bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bangsapabbi https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=16031 |
Page 1 of 1 |
Author: | zazou [ Fri 16. Jun 2006 11:07 ] |
Post subject: | Bangsapabbi |
Eruð þið búnir að lesa mbl í dag? ![]() |
Author: | fart [ Fri 16. Jun 2006 11:30 ] |
Post subject: | |
Þetta fer þér vel vinur.. flott nickname! BANGSAPABBI!!!.. ![]() Sérstaklega þegar þú ert dressed in pink.. huggybear! ![]() Pimpdaddy kraftsmanna. |
Author: | HPH [ Fri 16. Jun 2006 15:44 ] |
Post subject: | |
Var viðtal við Sæma BMW-bangsapabba á MBL. Gæti einnhver línkað síðunni hingað fynn þetta ekki á mbl.is |
Author: | mattiorn [ Fri 16. Jun 2006 15:46 ] |
Post subject: | |
HPH wrote: Var viðtal við Sæma BMW-bangsapabba á MBL.
Gæti einnhver línkað síðunni hingað fynn þetta ekki á mbl.is þetta var í bílablaðinu, held ekki að það sé inná netinu... |
Author: | fart [ Fri 16. Jun 2006 18:05 ] |
Post subject: | |
Það er á netinu og maður getur skoðað með áskrift. |
Author: | bimmer [ Sun 18. Jun 2006 00:00 ] |
Post subject: | |
Getur ekki einhver skannað þetta? |
Author: | Jss [ Sun 18. Jun 2006 00:34 ] |
Post subject: | |
Ég skellti uppúr þegar ég las þetta. ![]() |
Author: | Hemmi [ Sun 18. Jun 2006 11:05 ] |
Post subject: | Re: Bangsapabbi |
Bílaspjallsíður landsins njóta mikilla vinsælda Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is ÞAÐ hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum sú mikla aukning sem hefur orðið á andvísitölubílum á sl. misserum. Fyrir rúmum fimmtán árum, þegar blaðamaður var nýbúin að fá sitt bílpróf, voru meðal fínustu bíla landsins Toyota Corolla GTi, Toyota Celica Supra 2,8 og Mitsubishi Starion. Í dag finnast á götum landsins alls konar bílar sem flestir höfðu talið að ættu ekkert erindi til Íslands, bílar eins og Jagúar, Bentley, Rolls Royce, Dodge Viper, Porsche 911 í öllum hugsanlegum útgáfum, Maserati, Lotus og meira að segja Ferrari. Þó að bílaáhuginn hafi gengið í endurnýjun lífdaga á hagvaxtarskeiðinu um síðustu aldamót má telja líklegt að veraldarvefurinn hafi átt sinn þátt í að blása lífi í bílamenninguna á Íslandi. Á næstu vikum skoðum við því hvaða spjallsíður eru í boði fyrir fróðleiksþyrst bílaáhugafólk. Í þessum tilgangi ræddi bílablað Morgunblaðsins við sex forsvarsmönnum íslenskra bílaspjallsíðna sem sitja fyrir svörum í komandi pistlum. Live2cruize.com Fyrsti óháði bílaspjallvefurinn sem náði miklum vinsældum var www.live2cruize.com. Vefurinn, sem upprunalega var stofnaður af íslenskum áhangendum japanskra bíla til að auka samheldni á meðal áhugfólks bíla af þessum ættum, á rætur sínar að rekja til klúbbs með sama nafni sem var komið á laggirnar 2. febrúar 2001. Stofnendur klúbbsins voru þau Steven Páll og Vilhelmína Eva. Vilhelmína, sem er þekktari undir nafninu Villý, sagðist einmitt vera á kafi í bíladellunni og stóð hún einmitt í vinnu fyrir sportbílasýninguna Bílar&Sport, http://www.bilarogsport.is/syning.html, sem haldin var í Laugardalshöllinni um síðustu helgi. Spjallsíðan hefur frá stofnun notið mikilla vinsælda en spjallmeðlimir höfðu framan af mestan áhuga á breyttum bílum. Breytingarnar á bílunum eru fólgnar í öllu frá einföldum útlitsbreytingum s.s. límmiðum og sérsprautuðum mynstrum, vindskeiðum, lækkuðu fjöðrunarkerfi og til vélar, fjöðrunar og bremsubreytinga til að auka afköst bílanna. Í dag er hópurinn mun breiðari og takmarkast síður en svo af japönskum bílum. Í dag eru rúmlega þrjú þúsund skráðir notendur á L2C eins og spjallsíðan er nefnd í daglegu tali. Líklega eru virkir notendur að minnsta kosti fimm hundruð manns, sem flestir líta á síðuna daglega, láta það vera sitt fyrsta verk á morgnana að skoða ólesinn póst og eru jafnvel með L2C sem upphafssíðu í vefvafranum sínum. L2C heldur samkomur að jafnaði einu sinni í mánuði, oftast á fimmtudögum, og hefur fyrirkomulagið verið sveigjanlegt líkt og hjá flestum öðrum bílaklúbbunum. Vinsælir samkomustaðir hafa verið Bílastæði Kringlunnar og Smáralindar og Miðbakki á móts við Kolaportið. Á samkomur eru öll þau sem geta haft hemil á hægri fætinum velkomin. BMWKraftur.is Bílablað Morgunblaðsins náði tali af tveimur af forsvarsmönnum BMWKrafts á Íslandi, þeim Sæmundi Stefánssyni, sem oft er kallaður bangsapabbi, og Ingimar Róbertssyni. Klúbburinn BMWKraftur var stofnaður 9. júlí 2002 og fylgdi spjallsíðan www.bmwkraftur.is fljótlega í kjölfarið. Klúbburinn hefur jafnframt náð þeim áfanga að vera viðurkenndur í samfélagi alþjóðlegra BMW-klúbba og þykir það mikill heiður. Spjallsíðan