bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

ástandskoðun
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1575
Page 1 of 2

Author:  Halli [ Sun 25. May 2003 23:31 ]
Post subject:  ástandskoðun

hvernig komu bílarnir hjá ykkur útúr skoðuninni er mikið sem þarf að laga????? :lol:

Author:  bjahja [ Sun 25. May 2003 23:46 ]
Post subject: 

bara svona lala, vantar spyrnufóðringu að aftan öðrumegin hjá mér :?, síðan lekur hann kælivatni (slag í vatnsdæluna) :? :? og svo er lofthosan mín smá rifin (skammast mín nú fyrir að hafa ekki tekið eftir því :oops:). Síðan þetta klassíska, smit frá gírkassanum.
Já og svo vantar útihitaskynjaran minn og einhverja loftstokka sem beina lofti á bremsurnar.
Þarf bráðum að fara að skipta um kúplingu.
Og síðast en ekki síst vantar ljósið fyrir aftan ljósarofann minn.
Þannig að all in all er þetta bara allt í lagi, ekkert major.

Author:  joipalli [ Mon 26. May 2003 01:45 ]
Post subject: 

Bjarni lést þú ástandskoða bílinn þinn á samkomunni?

Ég sá þig ekki, ætlaði að skoða "grænu" innréttinguna! :D

Author:  bjahja [ Mon 26. May 2003 02:06 ]
Post subject: 

Já, þeir tróðu mér inn síðast. Það voru næstum því allir farnir :?

Author:  jonthor [ Mon 26. May 2003 09:58 ]
Post subject:  lítið að

<ISO 9001 BMW gallar>
Fyrri eigandi skipti um spindilkúlur og það virðist hafa verið gert það illa að B&L mældi með að skipta aftur. Það var smá smit frá gírkassa.
</ISO 9001 BMW gallar>
Svo var komið gat á öxulhosu.

Hann sagði reyndar að það lægi ekki á smitinu og spindilkúlunni en ráðlagði mér að skipta um öxulhosu bara upp á öryggið.

Annars fannst honum bíllinn bara sérstaklega góður :)

JÞS

Author:  hlynurst [ Mon 26. May 2003 12:24 ]
Post subject: 

Hjá mér var það spindilkúla (eins og hjá flestum), kúplingin tók ofarlega sem benti til þess að hún væri slitin, bremsuklossar að aftan þunnir og smit hjá gírkassa, þar sama og hjá bjahja. Það verður skipt um spindilkúluna sem fyrst. :)

Author:  GHR [ Mon 26. May 2003 12:50 ]
Post subject: 

Olíuleki í stýri
Drif byrjað að smita smá olíu meðfram pakkdós
Drifskaftsupphengja

Bilanagreiningartölvan sagði :

Ventill sem loftar úr bensíntanki
Of rík blanda (annað hvort tölvukubburinn eða O2 skynjarar)
OAT sýnir -37°C (vantar skynjara)

BÚIÐ

Author:  flamatron [ Mon 26. May 2003 17:45 ]
Post subject: 

1. Demparar að framan. Ég Vissi að þeir væru lélegir.
2. Drifskaftspúði. :hmm:
3. Bremsudælna fór öfugumegin við demparan. Búinn að redda því.:biggrin:
4. Sveifaráspakkdós. ss smá leki aftur úr vél.. :burn:
5. Gúmmí hosa, loft intakið, orðið lélegt. Búinn að panta nýtt.

Og Tölvan:
Ventill sem loftar úr bensíntanki. Kostar 7000. kr. :argh:
..
Kom ágætlega út svosem, þetta verður allt komið í lag um mánaðarmótin, þannig að ég er bara nett sáttur með þetta.. Frábært hjá þeim í B&L að bjóða svona fría ástandsskoðun, annars hefði þetta ekki verið lagar í bráð. :clap:

Author:  Moni [ Mon 26. May 2003 19:40 ]
Post subject: 

hlynurst wrote:
kúplingin tók ofarlega sem benti til þess að hún væri slitin :)


Ég hélt að með vökvakúplingu þá væri ekki hægt að segja að kúplingin væri að verða búin af því að hún tekur ofarlega...
Ég er nú ekki að fullyrða neitt, bara það sem ég hef heyrt :D

Author:  Haffi [ Mon 26. May 2003 22:50 ]
Post subject: 

Tölvan: Skynjari í farþegasætinu fyrir airbagið eitthvað sambandslaus.

Undir bílnum: Smá smit frá skiptingu en ekkert sem þarf að huga að neitt í bráð.

Inní Bílnum: 3 perur farnar :)

Annars sagði hann að allt annað væri í toppstandi.

Author:  Dr. E31 [ Tue 27. May 2003 14:14 ]
Post subject: 

Ekki var mikið að hjá mér:

1. Millibilsstöng (Tie rod, center)
2. Afturdempari lekur h/m
3. Handbremsa ofarlega
4. Smá olíusmit frá vél (pakkdós)

Og útfrá tölvugreininguni, kódi frá súrefnisskynjurunum (sem eru nýjir), höldum við Hafþór hjá TB að við séum komnir nær gangtruflana vandamálinu, en það kemur í ljós seinna.

Author:  Schulii [ Tue 27. May 2003 16:10 ]
Post subject: 

Sælir bimma fíklar. Ég er nýr hérna og er að skoða það sem er búið að vera að fara fram hérna.. er það satt að B&L er að bjóða uppá fría ástandsskoðun? ..er eitthvað sem nýr gaur þarf að vita hérna??
hlakka til að mæta hérna í framtíðinni.. er búinn að vera einmana bimma sjúklingur í tíu ár

Author:  Haffi [ Tue 27. May 2003 16:14 ]
Post subject: 

Nahh það var nú bara þessi eini dagur :(

Author:  Guest [ Tue 27. May 2003 16:14 ]
Post subject: 

325ix wrote:
Sælir bimma fíklar. Ég er nýr hérna og er að skoða það sem er búið að vera að fara fram hérna.. er það satt að B&L er að bjóða uppá fría ástandsskoðun? ..er eitthvað sem nýr gaur þarf að vita hérna??
hlakka til að mæta hérna í framtíðinni.. er búinn að vera einmana bimma sjúklingur í tíu ár


Velkominn, fría ástandsskoðunin var í tilefni B&L/BMWkrafts Samkomunar sem var haldin síðasliðinn laugardag (24. maí), Þá fengu þeir sem vildu fría ástandsskoðun, en það gerist auðvita ekki dags daglega.

Author:  Dr. E31 [ Tue 27. May 2003 16:17 ]
Post subject: 

Anonymous wrote:
325ix wrote:
Sælir bimma fíklar. Ég er nýr hérna og er að skoða það sem er búið að vera að fara fram hérna.. er það satt að B&L er að bjóða uppá fría ástandsskoðun? ..er eitthvað sem nýr gaur þarf að vita hérna??
hlakka til að mæta hérna í framtíðinni.. er búinn að vera einmana bimma sjúklingur í tíu ár


Velkominn, fría ástandsskoðunin var í tilefni B&L/BMWkrafts Samkomunar sem var haldin síðasliðinn laugardag (24. maí), Þá fengu þeir sem vildu fría ástandsskoðun, en það gerist auðvita ekki dags daglega.


Þetta var ég þarna uppi. :roll: Það þarf nú að fara kippa þessari sjálfvirku innskráningu í lag, ha? :wink:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/