bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Kerti í E34 M5. - GStuning??? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=179 |
Page 1 of 1 |
Author: | bebecar [ Mon 14. Oct 2002 11:04 ] |
Post subject: | Kerti í E34 M5. - GStuning??? |
Ég var að velta fyrir mér kertum í bimman, ég er reyndar nýbúin að láta skipta um kerti en var að velta fyrir mér hvort hægt væri að fá einhver betri fyrir M5 bílinn. Einnig væri ég til í að fá að vita hjá þér Kull hvort við höfum ekki fengið sömu tegund í bílana okkar. Ef einhverjir eru með tillögur þá eru þær vel þegnar. Sumir bílar þurfa ákveðin kerti og ekkert annað, t.d. eins og Alpina Bi-turbo þarf platínukerti frá Bosch. |
Author: | Kull [ Mon 14. Oct 2002 12:33 ] |
Post subject: | |
Menn mæla yfirleitt bara með kertunum sem hann kemur með upprunalega. Það eru kerti frá Bosch, ég man ekki alveg týpuna en þú getur spurt þá hjá B&L. Við höfum örugglega fengið sömu tegund enda bara þessi Bosch kerti sem eru skráð fyrir M5 bílinn hjá þeim. |
Author: | bebecar [ Mon 14. Oct 2002 13:08 ] |
Post subject: | |
Y6DC er það sem á að vera í honum skilst mér. Ég ætla að tékka betur á þessu, datt í hug hvort það væri til eitthvað betra, það þarf náttúrulega ekkert að vera. Heyrðu, meðan ég man, hvað borgaðir þú fyrir gírhnúðinn? |
Author: | Kull [ Mon 14. Oct 2002 15:50 ] |
Post subject: | |
Ég held að þessi Bosch kerti séu það besta fyrir hann. Ég bara man ekki hvað hann kostaði, ég borgaði fyrir kertin og eitthvað annað í leiðinni. Ég get reynt að finna reikninginn ef þú vilt, þú getur líka bara hringt í B&L og spurt þá. |
Author: | bebecar [ Mon 14. Oct 2002 16:13 ] |
Post subject: | |
Þeir gáfu mér upp rúmar 10 þús sem er mjög flott, hann hann hefur þá lækkað um 4 þús, var að velta fyrir mér hvort það hefði verið þinn hnúður. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |