bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Verkstæði https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=174 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarki [ Sat 12. Oct 2002 20:34 ] |
Post subject: | Verkstæði |
Hvert á maður að fara með bílinn í sprautunn? Þarf að láta sprauta svuntuna/framstuðarann á E39 523iA bíl og vil fá það almennilega gert, lenti í smá tjóni og var í rétti. Verkstæði sem heitir Réttur gerði við gamla bílinn minn E30 318i og þvílík vinnubrögð. Fór 2x til þeirra eftir tvö tjón þar sem ég var í bæði skiptin í rétti og ég þurfti alltaf að koma í endurkomu hjá þeim, þetta eru bara fúskarar. Reyndu alltaf að komast létt frá þessu. |
Author: | Djofullinn [ Sat 12. Oct 2002 20:52 ] |
Post subject: | |
Já ég er sammála þessu með Rétt, hef 2x farið með bíl þangað og alls ekki verið ánægður með vinnubrögðin ![]() |
Author: | Propane [ Sun 13. Oct 2002 03:13 ] |
Post subject: | |
ég fór einu sinni með bmw sem ég átti fyrir löngu í sprautun á Selfossi þar sem Bílar&List bílarnir voru sprautaðir og bíllinn var þakinn grunni eftir það og illa sprautað ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 13. Oct 2002 11:03 ] |
Post subject: | |
Ég hef góða reynslu af einyrkja í bænum með verkstæði sem heitir Tengsli (Súðarvogi held ég) og hann heitir Gunnar. |
Author: | saemi [ Sun 13. Oct 2002 15:31 ] |
Post subject: | |
Ég lét sprauta 6-una mína hjá B B bílaréttingum, Viðarhöfða 6 S:5672350. Þeir eru alveg ágætir, eru sanngjarnir á verði, og nokkuð vel gert (þó maður geti alltaf fundið eitthvað að). Þeir hafa líka verið soldið í BMW. Sonur eigandans (sem er líka að vinna þarna) átti svarta 3.8 M5 bílinn (ljósgrátt leður, ekinn innan við 100.000), sem var seldur af trygginunum fyrir ári síðan eftir framtjón. Gaman væri nú að vita hvað er að frétta af þeim bíl. Veit að hann var keyptur á alltof mikið, og einhver bílskúrskall er að gera við hann. |
Author: | bebecar [ Sun 13. Oct 2002 18:56 ] |
Post subject: | |
Ég var að tala við karl sem keypti M5 á uppboði fyrir nokkru síðan en sá var að ég held örugglega með svart leður. Hann var 1993 eða 1994 módel. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |