bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
innflutningur á BMW https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=18089 |
Page 1 of 2 |
Author: | skaripuki [ Tue 24. Oct 2006 22:17 ] |
Post subject: | innflutningur á BMW |
ja sælir kraftsmenn ég var að spá því að nú fer að koma að 17 ára afmæli mínu og fer ég nú að versla bíl bráðum.... ég var að spá hvort þið vitið um eitthvern sem getur séð um að finna bíl handa manni og flutt hann fyrir mann til landsins á sanngjarnan pening. og hver er það og hvernig nær maður í þann náunga? og svo líka hvað haldiði að svona 523-528 (1997-1999) keyrður max 140þús kosti hingað kominn?? |
Author: | mattiorn [ Tue 24. Oct 2006 22:19 ] |
Post subject: | |
Held að stjórnendur verði að taka nýja notendur á námskeið og sýna þeim Leitarmöguleikann á síðunni.... örugglega til svona eittþúsund og tólfhundruð þræðir um þetta topic ![]() |
Author: | Jss [ Tue 24. Oct 2006 23:48 ] |
Post subject: | |
Einu sinni sem oftar mæli ég með Georg í Uranus, 8985202. Reyndist mér gríðarlega vel, allt stóðst 100% og bíllinn ennþá góður eftir minni vitund. Flutti bílinn inn fyrir mig 2003. Annars myndi ég skoða markaðinn hérna heima virkilega vel áður en þú ferð í innflutning. Komið svo mikið af E39 bílunum (5 línu bílar árgerð 1996-2004 ca.) að það er oft hægt að gera mjög góð kaup í þeim. Myndi t.d. skoða bílinn sem Icedev er að selja mjög vel áður en ég færi í innflutning á svona bíl, alltaf gott að geta skoðað bílinn og reynsluekið. |
Author: | Eggert [ Tue 24. Oct 2006 23:57 ] |
Post subject: | |
Jss wrote: Annars myndi ég skoða markaðinn hérna heima virkilega vel áður en þú ferð í innflutning. Komið svo mikið af E39 bílunum (5 línu bílar árgerð 1996-2005 ca.) Held þeir hafi bara verið framleiddir til 2003. 2004 kom E60. Jss wrote: Myndi t.d. skoða bílinn sem Icedev er að selja mjög vel áður en ég færi í innflutning á svona bíl, alltaf gott að geta skoðað bílinn og reynsluekið.
Er alveg sammála því, fín kaup á '99 bíl, vel búnum og ekki mikið eknum. Þú hefur _ekkert_ við meiri kraft að gera sem byrjendabíl. Hann er beinskiptur(mjööög mikill kostur) og svo er auðvelt að tjúna þessa vél uppí 200 hestöflin þegar þig fer langar það. |
Author: | íbbi_ [ Wed 25. Oct 2006 00:02 ] |
Post subject: | |
ég myndi reyndar alltaf fara frekar í 540 bíl heldur en að tjúna 523 bíl... hinsvegar já er alveg stappa af E39 bílum hérna, ég færi nú frekar og skoðaði úrvalið af þeim, |
Author: | Thrullerinn [ Wed 25. Oct 2006 00:02 ] |
Post subject: | |
Skoðaðu markaðin hér vel, prófa að gera dónatilboð, úrvalið er orðið það mikið að það kæmi mér mjög á óvart ef þú gætir ekki sambærileg kaup á bíl hérlendis frekar en að flytja inn !! Í því fælist engin áhætta, fengir bílinn strax og jafnvel getur sett einhvern bíl upp í. |
Author: | Jss [ Wed 25. Oct 2006 00:07 ] |
Post subject: | |
Ég tek reyndar undir þetta hjá Íbba, kaupa 540 frekar en að kaupa 523 til að tjúna. Og síðan líka það sem Þröstur, Thrullerinn, bendir á með dónatilboðin, um að gera að prófa. ![]() Hins vegar er alltaf einhver áhætta við að kaupa bíl sem og annað. ![]() Eggert wrote: Jss wrote: Annars myndi ég skoða markaðinn hérna heima virkilega vel áður en þú ferð í innflutning. Komið svo mikið af E39 bílunum (5 línu bílar árgerð 1996-2005 ca.) Held þeir hafi bara verið framleiddir til 2003. 2004 kom E60. Hóst, já, búinn að breyta þessu, var aðeins að líta uppúr lögfræðiverkefni, ekki alveg með hugann við það sem ég skrifaði áðan. ![]() |
