bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

hagstæð bílalán
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17402
Page 1 of 2

Author:  Bjarki [ Fri 15. Sep 2006 17:50 ]
Post subject:  hagstæð bílalán

Datt þetta allt í einu í hug, hefur e-r séð auglýstan bíl með áhvílandi láni sem er ekki hagstætt.
Til sölu bíll, áhvílandi mjög óhagstætt bílalán!
Um er að ræða gjaldeyrislán og sú upphæð sem er áhvílandi í bílnum er talsvert hærri en markaðsvirði bílsins. Ég ræð alls ekki við að borga af þessum bíl því mánaðarleg afborgun er um 80þús á mánuði, einnig hefur hann verið að bila talsvert undanfarið og yfirdrátturinn minn er alveg kominn í max. Ég er ekki skráður eigandi bílsins, heldur einungis umráðamaður. Þrjár seinustu greiðslur eru í ógreiddar, ein í milliinnheimtu og ég alveg að missa bílinn. Skoða jafnvel að borga með bílnum, fer þó eftir því hvort amma geti lánað mér pening.

:lol: ekkert illa meint bara datt þetta svona allt í einu í hug því það er svo mikið af bílum í boði með áhvílandi "hagstætt" bílalán.

Author:  iar [ Fri 15. Sep 2006 18:02 ]
Post subject: 

:lol2:

Author:  Jón Ragnar [ Fri 15. Sep 2006 18:04 ]
Post subject: 

ROOOOOFL! :lol:

Author:  Aron Andrew [ Fri 15. Sep 2006 18:07 ]
Post subject: 

Hahaha :lol:

Nokkuð mikið til í þessu :lol:

Author:  finnbogi [ Fri 15. Sep 2006 23:32 ]
Post subject: 

hehe :lol:

þetta er týpíst braskara lína kannski aðeins krydduð :) samt góður punktur hjá þér bjarki

Author:  gunnar [ Fri 15. Sep 2006 23:42 ]
Post subject: 

Svona svipað þegar menn eru að auglýsa bílana sýna -----FULL LOADED-----

Og svo þegar kemur á daginn eru þeir bara með topplúgu og rafmagn í rúðum eða eitthvað álika gáfulegt.

Author:  Svíþjóð. [ Sat 16. Sep 2006 09:30 ]
Post subject: 

Haha, elska svona tuð....
:lol:

Author:  Geirinn [ Sat 16. Sep 2006 14:27 ]
Post subject: 

Jón Ragnar wrote:
ROOOOOFL! :lol:


x2.

Kominn tími til að einhver benti á þennan brandara.

M5 / 540 syndrome :lol2: :lol2: :lol2:

Author:  moog [ Sat 16. Sep 2006 15:35 ]
Post subject: 

:rollinglaugh:

Author:  IngóJP [ Sat 16. Sep 2006 16:34 ]
Post subject: 

:rollinglaugh:

Author:  MrManiac [ Sat 16. Sep 2006 16:44 ]
Post subject: 

Þessi gengiskörfu lánjeiga nú að vera mestu gegninn til baka. ef þú biður ráðgjafa um leiðbenigu bendir hann þér á þessu lán því þetta sé óverðtriggt og sé miklu hagstæðara. mér finnst þetta jaðra við það að vera glæpsamlegt því þetta gæti ekki verið mikið fjær þvi sem satt er. Gengiskörfulán meðast voð gengi enn ekki verðbólgu.....hvað gerðist í seinasta verðbólguskoti árið 2002 gegisvísitalan fór upp um helming. og verðbólgan lá í 8%. segjum sem svo að þú takir bíl í 100% mintkörfu. Takir lán upp á 4 miljónir og svo á einni nóttu hrapar gengið. Eftir þessa nótt skuldaru kannski 8 miljónir og afborguninn farinn úr 65þ í 130þ.......Og hugsa sér það er mælt með þessu í dag.....Þetta er að aukast og á eftir að fara upp úr öllu valdi því miður.

Verðtrigt lán með 8% verðbólgu á 6,5%vöxtum í íslenskim krónum ársvextir fara í 14,5%. meðað við þetta.

