bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Leikdagur sunnudaginn 10. September
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=17198
Page 1 of 8

Author:  Porsche-Ísland [ Mon 04. Sep 2006 23:21 ]
Post subject:  Leikdagur sunnudaginn 10. September

Sunnudaginn 10. September verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 10 og eitthvað fram eftir degi. Fer eftir aðsókn.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm.

Það verður enginn tímatökubúnaður í gangi enda er þetta bara leikur.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 3000 krónur.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og 3000 krónur í seðlum.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Bara að taka fram að þetta fari fram á Rallykrossbrautinni v/Krísuvíkurveg
Þessi braut er við veginn til Krísuvíkur, ca. 5 km frá Hafnarfirði.

Þetta er mynd af brautinni.

Image

Þarna er bæði malbikuð 830 metra löng braut og svo er þarna rúmlega 1000 metra löng rally kross braut. Þær eru samtvinnaður.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. 10 / 09 / 2006


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

Author:  Aron Andrew [ Mon 04. Sep 2006 23:23 ]
Post subject: 

Ohh andskotinn, ég verð í danmörku :evil: :(

Author:  burgerking [ Mon 04. Sep 2006 23:23 ]
Post subject: 

Schnilld!

Keep up the good work! :D

Author:  ValliFudd [ Mon 04. Sep 2006 23:30 ]
Post subject: 

hmmm... þarf að fara að setja hin hálfslitnu dekkin undir þá 8)

Author:  Porsche-Ísland [ Mon 04. Sep 2006 23:34 ]
Post subject: 

Eitt sem ég gleymdi að skrifa,,,,

Á síðasta leikdegi var mikið um það að fólk hennti rusli út um allt.

Sérstaklega var þetta þar sem fólk stóð inni í miðri brautinni.

Það var tekið til um helgina og svona sóðaskapur verður ekki liðinn.

Ef það sést til liðs henda rusli aftur verður því vísað út af svæðinu og fær ekki að koma aftur.

Fólk verður að skilja að þetta er allt gert í sjálboðavinnu og ekki hægt að ætlast til að eitthverjir nenni að taka til eftir aumingja sem nenna ekki að taka dótið mér sér í burtu.

Það voru ruslatunnur á svæðinu og er fólk vinsamlegast beðið um að nota þær.

Ég endurtek,,, þetta er allt gert í sjálboðavinnu. Og það eru takmörk á öllu hvað maður nennir að gera fyrir gott málefni.

Author:  Danni [ Tue 05. Sep 2006 01:35 ]
Post subject: 

Ég sá engar ruslatunnur :shock: Setti eina flösku á jörðina undir svona camper stól þegar ég fór að taka myndir í eitt skiptið, svo þegar ég hætti því kom ég til baka og tók hana og henti inní bíl 8)

en er ekki sniðugt að hafa svona sér rusl fyrir flöskur og dósir og sér fyrir rusl? Meina, ef mætingin verður eitthvað svipuð og síðast kemur til með að vera alveg nóg af fólki með flöskur og það er hægt að safna einhverjum smá pening í viðbót með þeim... bara hugmynd samt.

Author:  íbbi_ [ Tue 05. Sep 2006 01:49 ]
Post subject: 

shit.. nú er bara að vona að kúplingin komi maður váá.. hún fór af stað fyrir helgi.

Author:  IceDev [ Tue 05. Sep 2006 02:30 ]
Post subject: 

Einnig hvort að hægt væri að gera betri leiðbeiningar að staðnum. Leitaði að þessu seinast og fann þetta hvergi :(

Author:  Arnarf [ Tue 05. Sep 2006 02:42 ]
Post subject: 

Ég mun allavega reyna að kíkja, þó ég taki eflaust ekki þátt

Author:  HPH [ Tue 05. Sep 2006 04:23 ]
Post subject: 

ég lofa að taka þátt.
fer í fyrra málið og fæ tryggingaviðaukan.

Author:  siggir [ Tue 05. Sep 2006 08:25 ]
Post subject: 

:D :D :D :D 8)

Author:  gstuning [ Tue 05. Sep 2006 09:17 ]
Post subject: 

Maður mætir 4sure

Author:  Erica [ Tue 05. Sep 2006 09:23 ]
Post subject: 

var erlendis þegar þetta var síðast og nú er alveg spurning að mæta og leika sér..jafnvel gera sig af fífli :lol:

Author:  Stanky [ Tue 05. Sep 2006 09:59 ]
Post subject: 

oooooooohhhhhhh, verð að læra fyrir próf :(

Author:  Geirinn [ Tue 05. Sep 2006 14:23 ]
Post subject: 

Porsche-Ísland wrote:
Eitt sem ég gleymdi að skrifa,,,,

Á síðasta leikdegi var mikið um það að fólk hennti rusli út um allt.

Sérstaklega var þetta þar sem fólk stóð inni í miðri brautinni.

Það var tekið til um helgina og svona sóðaskapur verður ekki liðinn.

Ef það sést til liðs henda rusli aftur verður því vísað út af svæðinu og fær ekki að koma aftur.

Fólk verður að skilja að þetta er allt gert í sjálboðavinnu og ekki hægt að ætlast til að eitthverjir nenni að taka til eftir aumingja sem nenna ekki að taka dótið mér sér í burtu.

Það voru ruslatunnur á svæðinu og er fólk vinsamlegast beðið um að nota þær.

Ég endurtek,,, þetta er allt gert í sjálboðavinnu. Og það eru takmörk á öllu hvað maður nennir að gera fyrir gott málefni.


Jabbs. Við lentum í veseni með burr burr þarna og við tókum einmitt allt rusl eftir okkur.

Page 1 of 8 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/