bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Chris Bangle. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1596 |
Page 1 of 3 |
Author: | oskard [ Thu 29. May 2003 02:30 ] |
Post subject: | Chris Bangle. |
Ekki eru allir sáttir við hönnun Chris Bangle og mætti segja að það séu fáir BMW aðdáendur sem eru sáttir við hann. Það er búið að starta undriskriftalista sem biður BMW um að reka hann og redda nýjum gæja í hans stað ![]() http://www.petitiononline.com/STOPCB/petition.html |
Author: | Schulii [ Thu 29. May 2003 02:49 ] |
Post subject: | |
bíddu.. hvaða gaur er þetta og hvað er hann búinn að vera að hanna?? |
Author: | Schulii [ Thu 29. May 2003 02:56 ] |
Post subject: | |
ok.. ég fór og fletti gaurnum upp og sá eitthvað x-tilraunadæmi frá honum og það minnti mig einna helst á gamlan Citroen bragga |
Author: | bjahja [ Thu 29. May 2003 04:33 ] |
Post subject: | |
Menn hafa nú kennt honum um alla "ljótu" nýju bílana. |
Author: | Logi [ Thu 29. May 2003 08:49 ] |
Post subject: | |
Ég var sko fljótur að skrifa undir þetta! |
Author: | saemi [ Thu 29. May 2003 09:04 ] |
Post subject: | |
Hann á allavega: Nýju Sjöuna Z4 Nýju Fimmuna Sæmi |
Author: | Svezel [ Thu 29. May 2003 09:25 ] |
Post subject: | |
Það er alveg merkilegt að mér fannst sjöan llót þegar ég sá hana fyrst en núna finnst mér hún massa flott og nú er það sama að gerast með fimmuna. Var að skoða Auto Motor & Sport í Eymundsson þar sem grein var um 530d vs E270d og mér þótti fimman rosalega flott og bara flottari en E benzinn. Síðan hef ég alltaf verið hrifinn að Z4 sem mér finnst einn flottasti roadster sem ég hef séð í langan tíma svo ég er hættur að hata Chris Bangle. Hann er bara að gera eitthvað nýtt og ferskt sem hefur alltaf verið sumum þyrnir í auga. |
Author: | saemi [ Thu 29. May 2003 09:38 ] |
Post subject: | |
Ég verð að segja að ég alveg sáttur við sjöuna, hef aldrei verið eitthvað í nöp við hana. Z4 er ekki alveg að gera það fyrir mig, ég huxa ekkert um hann í sturtunni. En ég var heldur aldrei mikið fyrir Z3 svo það er ekkert skrýtið.... Nýja fimman,.. ég er ekki ennþá sáttur við þessi nýru framan á bílnum, það er eins og að hann hafi farið á "warp speed" og allt aflagast framan á honum! Sæmi |
Author: | Gunni [ Thu 29. May 2003 12:55 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Ég verð að segja að ég alveg sáttur við sjöuna, hef aldrei verið eitthvað í nöp við hana.
Z4 er ekki alveg að gera það fyrir mig, ég huxa ekkert um hann í sturtunni. En ég var heldur aldrei mikið fyrir Z3 svo það er ekkert skrýtið.... Nýja fimman,.. ég er ekki ennþá sáttur við þessi nýru framan á bílnum, það er eins og að hann hafi farið á "warp speed" og allt aflagast framan á honum! Sæmi ég er sammála því með nýrum á fimmunni. Þetta er eitthvað svona blóma eitthvað. en þetta á eflaust eftir að venjast, ég trúi ekki öðru. mér finnst z4 samt vera ansi magnaður, og hefði ekkert á móti því að eiga 1 stk svoleiðis á planinu hjá mér ![]() |
Author: | iar [ Thu 29. May 2003 13:59 ] |
Post subject: | Re: Chris Bangle. |
oskard wrote: Það er búið að starta undriskriftalista sem biður BMW um
að reka hann og redda nýjum gæja í hans stað ![]() http://www.petitiononline.com/STOPCB/petition.html Og hvar á maður svo að skrifa undir til að hvetja BMW til að halda honum? ![]() |
Author: | Moni [ Thu 29. May 2003 14:00 ] |
Post subject: | |
Ætli menn hafi ekki hugsað svona líka þegar E36, E38 og E39 komu fyrst... mikil útlitsbreyting... Ég er a.m.k. alveg sáttur við sjöuna og fimmuna, finnst þeir massaflottir! ![]() |
Author: | hlynurst [ Thu 29. May 2003 14:08 ] |
Post subject: | |
Ég er sáttur við hann. T.d. finnst mér Z4 vera ótrúlega gott stökk frá Z3 sem mér fannst vera ljótur, Coupinn var reyndar ágætur. Mitt álit á þessu er bara það að menn þurfa að venjast nýju bílunum. Ég er allaveg búinn að því. ![]() |
Author: | Benzari [ Thu 29. May 2003 15:03 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() saemi wrote: Z4 er ekki alveg að gera það fyrir mig, ég huxa ekkert um hann í sturtunni
hvaða týpur eru þá mest í uppáhaldi þegar boddíþrifin standa yfir? |
Author: | hlynurst [ Thu 29. May 2003 20:58 ] |
Post subject: | |
Ætli hann sé ekki að hugsa um 6-una. ![]() |
Author: | arnib [ Thu 29. May 2003 22:41 ] |
Post subject: | |
hlynurst wrote: ... gott stökk frá Z3 sem mér fannst vera ljótur, Coupinn var reyndar ágætur.
![]() Grófur! Finnst þér Z3 Coupe flottari en roadster?? ![]() ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |