bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vetrardekk https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17994 |
Page 1 of 2 |
Author: | e_b [ Fri 20. Oct 2006 00:40 ] |
Post subject: | Vetrardekk |
Jæja, dekkjasnillingar, nú vantar mig ráð. Er að velja vetrardekk fyrir bílinn minn (E39 M5) og mér hefur verið bent á eftirfarandi og vildi athuga hvað ykkur finnst. Öll dekkin eru 235/45R17 Hankook Extreme - negld (ok ok, ekki skjóta mig) Bridgestone Blizzak loftbóludekk Pirelli Winter Carving Dunlop 3D (koma víst í staðin fyrir M3 í þessari stærð) Hvaða dekk haldið þið að séu best? (Fer lítið út fyrir bæinn að vetri til, en er oft á ferðinni mjög snemma á morgnana og lendi því í hálkunni áður en hún er skafin burt af öðrum bílum). Kv. E_B |
Author: | Svessi [ Fri 20. Oct 2006 01:36 ] |
Post subject: | |
Jæja, ég ætla enn og aftur að mæla með Nokian Hakkapeliitta, fást í Max1 á móti Brimborg, Bíldshöfða. Veit ekki hvort þeir í Max1 eiga þessa dekkjastærð fyrir þig en þau eru allavega framleidd í þessari stærð. Ég var með svona dekk á BMW 518i ´91 E34 sem ég átti einu sinni, semsagt kraftlaus sleði með opnu drifi og það var alveg ótrúlegt hvað ég komst. Þessi dekk eru mjög mjúk, og slittna alls ekki hratt. En þau eiga það til að tapa nöglunum dálítið. Þau eru vel skorin en samt ekkert rosalega gróf, og eyðslan var ekkert mikið meiri en á sumardekkjum, munaði minnir mig líter á 100 km hjá mér. Allavega ef ég væri þú þá myndi ég kíkja á þetta, kostar lítið annað en tíma og bensín að fara kíkja á þetta og spyrja um verð. P.s. ég náði að láta pabba gamla kaupa svona dekk undir nýjann Dodge Caravan 3.8 lítra og hlakka dálítið til að prófa hann á þessum dekkjum. Man ekki stærðina en það var á 16" felgur og með umfelgun borgaði hann 58 þús kr. |
Author: | HAMAR [ Fri 20. Oct 2006 17:20 ] |
Post subject: | |
Ég er búinn að vera með Bridgestone Blizzak undir mínum 750i núna í 4 vetur í röð og það eru alveg FRÁBÆR vetrardekk þannig að ég mæli hiklaust með þeim. Nokian Hakkapeliitta eru einnig mjög góð dekk bæði með og án nagla, en ég hef nú samt ekki prófað þau sjálfur, en Blizzak eru mögnuð. Farðu inná www.tirerack.com þar geturðu lesið umsagnir um flest öll vetradrekk. |
Author: | Jss [ Fri 20. Oct 2006 17:24 ] |
Post subject: | |
HAMAR wrote: Ég er búinn að vera með Bridgestone Blizzak undir mínum 750i núna í 4 vetur í röð og það eru alveg FRÁBÆR vetrardekk þannig að ég mæli hiklaust með þeim. Nokian Hakkapeliitta eru einnig mjög góð dekk bæði með og án nagla, en ég hef nú samt ekki prófað þau sjálfur, en Blizzak eru mögnuð.
Farðu inná www.tirerack.com þar geturðu lesið umsagnir um flest öll vetradrekk. Verst bara með tirerack að þótt það komi nú alveg vetur í USA þá eru skilyrði yfirleitt allt öðruvísi þar en hérna. Þannig að ég myndi taka því með smá fyrivara sem stendur þar. ![]() |
Author: | ValliFudd [ Fri 20. Oct 2006 17:50 ] |
Post subject: | |
Jss wrote: HAMAR wrote: Ég er búinn að vera með Bridgestone Blizzak undir mínum 750i núna í 4 vetur í röð og það eru alveg FRÁBÆR vetrardekk þannig að ég mæli hiklaust með þeim. Nokian Hakkapeliitta eru einnig mjög góð dekk bæði með og án nagla, en ég hef nú samt ekki prófað þau sjálfur, en Blizzak eru mögnuð. Farðu inná www.tirerack.com þar geturðu lesið umsagnir um flest öll vetradrekk. Verst bara með tirerack að þótt það komi nú alveg vetur í USA þá eru skilyrði yfirleitt allt öðruvísi þar en hérna. Þannig að ég myndi taka því með smá fyrivara sem stendur þar. ![]() hehe... þetta eru einmitt alveg eins dekk og ég var að leika mér á, á rallýkrossbrautinni.. grípa ekki skít á þurru malbiki og bleytu ![]() og hverfa óóótrúlega hratt ![]() |
Author: | zneb [ Sat 21. Oct 2006 09:51 ] |
Post subject: | |
