bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Leikdagur Sunnudaginn 17. September
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17316
Page 1 of 8

Author:  Porsche-Ísland [ Mon 11. Sep 2006 20:39 ]
Post subject:  Leikdagur Sunnudaginn 17. September

Sunnudaginn 17. September verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 11 og eitthvað fram eftir degi. Fer eftir aðsókn.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm.

Það verður enginn tímatökubúnaður í gangi enda er þetta bara leikur.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 3000 krónur.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og 3000 krónur í seðlum.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.


Bara að taka fram að þetta fari fram á Rallykrossbrautinni v/Krísuvíkurveg
Þessi braut er við veginn til Krísuvíkur, ca. 5 km frá Hafnarfirði.

Þetta er mynd af brautinni.

Image

Þarna er bæði malbikuð 830 metra löng braut og svo er þarna rúmlega 1000 metra löng rally kross braut. Þær eru samtvinnaður.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. 17 / 09 / 2006


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

Author:  ValliFudd [ Mon 11. Sep 2006 21:03 ]
Post subject: 

Betra veður, þá kem ég! :) jafnvel með 2 bíla hehe

Author:  gstuning [ Mon 11. Sep 2006 22:03 ]
Post subject: 

Fart ,, á ekki að fljúga heim til að fá að taka þátt ;)

þetta er svo mikið stuð 8)

annars held ég að ef dóri heldur þessu áfram þá verðum við
farnir að fá meiri sæta tíma enn útlendingar sem eru alltaf að fara á track days hjá sér

Author:  Aron Andrew [ Mon 11. Sep 2006 23:36 ]
Post subject: 

jesss...

djöfulli er ég ánægður með þetta, mæti 100% 8)

Author:  Dohc [ Tue 12. Sep 2006 00:09 ]
Post subject: 

ég mæti ásamt turbo-crew...


allir að muna eftir afmælispakka handa mér :mrgreen:

held að það sé nóg að fá þessa afmælisgjöf að koma uppá braut og leika mér ásamt hinum 8)


sjáumst allir hressir uppfrá..

Kv.
Teitur

Author:  íbbi_ [ Tue 12. Sep 2006 00:33 ]
Post subject: 

ég fékk mail í dag frá Ny að kúplingin mín ætti að vera komin í mínar hendur í vikulok!! shit nú er pressa á mér

Author:  IvanAnders [ Tue 12. Sep 2006 00:56 ]
Post subject: 

úff... :?
Subframe fóðringarnar mínar ættu að koma í þessari viku (samkvæmt heimildum B&L)
En Kiddi verður úti um helgina og ég kemst ekki í smíði fyrr en þarnæstu helgi........

conclusion: :cry: :cry: :cry:

Author:  fart [ Tue 12. Sep 2006 04:34 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Fart ,, á ekki að fljúga heim til að fá að taka þátt ;)

þetta er svo mikið stuð 8)

annars held ég að ef dóri heldur þessu áfram þá verðum við
farnir að fá meiri sæta tíma enn útlendingar sem eru alltaf að fara á track days hjá sér


verð í zurich þessa helgi.

Author:  arnibjorn [ Tue 12. Sep 2006 10:02 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
jesss...

djöfulli er ég ánægður með þetta, mæti 100% 8)

Ég kem með þér :)

Author:  ///MR HUNG [ Tue 12. Sep 2006 10:11 ]
Post subject: 

:clap: :burnout: \:D/

Author:  Kristján Einar [ Tue 12. Sep 2006 10:24 ]
Post subject: 

eg reyni

Author:  bimmer [ Tue 12. Sep 2006 10:38 ]
Post subject: 

Turbo 2002 á svæðið takk fyrir...

Author:  Ingsie [ Tue 12. Sep 2006 11:27 ]
Post subject: 

Ég lofa að taka þátt núna :oops: :lol:

Author:  arnibjorn [ Tue 12. Sep 2006 11:39 ]
Post subject: 

Það ætti víst að vera samkoma þennan sunnudag hjá okkur kraftsmönnum... er ekki málið að fjölmenna bara uppá braut 8)

Author:  Aron Andrew [ Tue 12. Sep 2006 12:45 ]
Post subject: 

Hvar get ég keypt mér góðann hjálm?

Page 1 of 8 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/