Voðalega eru menn orðnir eitthvað latir að skrifa hérna núorðið!!
Ég hef verið að spá í hvað ég fengi fyrir bílinn minn ef ég myndi selja hann. Eins og þið kannski vitið þá er þetta 325ix '88. Hann var fluttur inn frá Ítalíu 1990 og hann er keyrður 238.000km. Hann var sprautaður núna í febrúar og lítur mjög vel út. Hins vegar er bílstjórasætið rifið, er að koma tími á dempara og að skipta um bremsuklossa. Það er mjög gott að keyra bílinn og hann er mjög þéttur og góður miðað við aldur og fyrri störf en ég hef bara verið að hugsa um að fá mér dýrari bíl.. er samt hræddur um að ég eigi eftir að sjá eftir þessum.. geggjað að vera á honum í snjó.
