bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E34 520 beinskiptur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17456
Page 1 of 3

Author:  hjalmar87 [ Mon 18. Sep 2006 21:41 ]
Post subject:  E34 520 beinskiptur

Langaði að forvitnast aðeins um 520 beinskiptann, þetta er 89 árger semsagt með 20 vélinni, hef heyrt að þeir séu gersamlega úti að kúka þegar kemur að vinnslunni og kraftinu, er það rétt? ef einhver veit eithvað um þetta endilega láta vita:) samt fallegur bíll með leðri, topplúgu og stóru obc en samt hef heyrt þetta um kraftinn :? ekki alveg nógu gott, er útí danmörku þannig get ekki prófað bílinn sjálfur, langaði bara að forvitnast :)

Author:  mattiorn [ Mon 18. Sep 2006 22:37 ]
Post subject: 

fínn byrjendabíll :wink:

Author:  hjalmar87 [ Mon 18. Sep 2006 22:40 ]
Post subject:  hehe

æ þetta var nú ekki fallega sagt :shock: get nu ekki sagt að ég sé byrjandi hef átt nokkra bmw áður en veit ekkert um 5 línuna, bara 7 og 3.. þannig veit ekki hvort ég var að kaupa mér köttinn í sekknum hérna, langaði í bíl með leðri og ölu dótinu og ágætis kraft, og eyddi ekki of miklu, datt á þennan, en fattaði með vélina of seint: :oops:

Author:  mattiorn [ Mon 18. Sep 2006 22:41 ]
Post subject:  Re: hehe

hjalmar87 wrote:
æ þetta var nú ekki fallega sagt :shock: get nu ekki sagt að ég sé byrjandi hef átt nokkra bmw áður en veit ekkert um 5 línuna, bara 7 og 3.. þannig veit ekki hvort ég var að kaupa mér köttinn í sekknum hérna, hef langaði í bíl með leðri og ölu dótinu og ágætis kraft, og eyddi ekki of miklu, datt á þennan, en fattaði með vélina og seint: :oops:


Var ekkert að segja að þú værir byrjandi, bara að bíllinn væri þannig :P svo ef þú átt nokkra bláa þá ætti ekki að vera mikið mál að smella einhverju skemmtilegra í húddið :wink:

Author:  hjalmar87 [ Mon 18. Sep 2006 22:43 ]
Post subject:  hehe

jamm það er kannski rétt :)
eða eiga þetta sem vinnubíl 8)
en endilega koma með komment, allt vel þegið hérna:)

Author:  Helgi M [ Mon 18. Sep 2006 22:52 ]
Post subject:  Re: hehe

Ég hef átt svona bíl nema bara automatic núna í eitt ár,, og það er alveg rétt hjá þér að þetta er enginn spyrnugræja en þetta skilar sér bara ágætlega vel áfram,, allavega gerir minn það, en mundu bara að tékka líka á hvort að það sé búið að "strappa" þessa vatnslöngu við "festinguna" þarna,, veit ekki hvað þetta kallast því að annars mun viftuspaðinn líklega á endanum fara í gegn

Image

og btw þá er þetta snilldar síða ef þú átt e34 bíl :)

http://www.bmwe34.net

Author:  hjalmar87 [ Mon 18. Sep 2006 22:55 ]
Post subject:  :)

oki takk fyrir þetta:) en hvernig er þéttleikinn í þessum bílum?
og einnig þá er handskrúfuð topplúga.. er malið að setja mótor eða er það hreinlega hægt? :D

Author:  slezz [ Mon 18. Sep 2006 22:56 ]
Post subject: 

ég er búinn að eiga einn svona, þegar ég keypti mér 520 þá var ég engan vegin að pæla í krafti. Svo eru þeir nú ekki þeir sneggstu frá 0-100..en svo vinna þeir alltílagi eftir 100, en þetta er nú bara 2.0 lítra 130 hö.
Þeir skila öllu sem þeir eiga að skila, getum sagt það.

Author:  slezz [ Mon 18. Sep 2006 22:58 ]
Post subject:  Re: :)

hjalmar87 wrote:
oki takk fyrir þetta:) en hvernig er þéttleikinn í þessum bílum?
og einnig þá er handskrúfuð topplúga.. er malið að setja mótor eða er það hreinlega hægt? :D


langbest að hafa þetta handdrifið, því þá er þetta ekkert að bila, svo eru þetta mjög þéttir og góðir bílar í akstri

Author:  hjalmar87 [ Mon 18. Sep 2006 22:59 ]
Post subject:  :)

takk fyrir það:)

Author:  slezz [ Mon 18. Sep 2006 23:00 ]
Post subject: 

keyptiru þennan í þorlákshöfn? passar vel við lýsinguna

Author:  hjalmar87 [ Mon 18. Sep 2006 23:04 ]
Post subject:  :)

jebb, veistu eitthvað um hann?

Author:  slezz [ Mon 18. Sep 2006 23:13 ]
Post subject: 

jám, frændi minn átti hann, bara búinn að gera hann flottari og flottari. Búinn að dunda sér í honum síðan hann fékk hann. Ekkert ekinn og mjög góður bíll.

Author:  hjalmar87 [ Mon 18. Sep 2006 23:16 ]
Post subject:  :)

já samt orðinn soldið upplitaður:) þarf bara að massa hann almennilega og setja smáatriði á lookið þá ætti hann að' vera góður 8)
kannski flottari felgur:) ja btw ef einhver á felgur undir þennan bíl þá má hinn sami senda mér pm, skoða allt:)

Author:  Helgi M [ Mon 18. Sep 2006 23:36 ]
Post subject:  Re: :)

og ef hann er ekki með hvítum stefnuljósum þá verðuru að bjarga því :lol:

Image

Mér finnst það koma mikklu betur út :)

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/