Author:  zx [ Sun 17. Sep 2006 01:27 ]
Post subject: 

http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=4556

Author:  Bjarki [ Sun 17. Sep 2006 03:22 ]
Post subject: 

MrManiac wrote:
Þessi gengiskörfu lánjeiga nú að vera mestu gegninn til baka.

Held þau gangi nú ekki til baka það þarf að greiða þau til baka en það getur verið að eftirspurn eftir þessum lánum hafi minnkað.

MrManiac wrote:
ef þú biður ráðgjafa um leiðbenigu bendir hann þér á þessu lán því þetta sé óverðtriggt og sé miklu hagstæðara. mér finnst þetta jaðra við það að vera glæpsamlegt því þetta gæti ekki verið mikið fjær þvi sem satt er.

Ég hugsa að ráðgjafi sem mælir með þessum lánum sé að vinna hjá lánastofnuninni og hann hefur því mikinn hag af því að viðskiptavinurinn taki lán og mikið af þeim. Hann er mjög líklega á prósentu. Bankar og lánastofnanir geta ekki borið á ábyrgð á fólki, fólkið verður að gera það sjálft. Þeir vilja græða sem mest, hluthafar gera kröfu um hagnað.

MrManiac wrote:
Gengiskörfulán meðast voð gengi enn ekki verðbólgu.....


Eru gengislán ekki fjármagn sem fengið er að láni í erlendri mynt, þegar íslenska krónan veikist þá þarftu að borga fleiri íslenskar krónur til baka. Ástæðan fyrir því að fólk vill taka lán í erlendri mynt er sú að vextir eru hagstæðari á erlendum mörkuðum.

Þeir sem taka lánin hafa val og geta skoðað allt sem í boði er og ráðfært sig við sérfræðinga. Það er ljóst að þeir sem eru að veita þessi lán eru ekki í neinni greiðastarfsemi.
Vandamálið er bara það að margir eru svo æstir að fara út að keyra að þeir spyrja bara "hvar á ég að skrifa?" !!!

Author:  JOGA [ Sun 17. Sep 2006 11:13 ]
Post subject: 

Að taka lán í erlendri mynt þarf ekki að vera slæmt.

Þegar að stýrivextir eru komnir í 13,5%* eins og á Íslandi þá segir það manni að það er ekki auðvelt að finna hagstæð lán!!

En nota bene. Fyrir Jón Jóns út í bæ er oftast allt of mikil áhætta fólgin í þessum lánum og margir sem gera sér ekki fulla grein fyrir því hvenær best er að nýta sér svona lán.

Það voru t.d. margir enn á fullu að taka svona lán þegar að krónan var orðin svaðalega sterk í lok seinasta árs. Þá finnst mér nú að fólk ætti að hugsa sinn gang. Finnst/fanst fólki virkilega líklegt að gengi krónunanr haldist stöðugt eða styrkist frá þeim tímapunkti?


En fyrir mitt leiti væri ég alveg til í að taka gengislán en ég myndi ekki gera það nema að ég vissi að krónan væri frekar veik á þeim tímapunkti.

T.d. er ekki ólíklegt að eftir 1-2 ár þegar að stýrivextir hafa hugsanlega lækkað (Háir stýrivextir hafa áhrif til styrkingar krónunar) og fjármagnsflæði vegna virkjanna dregist saman að þá falli gengi krónunar talsvert (Ath. allt háð því hvað gerist í verðbólgu, krónubréfamálum og virkjanamálum o.fl.). Ef að krónan lækkar á þessum tímapunkti gæti ég alveg hugsað mér að taka lán á bílinn í erlendri mynt sem ég myndi svo borga upp þegar að ég teldi krónuna vera komna aftur nálægt næsta toppi.


Vonandi að eitthvað sé skiljanlegt af þessu röfli hjá mér :lol:

Edit:* Stýrivextir voru hækkaðir í 14% á fimmtudaginn seinasta...

Author:  Twincam [ Sun 17. Sep 2006 21:50 ]
Post subject: 

Hefði náttúrulega verið snilld að taka svona 10-15.000 dollara lán þegar krónan var hvað veikust og maður var að fá upp í 130kr fyrir hvern dollara.. og borga það svo upp þegar krónan var orðin það sterk að maður fékk ekki nema hvað... 62-63kr fyrir hvern dollara.

Helmings gróði.. búje! 8) :lol:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/