er lykillinn að velgengni klúbbsins en þar getur áhugafólk um BMW sameinast um áhugamálið og hefur vöxtur síðunnar sýnt að spjallsíður sem einbeita sér að ákveðinni bílategund eiga fullan rétt á sér. Spjallmeðlimum hefur fjölgað úr fimmtíu notendum eftir fyrsta mánuðinn í rúmlega 1.600 skráða notendur í dag en líklega eru virkir notendur um eða yfir 400. Þeir Sæmundur og Ingimar segja að klúbburinn sé nokkuð virkur þó alltaf megi gera betur; "samkomur hafa verið á þriggja vikna fresti í vetur og verða á tveggja vikna fresti í sumar", en á þessar samkomur er yfirleitt mjög vel mætt. Ingimar segir að haldin hafi verið bíllaus kvöld, sem hann kallar reyndar bjórkvöld, en þá skilja meðlimir bílinn eðlilega eftir heima. Svo hafa verið haldin poolmót og spurningakeppnir auk þess sem það er orðin fastur liður að keyra í halarófu á Bíladaga Bílaklúbbs Akureyrar. Þar er svo slegið upp tjöldum og grillað á kolagrilli með BMW merkinu á lokinu. Tegundartengdir klúbbar hafa lagt mikla áherslu á þjónustu og góð kjör eigendum bílanna til góða og er þar kannski einna mikilvægastur afsláttur í varahlutaverslunum umboðanna auk þess sem margir nýta sér myndasvæði á netinu þar sem meðlimir geta hlaðið upp myndum af bimmunum sínum. Reiknivél BMWKrafts hefur sömuleiðis vakið athygli, en með henni er hægt að reikna út með ágætri nákvæmni hvað innfluttur bíll frá meginlandinu kostar á götuna hér á Íslandi með tilheyrandi tollum og aðflutningsgjöldum. Flestar spjallsíðurnar eru með nokkra spjallflokka og meðal þeirra finnast yfirleitt flokkar þar sem gert er ráð fyrir tæknilegum umræðum. Þar hafa margir fundið lausn á einföldum vandamálum sem geta hrjáð nútíma bíla með því að útlista vandamálið á spjallinu. Oftast eru gagnleg svör komin innan skamms tíma frá reyndum mönnum sem oftar en ekki hafa sérþekkingu á viðkomandi merki. Spjallmeðlimir hafa einnig verið duglegir við að fara í þjóðvegatúra og hafa þá iðulega sent inn myndir og haldið dagbækur þar sem klúbbfélagar geta fylgst með framgangi ferðarinnar. Þessi akstursþrá hefur skilað ökumönnum á fræga staði eins og Nurburgring Nordschleife, sem er Mekka flests bílaáhugafólks. Er þá gjarnan ekið til Egilsstaða, og Norræna tekin yfir á meginlandið svo hægt sé að spretta úr spori á eigin bíl, löglega. Umfjölluninni um bílaspjallsíðurnar verður haldið áfram í næstu viku. http://www.bmwkraftur.is/innflutningur/ ![]() Bíladagar 2005, Gunni "forseti" með fánann góða ![]() Samkoma við Perluna í september árið 2004. |
Author: | Kristján Einar [ Sun 18. Jun 2006 11:28 ] |
Post subject: | Re: Bangsapabbi |
flott grein! ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 18. Jun 2006 13:08 ] |
Post subject: | |
Smá slip þarna hjá mér samt, ég var alveg viss um að klúbburinn væri í samfélagi BMW klúbba en svo er víst ekki - það kemur líklega leiðrétting í framhaldsgreininni ![]() Svo vonum við bara að þessar greinar verði til að ýta enn meira undir virkt klúbbastarf! |
Author: | bimmer [ Sun 18. Jun 2006 13:48 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Smá slip þarna hjá mér samt, ég var alveg viss um að klúbburinn væri í samfélagi BMW klúbba en svo er víst ekki - það kemur líklega leiðrétting í framhaldsgreininni
![]() Svo vonum við bara að þessar greinar verði til að ýta enn meira undir virkt klúbbastarf! Er ekki nær að koma klúbbnum í samfélag BMW klúbba??? ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 18. Jun 2006 14:11 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: bebecar wrote: Smá slip þarna hjá mér samt, ég var alveg viss um að klúbburinn væri í samfélagi BMW klúbba en svo er víst ekki - það kemur líklega leiðrétting í framhaldsgreininni ![]() Svo vonum við bara að þessar greinar verði til að ýta enn meira undir virkt klúbbastarf! Er ekki nær að koma klúbbnum í samfélag BMW klúbba??? ![]() Hehe- jú líklega ![]() |
Author: | Gunni [ Mon 19. Jun 2006 17:27 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: bebecar wrote: Smá slip þarna hjá mér samt, ég var alveg viss um að klúbburinn væri í samfélagi BMW klúbba en svo er víst ekki - það kemur líklega leiðrétting í framhaldsgreininni ![]() Svo vonum við bara að þessar greinar verði til að ýta enn meira undir virkt klúbbastarf! Er ekki nær að koma klúbbnum í samfélag BMW klúbba??? ![]() Ég efast um að það borgi sig, þar sem það kostar og við græðum ekkert á því. Megin ástæðan fyrir því er sú að við eigum frekar erfitt með að komast á meginlandið, nema með miklum kostnaði. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |