á dempara og að skipta um bremsuklossa. Það er mjög gott að keyra bílinn og hann er mjög þéttur og góður miðað við aldur og fyrri störf en ég hef bara verið að hugsa um að fá mér dýrari bíl.. er samt hræddur um að ég eigi eftir að sjá eftir þessum.. geggjað að vera á honum í snjó.

Author:  GHR [ Thu 03. Jul 2003 00:23 ]
Post subject: 

Þú getur t.d fengið Toyota Corolla GTI '88, líka nýsprautaða og ekna 142þús og meira segja með 04 skoðun :wink: :lol:

Author:  Schulii [ Thu 03. Jul 2003 00:40 ]
Post subject: 

laglegt 750 :) ..en því miður þá kemur ekkert annað til greina en BMW hjá mér. Það talaði einn gaur við mig fyrir hálfum mánuði sem átti þennan bíl fyrir löngu og hann hann hafði mikinn áhuga á að kaupann aftur.. það var ekki planið hjá mér að seljann, þá hefði ég ekki látið sprautann. En málið er að mig langar rosalega í M5 eða einhvern nýrri bíl en minn sem er aflmikill og snyrtilegur... varð hrikalega ástfanginn af 323ci '98 bílnum gráa sem er til sölu á bílasölunni í skógarhlíð.. en han er kannski bara aðeins of dýr (2.050.000) :D :D

Author:  GHR [ Thu 03. Jul 2003 00:48 ]
Post subject: 

mátti alltaf reyna :wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/