bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Er einhvað vit í þessum? e38 740 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=16382 |
Page 1 of 1 |
Author: | zneb [ Wed 12. Jul 2006 02:12 ] |
Post subject: | Er einhvað vit í þessum? e38 740 |
Jæja maður fór að pæla aðeins í þessum e38 drekum og varð hálf veikur. Ekki skemmdu nokkrir reynsluakstrar fyrir, misgóð eintök reyndar. Þessi er pælingin núna: http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=5&BILAR_ID=130329&FRAMLEIDANDI=BMW&GERD=740%20IA&ARGERD_FRA=1993&ARGERD_TIL=1995&VERD_FRA=1150&VERD_TIL=1750&EXCLUDE_BILAR_ID=130329 "Mikið" ekinn og ekkert það spes þjónustusaga miðað við sjálfa þjónustubókina. Hugsa samt að hún sleppi. Kemur til landsins ´98 ekinn um 130.000 sýndist mér. Virtist vera í ágætu standi fyrir utan að felgur eru gott sem ónýtar, skakkar og flagnaðar, 2 ekkert alvarlegir ryðblettir og rafmagn fyrir gardínu og farðegaspegil e-ð að klikka. "Check brake linings" segir tölvan í mælaborðinu. Nokkuð solid í akstri samt fyrir utan víbring vegna felgna og ágætlega snyrtilegur í heildina. Hann er tilbúinn að láta bílinn á 1100 þús. Hvað segið þið, er vit í þessu?Mér finnst það frekar hátt miðað við það sem ég hef verið að sjá þessa fara á og líka þar sem felgur eru ónýtar og bíllinn soldið ekinn. Gott lán er það sem dekkar það kannski upp? Bráðvantar álit ykkar ![]() Einhver sem kannast við hann, er í Grindavík? |
Author: | Hannsi [ Wed 12. Jul 2006 09:51 ] |
Post subject: | |
Þetta eru skemmtilegir bílar það get ég sagt þér hef testað einn svona og þetta spítist alveg áfram ![]() |
Author: | zneb [ Wed 12. Jul 2006 10:09 ] |
Post subject: | |
já, þetta eru alveg merkilega skemmtileg og lipur tæki, sérstaklega miðað við stærð og þyngd. En hvað segiði er þessi akstur einhvað sem ég ætti að hafa miklar áhyggjur af og hvað með prísinn? T.d fór gamli sem sæmi átti einu sinni á ca. 1100-1200þús snemma í vor. Sá var ekinn um 130þús og alveg í topp standi (gat allavega ekki fundið neitt að) á nokkuð flottum 18" felgum og nýlegum dekkjum. Nokkuð sambærilegir bílar að öðru leiti miðað við specs, lit, búnað o.þ.h. |
Author: | Schulii [ Wed 12. Jul 2006 13:31 ] |
Post subject: | |
Allavega er engin ástæða til að rasa útí neitt. Það er til mikið af þessum bílum og sakar ekkert að vera þolinmóður og skoða sig vel um. Ég held að þú ættir að geta fengið svona bíl á þessu verði sem þú yrðir í alla staði ánægður með. Hann er mikið ekinn, sem er ekki alltaf vandamál en þú minnist á að þjónustusagan sé ekkert spes þannig að það er full ástæða til að fara varlega í það minnsta. |
Author: | íbbi_ [ Wed 12. Jul 2006 14:02 ] |
Post subject: | |
mér finnst þetta verð bara...ekkert gott neitt, það er nóg til af bílum. hlýtur að ramba inn á minna ekið eintak í góðu lagi fyrir sömu upphæð.. ég hef allavega séð þá |
Author: | Eggert [ Wed 12. Jul 2006 14:06 ] |
Post subject: | |
Athugaðu hvað kostar að flytja inn sæmilegt eintak frá þýskalandi. www.mobile.de Seinast þegar ég tjekkaði þá eru þessir bílar ódýrir þar. Ég persónulega myndi ekki borga mikið meira fyrir bílinn hérlendis... Mér finnst þessi of dýr miðað við akstur. Íslenski bílamarkaðurinn er heftur og "almenningur" lítur ekki við þessum bíl svona mikið eknum. Sérstaklega ekki á yfir milljón. |
Author: | zneb [ Wed 12. Jul 2006 19:30 ] |
Post subject: | |
Þessir bílar eru frá 5000evrum úti sýnist mér, grunar reyndar að uppgefin km staða í auglýsingum á þeim sé ekki rétt. Allir skrifaðir með rétt undir 200þús km akstur. Hugsa að maður fengi þokkalegan óniðurskrúfaðan fyrir svona 5500 - 6000 evrur, þá er það varla að borga sig. Þjónustubókin sleppur alveg og engin aukahljóð frá vél. Það er í raun lítið hægt að setja útá bílinn fyrir utan felgur og þetta smá pickles sem er svosem alveg eðlilegt. Eins og ég segi þá væri ég ekki að spá í hann nema það væri fyrir lánið, það er ekki ókeypis ef maður tekur það með í spilið. Það gerir bílinn soldið betri í sölu og minni áhætta. En jú þessi akstur gæti á móti gert hann mjög erfiðan í sölu. Maður prófar að gera honum lægra tilboð og ef hann tekur því ekki, þá so be it ![]() |
Author: | Schulii [ Wed 12. Jul 2006 19:39 ] |
Post subject: | |
Athugaðu líka að þetta er eldri vélin í þessum bíl sem þú ert að spá í. Þ.e.a.s þetta er 4.0 lítra vélin sem skiptist út árið 1996 að mig minnir fyrir 4.4 lítra vélina. Ég hef ekki prófað bíl með þeirri vél en mér skilst að það sé mikill munur. Bæði í vinnslu og verði. |
Author: | zneb [ Thu 13. Jul 2006 18:19 ] |
Post subject: | |
jamm, en ég ætla ekki að hengja mig á nýrri vélina, þeir bílar eru orðnir of dýrir og ég myndi heldur ekkert kvarta yfir eldri vélinni ![]() ![]() En kannski er innflutningur bara málið: http://www.autoscout24.de/home/index/detail.asp?ts=7259267&id=1zy3fmp4gps&source=as24_inseratsg_detail_text |
Author: | 500SL [ Sat 15. Jul 2006 17:50 ] |
Post subject: | |
Schulii wrote: Athugaðu líka að þetta er eldri vélin í þessum bíl sem þú ert að spá í. Þ.e.a.s þetta er 4.0 lítra vélin sem skiptist út árið 1996 að mig minnir fyrir 4.4 lítra vélina. Ég hef ekki prófað bíl með þeirri vél en mér skilst að það sé mikill munur. Bæði í vinnslu og verði.
Það er engin afl munur á 4l og 4,4l. 4,4 lítra vélin á að eiða aðeins minna. |
Author: | Kristjan [ Sat 15. Jul 2006 17:51 ] |
Post subject: | |
það munar 40 nm af togi á 4 og 4.4 |
Author: | Alpina [ Sat 15. Jul 2006 18:52 ] |
Post subject: | |
500SL wrote: Það er engin afl munur á 4l og 4,4l. 4,4 lítra vélin á að eiða aðeins minna. Það er GÍFURLEGUR munur á þessum vélum 4.4 er margfalt.. mýkri mótor eyðir minna,, og munar öllu í upptaki frá 0-???? sama hp tala ....286 en togið er 440 vs 400 |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |