bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Vetrardekk á M5 (E39) - Tillögur og verð
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17401
Page 1 of 1

Author:  e_b [ Fri 15. Sep 2006 16:14 ]
Post subject:  Vetrardekk á M5 (E39) - Tillögur og verð

Góðan daginn,

Nú fer senn að líða að vetri og því vantar mig vetrardekk undir bílinn minn (E39 M5 2003). Einhverjar uppástungur (bíllinn er á original felgunum)?

Neglt/óneglt? Hef nú verið á negldum vetrardekkjum hingað til og hefði kosið að vera áfram á slíkum dekkjum (sérstaklega á þessum bíl :shock: ), en tek við öllum uppástungum.

Með hverju mælið þið (annaðhvort fyrir original felgurnar eða aðrar felgur - sem ég yrði þá að kaupa líka og mættu því ekki vera of dýrar) og hvað ætti góður gangur að kosta mig (þá með nýjum felgum ef þið mælið með öðrum felgum en original felgunum)?

Þið sem hafið verið á E39 M5 að vetri til, hvernig hefur það gengið?


Kv.
E_B

Author:  bimmer [ Fri 15. Sep 2006 16:21 ]
Post subject: 

Nýlegar umræður um þetta hér:

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=17339

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/