Ég hef keyrt helling á blizzak á ssk benz 190e og líka einn vetur á 535i. Mjög góð í snjó og hálku. Ekkert sem stoppaði 535 á 16" og opnu drifi en þau eru alveg hrikalega leiðinleg við aðrar aðstæður, mjög mjúk þannig að það er lítill stöðugleiki í "líflegum" akstri. Ég var allavega að verða mjög þreyttur á þeim í lok veturs á 535 en hafði reyndar ekki sumardekk á felgum til að svissa sem myndu bjarga málunum þegar aðstæður leifa. Ætla persónulega næst að fá mér performance vetrardekk í líkingu við dunlop m3 ef ég hef ekki aukafelgur á sumardekkjum til að skipta. Annars myndi ég fá mér nokian dekkin á vetrarfelgurnar þar sem þau koma yfirleitt ef ekki bara alltaf best út við vetraraðstæður af naglalausu dekkjunum samkvæmt þessum þarna sænsku prófunum ef ég man rétt. Annars er já bara að skoða tirerack síðuna, ætti að gefa þér ágæta mynd af dekkjunum í boði þar og nokkrir samanburðir. ...og, ég er já alvarlega að spá í að skjóta þig fyrir að taka nagladekk fram sem kost ![]() |
Author: | Mpower [ Sat 21. Oct 2006 10:29 ] |
Post subject: | |
Sendi ykkur þráð sem segir til um hvaða dekk eru best við mismuandi aðstæður: http://www.motor.no/pdf/M806_DEKKTEST.pdf Sjálfur keyri ég á Pirelli winter carving (focus '05 dísel) og þau eru góð. Var á Nokian hakkpeliitta 2 áður og þau voru mjög góð í snjó og hálku en voru með mýkri hliðum svo að bíllinn var svagari (7 lína), ekki raunhæfur samanburður svo sem á milli bílana. |
Author: | srr [ Sat 21. Oct 2006 11:16 ] |
Post subject: | |
Opelinn minn er á Michelin X-Ice North. Mazdan mín var síðasta vetur á Michelin Ivalo 1. Hvoru tveggja komu mjög vel út. En í vetur verð ég með Cooper Weathermaster Si02 undir Mözdunni, langar að prufa hvernig heilsársdekkin standa sig í vetur. |
Author: | Saxi [ Sat 21. Oct 2006 13:37 ] |
Post subject: | |
Síðasta vetur ók ég töluvert Mustang Gt sem undir voru Dunlop Winter sport M3. Keyrði þetta við allskyns aðstæður, rigningu, slabb, snjó og hálku og dekkin stóðu sig með ágætum, ekkert að fljóta upp í slabbinu og gripu vel í hálkuna. Saxi |
Author: | fixxxer [ Sat 21. Oct 2006 22:11 ] |
Post subject: | |
Hef verið á Blizzak undanfarna vetur, nú síðast Blizzak Revo1 (minnir mig) en eftir mikla leit á netinu fannst mér þau bjóða besta ís/snjó grip ásamt minnstu fórnun í performance. Eru frábær í snjó en náttúrulega er alltaf einhver performance missir...enda verður mun skemmtilegra fyrir vikið að komast aftur á sumardekkin!! ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Tue 24. Oct 2006 10:16 ] |
Post subject: | |
Vildi ekki búa til nýjann þráð. Hvaða dekkjum mæliði með undir bílinn minn, ætla að hafa hann á vetrardekkjum til öryggis þó svo að ég ætli ekki að nota hann mikið? Ég var að spá í Toyo harðkornadekkjum, hefur einhver reynslu af þeim? |
Author: | gstuning [ Tue 24. Oct 2006 10:20 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Vildi ekki búa til nýjann þráð.
Hvaða dekkjum mæliði með undir bílinn minn, ætla að hafa hann á vetrardekkjum til öryggis þó svo að ég ætli ekki að nota hann mikið? Ég var að spá í Toyo harðkornadekkjum, hefur einhver reynslu af þeim? Þegar kemur að vetrardekkjum á E30 , þá myndi ég segja 185/65-14 með mjög grófu munstri, að hafa of breitt hjálpar ekki endilega til, og þegar ég notaði síðast harðkornadekk þá virkuðu þau helvíti vel |
Author: | Aron Andrew [ Tue 24. Oct 2006 10:23 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Aron Andrew wrote: Vildi ekki búa til nýjann þráð. Hvaða dekkjum mæliði með undir bílinn minn, ætla að hafa hann á vetrardekkjum til öryggis þó svo að ég ætli ekki að nota hann mikið? Ég var að spá í Toyo harðkornadekkjum, hefur einhver reynslu af þeim? Þegar kemur að vetrardekkjum á E30 , þá myndi ég segja 185/65-14 með mjög grófu munstri, að hafa of breitt hjálpar ekki endilega til, og þegar ég notaði síðast harðkornadekk þá virkuðu þau helvíti vel Já ég er einmitt með 14" Bottlecaps. Ég nenni bara enganvegin að vera á nöglum, hata hljóðið í nöglunum |
Author: | HAMAR [ Wed 25. Oct 2006 09:29 ] |
Post subject: | |
http://www.fib.is/myndir/Vetrardekkin%202004-5.pdf Vetrardekkja samanburður. |
Author: | e_b [ Fri 27. Oct 2006 23:11 ] |
Post subject: | |
Jæja, þá er búið að velja dekk. Fyrir valinu varð Michelin Pilot Alpin PA2. Skv. Tirerack þykja þau mjög góð, og hafði heyrt nokkra hér heima láta vel af þeim líka. Núna er bara að vona að fyrsti veturinn án nagla gangi vel fyrir sig! - E_B |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |