bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Glasahaldari í E46
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=15933
Page 1 of 1

Author:  Andrynn [ Thu 08. Jun 2006 23:00 ]
Post subject:  Glasahaldari í E46

sælir sælir


Pabbi minn var að kaupa sér BMW E46 320d Touring 2002 og ég var eikkað að skoða hann hjá honum um daginn, og ég tók eftir því en ég trúði því nú samt varla. Er virkilega enginn glasahaldari fyrir þá sem sitja frammí? :shock:

Það er glasahaldari í hnakkpúðanum aftur í. En þá þarf að leggja sætið niður svo að það er hægt að nota hann.

ER virkilega ekki glasahaldari þarna eða hef ég ekki leitað nógu vel? :(

Author:  Geirinn [ Thu 08. Jun 2006 23:20 ]
Post subject: 

Ég man ekki eftir því að hafa séð glasahaldara frammí í BMW en athugaðu þetta:

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=13568

Author:  Jss [ Fri 09. Jun 2006 00:08 ]
Post subject: 

Mig minnir nú að þetta fáist original frá BMW í E46 (90% viss), skal reyna að muna að athuga það í vinnunni á morgun.

Author:  finnbogi [ Fri 09. Jun 2006 00:34 ]
Post subject: 

ég er allavegana 100% viss að það sé til orginal frá bmw cup holder frammí
var með félaga mínum að purukeyra E46 320d 4 dyra og það var glasa haldari við hliðná stýrinu frammí

Author:  Geirinn [ Fri 09. Jun 2006 16:46 ]
Post subject: 

Eiginlega skrítið að það sé ekki orginal í t.d. E34 og E32... nóóóóg pláss þar fyrir cupholders.

Author:  bjahja [ Fri 09. Jun 2006 17:00 ]
Post subject: 

Maður á bara ekkert að vera að drekka eithvað á meðan maður er að keyra. Ef þú átt bmw þá áttu að keyra þannig að þú hefur bara engan tíma til að drekka :twisted:


(en það vill svo skemmtilega til að 0,5l flaska passar akkúrat á hlið í hólfið á e36 þannig að ég þarf ekki glasahaldara :wink: )

Author:  Geirinn [ Fri 09. Jun 2006 17:03 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Maður á bara ekkert að vera að drekka eithvað á meðan maður er að keyra. Ef þú átt bmw þá áttu að keyra þannig að þú hefur bara engan tíma til að drekka :twisted:


(en það vill svo skemmtilega til að 0,5l flaska passar akkúrat á hlið í hólfið á e36 þannig að ég þarf ekki glasahaldara :wink: )


E30 líka :naughty:

Author:  Lindemann [ Fri 09. Jun 2006 17:09 ]
Post subject: 

e34 líka :wink:

Author:  fixxxer [ Fri 09. Jun 2006 18:49 ]
Post subject: 

Það er amk enginn cupholder frammí hjá mér. Ég fann samt á ebay eitthvert apparat sem virtist vera orginal dót fyrir e46 (allt er nú aukabúnaður á þessum bíl :shock: ) Maður setti þetta bara í hólfið sem er á milli sætanna. Minnir reyndar að maður þurfti að setja púðann milli sætanna upp til að nota amk aftari haldarann.
Annars passar 0,5l flaska ágætlega í hólfið eins og það er...verst fyrir farþegann að hann þarf að halda á sinni flösku :?

Author:  HPH [ Sat 10. Jun 2006 04:27 ]
Post subject: 

0,5L Flaska passar í hólfið fyrir framan gírstögina á E30.
Verst með hliðar hólfinn þau eru full af CD hjá mér og það er ekkert plás eftir.

Author:  Stulloz [ Thu 15. Jun 2006 00:24 ]
Post subject: 

Ég pantaði í fyrra glasahaldara hjá Jóhanni í B&L.
Hann liggur milli sætanna, ég tók úr bílnum innbyggðan farsíma (stóra símtólið) sem var á milli sætanna frammí.
Nýja glasahaldarinn er tvöfaldur.
Kostaði einhverja þúsundkalla og var einfaldur í notkun.
Hér geturðu séð hvað hægt er að fá:
Image

Author:  Twincam [ Thu 15. Jun 2006 13:24 ]
Post subject: 

iss.... Polo er með 1-2-3-4 flöskuhaldara.. 8)

Maður getur stungið endalaust af flöskum sitthvoru meginn við handbremsuna í þessarri elsku... Verst bara þegar maður þarf svo að setja handbremsuna á... :lol:

Author:  IngiSig [ Thu 15. Jun 2006 23:08 ]
Post subject: 

Glasahaldarar í bíla eru Amerísk fituhlúnkauppfinning sem Asíubúar hermdu síðan eftir. :rofl:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/