Author: | Bjössi [ Wed 25. Oct 2006 00:11 ] |
Post subject: | |
Thrullerinn wrote: Skoðaðu markaðin hér vel, prófa að gera dónatilboð, úrvalið er orðið
það mikið að það kæmi mér mjög á óvart ef þú gætir ekki sambærileg kaup á bíl hérlendis frekar en að flytja inn !! Í því fælist engin áhætta, fengir bílinn strax og jafnvel getur sett einhvern bíl upp í. nákvæmlega það tekur því ekki að flytja bíl inn nema að hann sé ekki til á markaðnum því ef maður tekur góðan tíma í málið er hægt að fá rétta eintakið á réttu verði |
Author: | íbbi_ [ Wed 25. Oct 2006 01:27 ] |
Post subject: | |
svo er líka eitt að það er alltof mikil dýrkun á þessa bíla sem eru úti.. það eru alveg jafn slæm og góð eintök þar og hér.. ansi margir sem hafa setið með sárt ennið eftir kaup að utan, varðandi dónatilboð þá er akkurat tímin í það.. aldrei verið til jafn mikið af þýskum bílum og einmitt ofalega mikið af þeim á sölu og mörgum sem vantar ofsalega að losna við þá, í byrjun árs 2005 fann ég einhevrntíman 523ia bimma á sölu, gjörsamlega loaded með leðri lúgu síma xenon digital öllu rafmagni í öllu og eiginlega bara öllu nema skjánum. keyrður 150.. sett á hann 1.5m.. sem var ekki óraunhæft þá, 97 árg af bíl, ég prufaði hann og þetta var solid eintak, en mér fannst alltaf eins og þetta væri bara vensis í akstri hliðina á E32 bílnum sem ég átti þá og áhvað að sleppa þessu en bauð milljón í hann upp á gannið.. og viti menn því var tekið.. |
Author: | Eggert [ Wed 25. Oct 2006 12:16 ] |
Post subject: | |
Já, þessari tjúninga uppástungu hjá mér var nú full alvarlega tekið.. ég meina, kubbur og M50 manifold er nú ekki dýrt að splæsa í bílinn, en myndi gera slatta. Auðvitað væri skemmtilegra að vera á 540, en gaurinn hefur bara ekkert við V8 að gera meðan hann lærir að keyra, það er allavega mitt álit. |
Author: | IceDev [ Wed 25. Oct 2006 14:57 ] |
Post subject: | |
Enda hægt að gera eitthvað ódýrustu krónur/hö túningar á 523 og 323 sem hægt er að finna í BMW |
Author: | Eggert [ Wed 25. Oct 2006 15:16 ] |
Post subject: | |
IceDev wrote: Enda hægt að gera eitthvað ódýrustu krónur/hö túningar á 523 og 323 sem hægt er að finna í BMW
My point exactly. |
Author: | Alpina [ Wed 25. Oct 2006 20:20 ] |
Post subject: | |
IceDev wrote: Enda hægt að gera eitthvað ódýrustu krónur/hö túningar á 523 og 323 sem hægt er að finna í BMW
Kjaftæði,, og wannabe Algerlega út í hött að munurinn sé eitthvað ,,,,,merkjanlegur ,,, fyrir nokkrar krónur,, Eldgreinin orginal er ,, meistaralega hönnuð,, og bara töffarar fá sér 1500 € flækjur sem gefa 3-5 ps, Knastásar gefa eflaust eitthvað en kosta ,,,flesk,, m50 soggrein er málið,,, en slíkur pakki eins og iar er með kostar ca 150.000 + í dag og gefur 20 ps frekar að bæta 300-500 000 og fá 115 + ps og 200 nm að auki og margfalt betur búinn bíl standard ,, en um að gera að skoða markaðinn hér heima.. þar leynist víða ,,gæðingur bak við heysátuna ![]() |
Author: | Eggert [ Wed 25. Oct 2006 22:47 ] |
Post subject: | |
Auðvitað er mun skynsamlegra að kaupa 540i, ekki nokkur spurning. En gaurinn er ekki einu sinni kominn með bílpróf.. læra að keyra fyrst áður en maður fer að leika sér með 286 hestöfl. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |