bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
B&L - BMW xDrive days https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=15775 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarki [ Sat 27. May 2006 19:42 ] |
Post subject: | B&L - BMW xDrive days |
Fór á þessa kynningu í dag, frábærlega vel heppnað. Fór með félaga mínum sem á það nýjan BMW að það var hringt í hann og honum boðið. Semsagt smá fyrirlestur og kynning á xDrive svo ekið á 500 og 300 bílum, x náttúrlega, að litlu kaffistofunni og þar biðu X5 og X3 bílar, keyrt upp í bláfjöll og hemlun æfð svo í gryfju nálægt litlu kaffistofunni og maður fékk að prófa xDrive kerfið og kerfið sem bremsar bílinn niður í brekkum. HillDescentControl ef ég man rétt. Svo aftur til baka á 300 og 500 bílunum og snittur, gosdrykkir og spjall í B&L. Virkilega skemmtilegt að mínu mati og B&L eiga hrós skilið. Ég spjallaði aðeins við þýska gaurinn, á þýsku, og var að spyrja um læst drif í e90, hann sagði að ég yrði bara að keyra á hlið um bæinn í e30 og eiga gott samstarf við dekkjaframleiðendur ![]() |
Author: | Geirinn [ Sat 27. May 2006 19:48 ] |
Post subject: | |
Þurfti að skreppa á Selfoss um daginn með félögum mínum og í baksýnisspeglinum sjáum við 500 bíl og X bíl koma á svaka ferð og þeir taka fram úr bílum trekk í trekk sem er svo sem í lagi... en mér fannst þeir persónulega alltof tæpir hvað varðar yfirsýn yfir hvort möguleiki hafi verið á bíl á móti... þeir voru bara í eltingaleik. En hljómar kúl ![]() |
Author: | Steinieini [ Sun 28. May 2006 17:14 ] |
Post subject: | |
Bölva því að hafa ekki komist ![]() ![]() |
Author: | Stefan325i [ Sun 28. May 2006 17:15 ] |
Post subject: | |
Pabbi fékk svona boð í fyrra og ég fór auðvita (óboðinn) með honum ![]() Þessi dagur var alveg geðveikur á til myndir af þessu og gaman að sjá hvessu góðir bílar þetta eru. Fórum í enhverja grifju hjá bláfjallaveginum, og prufuðum Xdrivið á einum stað var bílin með annað afturdekkið á lofti og framdekkið hinumeginn og þýski gaurinn vaggaði bílnum með einum putta. og svo átti maður bara að gefa í og bíllin klóraði sig ur þessu. Bremsuprufunin var sérstaklega skemtileg við áttum að fara upp í 90 kmh og ýta eins fast á bremsuna og við gátum en það var snjór og kalki öðurmegin en þurt malbik hinumeginn, og þvílikt sem þetta stoppaði. |
Author: | Bjarki [ Sun 28. May 2006 22:34 ] |
Post subject: | |
Maður fékk að taka vel á bílunum, þeir sögðu "akið bílunum eins og þið akið ykkar bílum" þannig maður fór að sjálfsögðu varlega enda ekki um ódýra bíla að ræða. Gaurinn tók einmitt þetta trikk með að láta bílinn vagga og taka svo af stað þ.e. með grip á 2 hjólum h&v megin á sitthvorum ás. Þetta er náttúrlega markaðsdeildin sem stendur fyrir þessu þannig þeir vilja fyrst og fremst selja bílana. Ég sagði að ég yrði bara varahlutakaupandi a.m.k. næstu 10 árin ![]() |
Author: | Fjarki [ Sun 28. May 2006 22:50 ] |
Post subject: | |
Í þetta seinn var þetta sent á alla Land Cruiser 120 eigendur, bréf, í neðst í því bréfi stóð, vonandi megum við hafa samband við þig útaf þáttöku og eitthvað, leið og ég sá þetta,,,,,,,,,,,,,,,, ,,,,þá bara ekki séns að maður komist í þetta. Litlar líkur á að það væri hringt í mann. Hefði feitt verið til í að fara. Ekkert smá pirraður Góðar stundir |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |