bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Innflutningur....Virðisauki....menn úti ? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=15936 |
Page 1 of 1 |
Author: | krullih [ Fri 09. Jun 2006 01:22 ] |
Post subject: | Innflutningur....Virðisauki....menn úti ? |
Sælir, ég hef núna þegar gert einn þráð um bíl sem var hérna heima en þegar menn hækka verðið um 207þ á einum degi þá er nóg komið. Þannig ég hóf leiðangur á mobile.de og fann ágætis kagga þar.. Núna er ég með nokkrar spurningar: Hvaða menn eru í þessu að gera þetta fyrir þóknanir? Afhverju eru sumir bílar þarna úti þar sem hægt er að fá virðisaukann tilbaka...og er hægt að mixa það ? Hvað eru bílar lengi að koma hingað ? Með von um góð svör.... |
Author: | basten [ Fri 09. Jun 2006 04:57 ] |
Post subject: | |
Þeir sem eru í þessu úti eru auðvitað að gera þetta fyrir þóknanir. (þeir lifa ekki á loftinu ![]() Þóknunin er um 1500 euro minnir mig sem er ekki svo mikið m.v. að hann þarf að leggja út fyrir kostnaði eins og lestarferðum, borga bensín á bílinn við akstur til umskipunarhafnar, leigubílar til að komast á milli lestarstöðva og svo skattur af þessu öllu. Bílar sem hægt er að fá skattinn (MwSt.) endurgreiddan eru yfirleitt bílar sem eru í eigu fyrirtækja eða þeirra sem geta innskattað af bílunum. Þetta er EKKI hægt að mixa ef ekki er boðið upp á þetta. PS. þarft að passa að stundum er í textanum á bílaauglýsingun að MwSt. sé endurgreiddur og þá er verðið oft m.v. að búið sé að endurgreiða skattinn. Bílar eru um 2 vikur að koma til landsins, m.v. að þeir séu tilbúnir á númerum. Vona að þetta svari þínum spurningum. |
Author: | krullih [ Fri 09. Jun 2006 10:28 ] |
Post subject: | |
Þakka góð svör.... ég hef var að vonast til að smári væri með msn, eða einhvern svona instant client en er hann ekki bara m. síma og smarihamburg@hotmail.com ? |
Author: | gstuning [ Fri 09. Jun 2006 10:38 ] |
Post subject: | |
krullih wrote: Þakka góð svör.... ég hef var að vonast til að smári væri með msn, eða einhvern svona instant client en er hann ekki bara m. síma og smarihamburg@hotmail.com ?
bjallaðu bara í hann, ekki eins og honum leiðist ekki nóg að sitja í lestum allann daginn |
Author: | Djofullinn [ Fri 09. Jun 2006 11:15 ] |
Post subject: | |
Mæli með Georg í Úranus, kostar 100-150 þús og þú færð bílinn afhentann á númerum á íslandi. Hann getur einnig fjármagnað kaupin fyrir menn. Hann hefur flutt inn 2 bíla fyrir mig og ég var mjög sáttur í bæði skiptin |
Author: | noyan [ Fri 09. Jun 2006 12:19 ] |
Post subject: | |
Ég held að Smári sé á Flórída núna og verði þar næstu tvær vikurnar. |
Author: | Jss [ Fri 09. Jun 2006 13:03 ] |
Post subject: | |
Djofullinn wrote: Mæli með Georg í Úranus, kostar 100-150 þús og þú færð bílinn afhentann á númerum á íslandi. Hann getur einnig fjármagnað kaupin fyrir menn. Hann hefur flutt inn 2 bíla fyrir mig og ég var mjög sáttur í bæði skiptin
Ég mæli líka mikið frekar með Georg, 898-5202, hef verslað við bæði Georg og Smára og hjá Georg stóðst allt 110% og bíllinn alltaf jafn góður. Því miður get ég ekki sagt það sama um Smára, bíllinn var ekki sá sem ég hélt og ekki skv. lýsingum frá honum. PS. Þess má þó geta að það er ekki allt Smára að kenna þar sem gaurinn sem Smári keypti bílinn af virðist hafa verið allt annað en heiðarlegur. Þó er ég á því að Smári hefði átt að taka eftir að minnsta kosti einhverju af þessu. |
Author: | basten [ Fri 09. Jun 2006 15:36 ] |
Post subject: | |
Allavega er mín reynsla af Smára ekkert nema góð og ég veit að hann er mjög samviskusamur. Hinsvegar er það oft þannig að þegar menn eru að kaupa bíla sem eru ódýrari en aðrir bílar sömu tegundar, þá má búast við því að það sé e-ð sem orsaki verðmuninn. |
Author: | Geirinn [ Fri 09. Jun 2006 16:41 ] |
Post subject: | |
Jss wrote: Djofullinn wrote: Mæli með Georg í Úranus, kostar 100-150 þús og þú færð bílinn afhentann á númerum á íslandi. Hann getur einnig fjármagnað kaupin fyrir menn. Hann hefur flutt inn 2 bíla fyrir mig og ég var mjög sáttur í bæði skiptin Ég mæli líka mikið frekar með Georg, 898-5202, hef verslað við bæði Georg og Smára og hjá Georg stóðst allt 110% og bíllinn alltaf jafn góður. Því miður get ég ekki sagt það sama um Smára, bíllinn var ekki sá sem ég hélt og ekki skv. lýsingum frá honum. PS. Þess má þó geta að það er ekki allt Smára að kenna þar sem gaurinn sem Smári keypti bílinn af virðist hafa verið allt annað en heiðarlegur. Þó er ég á því að Smári hefði átt að taka eftir að minnsta kosti einhverju af þessu. Smári var mun nákvæmari á lýsingu fyrir vin minn en mig myndi ég segja, myndi þó ekki hika við að nota hann aftur... en ég myndi þá senda honum lista til að fara eftir. Mín reynsla af bílakaupum var bara engin þegar ég keypti minn bíl og ég reiddi mig of mikið á hann. Bíllinn er samt langt frá því að vera lélegur... bara smotterí í gangi. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |