bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Sambandi við bíl
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17360
Page 1 of 1

Author:  jon4 [ Wed 13. Sep 2006 16:41 ]
Post subject:  Sambandi við bíl

Sælir..ég er að pæla í bíl sem er úti þýskalandi..

Hvað væri þessi kominn á mikið hingað heim með öllu...?

Veit allveg af reiknivélinni hérna að neðan..langar bara að forvtinast um svona ca.tölu..og hvar getur maður náð í þennan smára hamborg ? e-mail eða eitthvað í þá áttina? :wink:

http://www.mobile.de/SIDraR4Dq1rSaAh7JJ ... 224337734&

Author:  IceDev [ Wed 13. Sep 2006 16:54 ]
Post subject: 

Myndi koma inn á svona..millu þ.e.a.s ef að hann verður "seldur" á þessu verði

Author:  Djofullinn [ Wed 13. Sep 2006 16:57 ]
Post subject: 

Kostar ca. 1100 þús með þóknun.

Talaðu við Georg í Úranus. www.uranus.is Sími 8985202

Kostar sama og Smári en færð meira.
Margir með góða reynslu af Georg hérna. Hann hefur flutt inn tvo bíla fyrir mig og allt staðist.
Aftur á móti veit ég um tvo hérna í klúbbnum sem hafa slæma reynslu af Smára.

Author:  IceDev [ Wed 13. Sep 2006 17:34 ]
Post subject: 

Verðið mitt var reiknað með 110 þús krónum í flutning og 130 þús í þóknun, en betra er svosem að overshoota heldur en undershoota

Author:  basten [ Fri 15. Sep 2006 07:32 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Talaðu við Georg í Úranus. www.uranus.is Sími 8985202

Kostar sama og Smári en færð meira.
Margir með góða reynslu af Georg hérna. Hann hefur flutt inn tvo bíla fyrir mig og allt staðist.
Aftur á móti veit ég um tvo hérna í klúbbnum sem hafa slæma reynslu af Smára.


Ég veit allavega að Smári fer sjálfur og skoðar bílana sem menn ætla að kaupa þar sem hann býr í Þýskalandi á meðan Georg býr á Íslandi og kaupir MJÖG OFT bílana í gegnum síma eftir lýsingu seljanda (sem eru ekki alltaf hlutlausir).

Mér finnst það allavega meiri þjónusta að bíllinn sé skoðaður úti af manni sem hægt er að treysta heldur en að bíllinn sé keyptur í gegnum síma eingöngu fyrir orð seljanda, jafnvel þó að Georg sjái um að leysa bílinn út úr tolli.

Ég ætla ekki að fara að byrja eitthvað skítkast hérna, en menn eru alltaf að tala um þessa tvo sem hafa slæma reynslu af Smára. Ég veit um nokkrar slæmar sögur af Georgi sem ég ætla ekki að fara tíunda hérna en ein þeirra er varðandi falda álagningu hans sem var mjög há.

Author:  Þórir [ Fri 15. Sep 2006 08:18 ]
Post subject:  Smári Georg

Sælir.

Nei, það er um að gera enda eru þessir tveir menn eflaust þeir sem flestir hafa skipt við og nánast allir verið mjög sáttir við báða tvo. Annars skildist mér einhverntímann að Georg og Smári væru í samstarfi.

Kveðja
Þórir I.

Author:  ice5339 [ Mon 18. Sep 2006 15:37 ]
Post subject:  Re: Sambandi við bíl

jon4 wrote:
Sælir..ég er að pæla í bíl sem er úti þýskalandi..

Hvað væri þessi kominn á mikið hingað heim með öllu...?

Veit allveg af reiknivélinni hérna að neðan..langar bara að forvtinast um svona ca.tölu..og hvar getur maður náð í þennan smára hamborg ? e-mail eða eitthvað í þá áttina? :wink:

http://www.mobile.de/SIDraR4Dq1rSaAh7JJ ... 224337734&


Bara til að byrja með þá vil ég gjanan svara hluta af þínum fyrsta pósti, þ.e. hvar nærðu í þennan Smári í Hamburg.
mail: smarihamburg@hotmail.com
Tel: +491703110600

Ég er persónulega verslað tvisvar við Smára, og þó að mér hafi í fyrstu fundist furðulegt að senda ja nokkuð magn af peningum á mann sem ég þekkti lítið, þá fann ég ekki fyrir NEINUM efasemdum núna.

Í alvöru, þegar menn er að skipta á fjölda bifreiða í öllum verðflokkum, af hverju ættu menn þá að reyna að svindla á einhverjum einum eða tveimur með hlutfallslega ódýra bíla? Til hvers! Við verðum að hafa í huga að menn fara ekki að skjóta sig í fótinn með að svindla á sínu lífsviðurværi!!!

Það er hins vegar staðreynd að bílar eru misjafnir, og við getum allir lent á góðum og slæmum bílum. Ekki er fólk almennt að níðast á brimborg af því að það fær mánudagsbíl, og jú maður getur fengið mánudagsbíl þótt maður versli hann nýjan frá umboði.

Það að Smári prófar og skoðar bílinn, minnkar AUÐVITAÐ líkur á mánudagsbíl, sem er klárlega betra en að taka orð sölumanns.

Smári er búinn að reynast mér ótrúlega vel þessi tvö skipti sem ég hef notið þjónustu hans, og það er mikill munur að fá sendar myndir frá þýskalandi og nákvæman (staðfestan) búnað bifreiðarinnar. Þægindin líka við að fá símtal frá honum þegar hann er að skoða bílinn, og maður getur spurt um allt og ekkert, og hann lýsir bílnum í bak og fyrir.

Smári er í Þýskalandi, prófar og skoðar bílinn og í raun kaupir hann ekki ef hann finnur eitthvað furðulegt, eða eitthvað að bílnum.

Fyrir utan þau gjöld sem Smári gerði ráð fyrir (vsk, tollur, fragt, osf osf) held ég að ég hafi greitt topps 20. þús í annnan kostnað, þar með talið skoðun, bifreiðagjöld osf. Kostnað sem maður sleppur aldrei við.

Smári svarar alltaf emilum og símtölum.

Vinnan hérna heima felur aðalega í sér smá útúrdúr hér og þar, ekkert sem maður myndi borga fyrir, ef ferlið hérna heima er eiithvað mál er ég alveg tilbúinn til að aðstoða þig við það.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/