bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Förgun á bílflaki...
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=16534
Page 1 of 1

Author:  Twincam [ Sat 22. Jul 2006 07:47 ]
Post subject:  Förgun á bílflaki...

Veit einhver hvað maður getur gert ef maður hefur fargað bílhræi... fengið alla úrvinnslupappíra yfir það og svo týnt þeim áður en maður drattaðist með það upp á skoðunarstöð?

Henti nefnilega bíl áður en ég fór utanlands um daginn.. en núna get ég ómögulega munað hvað í andsk... ég gerði við úrvinnslupappírana. :oops:

Verð ég að finna pappírana til að geta fengið skilagjaldið fyrir bílinn eða get ég reynt að fá afrit af þeim hjá Furu?

Mig langar í 15.000 kallinn minn :x

Author:  Danni [ Sat 22. Jul 2006 09:07 ]
Post subject: 

Best er auðvitað að geyma þetta á góðum stað svo maður týnir þessu ekki, en fyrst þetta er týnt, þá geturðu athugað hvort að bíllinn er ennþá til hjá þeim, sýnt þeim skráningarskýrteini eða skoðunarvottorð og númeraplöturnar, lýst vandamáli þínu og vonað að þetta eru almennilegir menn.

Ef þeir vilja ekki gera annað eintak, þá verðuru bara að leggja númerin inn til að losna við að borga tryggingar og bifreiðagjöld næstu árin (nema þau séu komin inn) og sætta þig við það að fá ekki krónu fyrir bílinn :(

Author:  Twincam [ Sat 22. Jul 2006 18:53 ]
Post subject: 

Danni wrote:
Best er auðvitað að geyma þetta á góðum stað svo maður týnir þessu ekki, en fyrst þetta er týnt, þá geturðu athugað hvort að bíllinn er ennþá til hjá þeim, sýnt þeim skráningarskýrteini eða skoðunarvottorð og númeraplöturnar, lýst vandamáli þínu og vonað að þetta eru almennilegir menn.

Ef þeir vilja ekki gera annað eintak, þá verðuru bara að leggja númerin inn til að losna við að borga tryggingar og bifreiðagjöld næstu árin (nema þau séu komin inn) og sætta þig við það að fá ekki krónu fyrir bílinn :(

Fura geymir aldrei bíla í margar vikur nema eitthvað verulega sérstakt sé í gangi... og auk þess, þá kom þessi bíll til þeirra niðurbútaður og fór beint út í haug.

Númerin eru þegar innlögð..


Einhverjir fleiri sem hafa hugmynd um hvað maður gæti gert? :?

Author:  Bjarki [ Sat 22. Jul 2006 20:23 ]
Post subject: 

Myndi bara hringja í viðeigandi aðila Furu, Umferðarstofu, Tollstjóraembættið. Greina þeim frá stöðu mála og það hlýtur að vera hægt að leysa málið.
Skilavottorðið er bara skrifleg staðfesting á því að viðurkenndur aðili hafi tekið bílinn til förgunar, ætti ekki að vera neitt að því að gefa út afrit að þessum pappír. Þær upplýsingar sem gagnagrunnurinn geymir um bílinn hljóta að vera þær upplýsingar sem tekið er mark á og þar sést hvort bíllinn eigi rétt á skilagjaldi og hvort það hafi verið greitt út.

Author:  Twincam [ Sun 23. Jul 2006 06:47 ]
Post subject: 

Já... verð að gera dauðaleit í dag bara og fara svo að hringja símtöl á morgun.. Gæti samt næstum svarið fyrir það að ég hafi skilað þessu inn :? Man að ég fór eitthvað upp í Aðalskoðun áður en ég fór út.. en hvað nákvæmlega ég var að gera man ég ómögulega :oops:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/