bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Er þetta ekki orðið ágætt https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=16851 |
Page 1 of 2 |
Author: | Jonni s [ Mon 14. Aug 2006 12:40 ] |
Post subject: | Er þetta ekki orðið ágætt |
Eldur kom upp í eldhúsi í mannlausri íbúð á fyrstu hæð í þriggja hæða blokk við Neshaga 7 í Reykjavík um klukkan eitt í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði fljótt tökum á eldinum og tókst að koma í veg fyrir að reykur breiddist um húsið. Slökkviliðið þakkar það hversu snemma eldurinn uppgötvaðist að slökkvistarfið gekk vel fyrir sig og að skemmdir urðu ekki meiri. Lögreglan í Reykjavík segir að grunur leiki á að um íkveikju hafi verið að ræða. Þegar lögreglan kom á vettvang gerði öflugur BMW tilraun til að aka á brott en ók á skilti og gerði síðan tilraun til að aka tvo lögregluþjóna niður. Bíllinn fannst síðar við Sundlaug Vesturbæjar, mannlaus. Lögreglan heimsótti eiganda bifreiðarinnar sem varð margsaga um hver hefði haft afnot af bílnum um nóttina og gistir hann nú fangageymslu lögreglunnar. Rannsókn málsins stendur enn yfir og ekki er víst að þetta atvik tengist íkveikjunni. Tekið af mbl.is Þetta er annað skiptið á stuttum tíma sem maður heyrir það sérstaklega tekið fram að um öflugann BMW hafi verið að ræða. Hitt atvikið var einhver svartur Touring sem stakk lögguna af inní Hafnarfjörð. |
Author: | Farmer [ Mon 14. Aug 2006 13:01 ] |
Post subject: | |
Þetta er furðulegt. Það heyrast sjaldan nefndar aðrar bíltegundir þegar eitthvað svona er í gangi. Það er eins og lögreglan þoli ekki BMW, eins og atvik sem sumir kraftsmenn hafa lent í. Hvað ætli þeir eigi við... "kraftmikill BMW" ? Eru þeir það ekki flestir!!! |
Author: | IngóJP [ Mon 14. Aug 2006 13:19 ] |
Post subject: | |
Farmer wrote: Þetta er furðulegt. Það heyrast sjaldan nefndar aðrar bíltegundir þegar eitthvað svona er í gangi. Það er eins og lögreglan þoli ekki BMW, eins og atvik sem sumir kraftsmenn hafa lent í.
Hvað ætli þeir eigi við... "kraftmikill BMW" ? Eru þeir það ekki flestir!!! 520i ![]() |
Author: | Hannsi [ Mon 14. Aug 2006 13:57 ] |
Post subject: | |
ég var stoppaður í fyrsta skiftið núna um helginna á 525 bílnum og eina sem þeir gerðu var að spurja hvort ég ætti þennan bíl ![]() |
Author: | burgerking [ Mon 14. Aug 2006 14:20 ] |
Post subject: | |
Ég var stoppaður um daginn á leiðinni heim utanaf landi... fyrsta spurning sem ég fékk "átt þú þennan bíl?" og líka þegar að ég var stoppaður niðri í bæ fyrir að vera með þokuljósin á... fyrsta sem þeir sögðu "átt þú þennan bíl?"... alveg ótrúlegt.. ![]() |
Author: | Logi [ Mon 14. Aug 2006 15:49 ] |
Post subject: | |
Gallinn er bara sá að það eru mörg fífl sem eiga BMW. Frétti t.d. af fíflum á E39 kasta eggjum í gangandi vegfarendur um helgina ![]() Svona lagað kemur náttúrulega óorði á BMW-eigendur almennt ![]() |
Author: | ValliFudd [ Mon 14. Aug 2006 16:36 ] |
Post subject: | |
Quote: gerði öflugur BMW tilraun til að aka á brott Ef þetta hefði verið yaris, hefði þá verið skrifað: Quote: gerði kraftlaus toyota tilraun til að aka á brott
![]() |
Author: | Arnarf [ Mon 14. Aug 2006 16:39 ] |
Post subject: | |
Svo var líka frétt í fréttablaðinu minnir mig fyrir stuttu um einhvern hraðakstur sem tengdist ekkert BMW, en fyrir ofan var mynd af BMW. |
Author: | anger [ Mon 14. Aug 2006 17:16 ] |
Post subject: | |
eg var tekinn í yfirheirslu um daginn af leynilöggu, 2 löggur komu ut o yfirheyrðu mig og voru að tala um bilinn minn, |
Author: | Geirinn [ Mon 14. Aug 2006 19:10 ] |
Post subject: | |
Skv. almenningi eru BMW yfirleitt öflugir, flottir, dýrir, bila mikið, góðir bílar, bílar fyrir snobbað fólk, bílar sem fólk VERÐUR að spyrna við, dópbílar etc. Við verðum bara að læra að lifa með þessu. Hver tekur að sér að fara í Kastljós og væla fyrir okkur eins og aðrir hópar hafa gert ![]() ![]() ![]() |
Author: | IngóJP [ Mon 14. Aug 2006 19:18 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Skv. almenningi eru BMW yfirleitt öflugir, flottir, dýrir, bila mikið, góðir bílar, bílar fyrir snobbað fólk, bílar sem fólk VERÐUR að spyrna við, dópbílar etc.
Við verðum bara að læra að lifa með þessu. Hver tekur að sér að fara í Kastljós og væla fyrir okkur eins og aðrir hópar hafa gert ![]() ![]() ![]() Ég mæli með Dóra HPH.... |
Author: | Steini B [ Mon 14. Aug 2006 20:43 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: Quote: gerði öflugur BMW tilraun til að aka á brott Ef þetta hefði verið yaris, hefði þá verið skrifað: Quote: gerði kraftlaus toyota tilraun til að aka á brott ![]() Nei, það væri bara svona... Quote: gerði bíll tilraun til að aka á brott
Ef það er eitthvað talað um bíla sem gera eitthvað af sér (hraðakstur og flr.) Þá er það annaðhvort BMW eða bara bíll ![]() Sérstaklega í DV |
Author: | DiddiTa [ Mon 14. Aug 2006 23:15 ] |
Post subject: | |
Blaðið var einmitt með einhverja frétt um hraðakstur líka um daginn, Talað var um 4 bíla og eitt hjól, eina ökutækið sem var nefnt var BMW bifreið sem var þó á minnstum hraða af þessum 5 og stakk hana ekki af (eins og mig minnir að 2 af þessum 5 hafi gert). Skemmtilegt nokk. |
Author: | Geirinn [ Tue 15. Aug 2006 00:12 ] |
Post subject: | |
Ég bíð bara eftir því að Ísland verði eins og önnur Evrópulönd... svíndýrt að tryggja BMW því að þeir eru "líklegastir til að valda tjónum vegna hraðaksturs." |
Author: | adler [ Tue 15. Aug 2006 01:53 ] |
Post subject: | |
Þetta hugsa ég varðandi þessar ofsóknir á BMW og eigendur þeirra. ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |