Sælir kæru Bimmar.
Ég er búinn að þjást af bíladellu frá blautu barnsbeini þá aðalega stóru og miklu Amerísku dóti og aldrei hélt ég að ég fengi þá flugu í höfuðið að langa í BMW.
Þar til nýverið var mér kynnt fyrir þessum svaðalega m5.
Nú er svo komið að það á fá sér einn slíkan (kannski ekki M, á ekki pening) en eitthvað fallegt.
Ég sá þennan reyndar og langaði að fá smá álit frá ykkur sem vitið allt um þessa bíla hér á landi.
http://bilasolur.is/Main.asp?show=CAR&B ... W&GERD=325 I
Ég veit að verðið á honum er alveg útúr kú en flest annað væri ágætt að vita. Með þakkir um góð svör
