bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E46 318i
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17384
Page 1 of 1

Author:  98.OKT [ Thu 14. Sep 2006 15:24 ]
Post subject:  E46 318i

Sælir, var að spá ef einhverjir hérna væru með reynslu af E46 318, þá er ég að spá í hvort einhverjar þekktar bilanir/gallar séu í þeim, og hvað sanngjart verð sé á þessum bílum, þ.e.a.s 99-2000.árg og ekki eknir meira en ca. 130-140.000
Er svolítið að spá í svona bíl fyrir veturinn :wink:

Author:  Bjarki [ Thu 14. Sep 2006 16:02 ]
Post subject: 

e46 eru virkilega skemmtilegir bílar, e-ð allt annað en e36. e39 þristur ef svo má að orði komast, sem er í raun eðlilegt því röðin er: e38, e39, e46.

Vökvaundirlyftur, tímakeðja, elektrónísk kveikja, diskar hringinn, 6 loftpúðar, spólvörn. Góður 318i e46 er mikill bíll fyrir peninginn.
Lítil eyðsla en alls ekki kraftlausir bílar.
Svo kemur nýja 4cyl 2l vélin, fjölventla og togar miklu meira.

Author:  98.OKT [ Thu 14. Sep 2006 16:11 ]
Post subject: 

Takk kærlega fyrir þetta :wink: mun vonandi geta verslað svona bíl á næstu vikum/mánuðum

Author:  Schulii [ Thu 14. Sep 2006 21:59 ]
Post subject: 

En ef þú hefur efni á 320 diesel þá bara Guð minn góður hvað það er skemmtilegur bíll!!

..allavega með 150 hestafla vélinni. Hafði oft heyrt menn tala um hvað vinnslan í þeim kæmi á óvart og það gerði hann svo sannarlega hjá mér!!

Author:  krullih [ Thu 14. Sep 2006 22:03 ]
Post subject: 

er einmitt að láta mig dreyma um 320d...vildi að einhver væri herna til sölu.

Author:  Djofullinn [ Thu 14. Sep 2006 22:22 ]
Post subject: 

Schulii wrote:
En ef þú hefur efni á 320 diesel þá bara Guð minn góður hvað það er skemmtilegur bíll!!

..allavega með 150 hestafla vélinni. Hafði oft heyrt menn tala um hvað vinnslan í þeim kæmi á óvart og það gerði hann svo sannarlega hjá mér!!
Algjörlega sammála því. Fannst minn sprækari en 320i. Virkilega skemmtilegir bílar

Author:  JonHrafn [ Thu 14. Sep 2006 22:25 ]
Post subject: 

japp ... 320d >>>>> 318i tog dauðans

Author:  Arnar [ Fri 15. Sep 2006 13:50 ]
Post subject: 

Hvað er 320d bíllinn að eyða svona í venjulegum akstri ?

Author:  Djofullinn [ Fri 15. Sep 2006 14:07 ]
Post subject: 

Arnar wrote:
Hvað er 320d bíllinn að eyða svona í venjulegum akstri ?
Eyddi um 7L innanbæjar hjá mér

Author:  JonHrafn [ Fri 15. Sep 2006 16:24 ]
Post subject: 

mæli minn í 7,2l

Author:  98.OKT [ Fri 15. Sep 2006 18:39 ]
Post subject: 

Ég hef reyndar verið frekar heitur fyrir 320D bílunum, fínt afl og mjög sparneytinn, ég mun skoða þetta mjög vel þegar að því kemur.

Author:  Bjarki [ Fri 15. Sep 2006 19:50 ]
Post subject: 

Held það séu bara til 2 320d bílar með gömlu 136hp vélinni. Vélin í öðrum fór í e-ð spað og hinn lenti í tjóni. Þannig það er ekki mikill notaðabílamarkaður með þessa bíla, ástæðan náttúrlega sú löggjöf sem við bjuggum við.
Bílarnir með nýju vélinni eru komnir í aðeins annan verðflokk.

Author:  Djofullinn [ Fri 15. Sep 2006 20:11 ]
Post subject: 

Bjarki wrote:
Held það séu bara til 2 320d bílar með gömlu 136hp vélinni. Vélin í öðrum fór í e-ð spað og hinn lenti í tjóni. Þannig það er ekki mikill notaðabílamarkaður með þessa bíla, ástæðan náttúrlega sú löggjöf sem við bjuggum við.
Bílarnir með nýju vélinni eru komnir í aðeins annan verðflokk.
Fannstu einhverntíman út hvar af þessum var bíllinn sem ég átti?

Author:  Bjarki [ Fri 15. Sep 2006 20:27 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Fannstu einhverntíman út hvar af þessum var bíllinn sem ég átti?

Nei, sá samt þinn gamla í dag, lítur vel út. Svo náttúrlega eru bílar ekkert endilega verri þó vélar hafi farið eða e-r tjón ef vel er að verki staðið.

Author:  IvanAnders [ Fri 15. Sep 2006 21:06 ]
Post subject: 

Það var E46 320d uppí tb fyrir mánuði or sum, var í svolítinn tíma, minnir að það hafi komið blokk úr nýrri vélinni og allt fært á milli (birt án ábyrgðar) en Kiddi var í því verki og því er ekkert að óttast :wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/