bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

"Umboðsbíll"
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=15713
Page 1 of 1

Author:  burgerking [ Tue 23. May 2006 22:01 ]
Post subject:  "Umboðsbíll"

Hvað þýðir það svona þegar að bíll er kallaður "umboðsbíll?"

Bara smá forvitni í mér :)

Author:  Djofullinn [ Tue 23. May 2006 22:07 ]
Post subject: 

Keyptur nýr hjá umboðinu

Author:  ArnarK [ Wed 24. May 2006 13:51 ]
Post subject: 

Eru ekki allir nýjir bílar keyptir hjá umboði? Ég er eitthvað að misskilja

Author:  Einsii [ Wed 24. May 2006 13:56 ]
Post subject: 

ArnarK wrote:
Eru ekki allir nýjir bílar keyptir hjá umboði? Ég er eitthvað að misskilja

Trúelga verið að benda á að hann sé ekki innfluttur af jóni jónssini notaður..
Semsagt keyptur nýr á íslandi beint frá Bull & Lýgi :)

Author:  bimmer [ Wed 24. May 2006 13:58 ]
Post subject: 

Einsii wrote:
ArnarK wrote:
Eru ekki allir nýjir bílar keyptir hjá umboði? Ég er eitthvað að misskilja

Trúelga verið að benda á að hann sé ekki innfluttur af jóni jónssini notaður..
Semsagt keyptur nýr á íslandi beint frá Bull & Lýgi :)


Þú meinar Bæverskir & Laglegir.

Author:  Jss [ Thu 25. May 2006 14:08 ]
Post subject: 

Einsii wrote:
Semsagt keyptur nýr á íslandi beint frá Bull & Lýgi :)


Er samt ekki lágmark að stafsetja Lygi rétt ef það er á annað borð verið að "skjóta" svona. ;) :D

Annars hljómar þetta mikið betur hjá Þórði "bimmer".

Author:  Hannsi [ Thu 25. May 2006 14:32 ]
Post subject: 

réttaþýðinginn er allavega asnaleg :lol:

Author:  Bjarki [ Thu 25. May 2006 17:28 ]
Post subject: 

Mín reynsla af B&L er góð, góð þjónusta, eiga góðan lager og hlutirnir sem maður pantar berast hratt.
En mér finnst samt litlu skipta hvort bílar séu fluttir inn af umboði eða notaðir. Oftast eru bílar sem fluttir eru inn notaðir nokkra ára miklu minna ryðgaðir en bílar af sömu árgerð innfluttir nýjir af umboði. Eini kosturinn sem ég sé við bíla innflutta nýja er að hægt er að fá upplýsingar um km-stöðu bifreiðarinnar í hverri skoðun hjá umferðarstofu og þannig hægt að staðfesta km tölu ef maður er í vafa. Verra með bíla innflutta notaða en aldrei nein fyrirstaða ef bíllinn stenst væntingar.

Author:  Tommi Camaro [ Thu 25. May 2006 23:39 ]
Post subject: 

Bjarki wrote:
Mín reynsla af B&L er góð, góð þjónusta, eiga góðan lager og hlutirnir sem maður pantar berast hratt.
En mér finnst samt litlu skipta hvort bílar séu fluttir inn af umboði eða notaðir. Oftast eru bílar sem fluttir eru inn notaðir nokkra ára miklu minna ryðgaðir en bílar af sömu árgerð innfluttir nýjir af umboði. Eini kosturinn sem ég sé við bíla innflutta nýja er að hægt er að fá upplýsingar um km-stöðu bifreiðarinnar í hverri skoðun hjá umferðarstofu og þannig hægt að staðfesta km tölu ef maður er í vafa. Verra með bíla innflutta notaða en aldrei nein fyrirstaða ef bíllinn stenst væntingar.

en umboðinnu finnst það þú færð ekki afgreidan númera ramma frá þeim nema bíllinn sé keyftur hjá þeim.
síðan eru þessar gengisbreyttingar alveg að fara með þá þarna upfrá loka sem mér var gefið upp 26-28 hækkaði í 34 þús milli þess sem ég pantaði það.hvernig er það er þetta ekki gengistryggt frá ykkur frá kaup degi, vinni í þessu réttingarbrassa og er í sambandi við mörg umboð en bogl er það eina sem er í vandarmálum með gengið ?!?!? skrítið!
(ekki illa meint en það er samt topp þjónusta þarna og hlutinir kom mjög hratt til þeir)

Author:  Lindemann [ Fri 26. May 2006 01:35 ]
Post subject: 

Jss wrote:
Einsii wrote:
Semsagt keyptur nýr á íslandi beint frá Bull & Lýgi :)


Er samt ekki lágmark að stafsetja Lygi rétt ef það er á annað borð verið að "skjóta" svona. ;) :D

Annars hljómar þetta mikið betur hjá Þórði "bimmer".


En svo ég vísi nú í rétta nafnið......ég hef aldrei séð neina landbúnaðarvél þarna(nema land rover já)............Er fyrirtækið að selja landbúnaðartæki? (bara forvitni) :lol:

Author:  Bjarki [ Fri 26. May 2006 01:54 ]
Post subject: 

Flottast að vera með svarta Würth númeraramma eða bmwkrafts rammana.

Bifreiðar og Landbúnaðarvélar er frá gamalli tíð held ég, finnur þá ekki þannig í símaskránni, ekkert talað um þetta heiti á heimasíðunni nema í umfjöllun um sögu fyrirtækisins. Nafnið hentar ímynd fyrirtækisins sennilega ekki vel eins og þeir vilja hafa hana í dag.

Author:  Lindemann [ Fri 26. May 2006 02:11 ]
Post subject: 

Samt ekkert talað um á síðunni að fyrirtækið hafi verið með e-ð umboð fyrir landbúnaðarvélar....bara að það hafi verið stofnað með því að sameina einhver umboð til að flytja inn bíla frá rússlandi(mjög svipað og þeir gera í dag :lol: )

Author:  Fjarki [ Fri 26. May 2006 02:56 ]
Post subject: 

hósthóst Land Rover, færð ekki meira landbúnaðartæki

Author:  iar [ Fri 26. May 2006 07:59 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
Samt ekkert talað um á síðunni að fyrirtækið hafi verið með e-ð umboð fyrir landbúnaðarvélar....bara að það hafi verið stofnað með því að sameina einhver umboð til að flytja inn bíla frá rússlandi(mjög svipað og þeir gera í dag :lol: )


Ég las einhverntíman viðtal við að mig minnir Ernu Gísla í blaði og þar kom fram að Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hafi í raun aldrei selt landbúnaðarvélar (okok.. kannski fyrir utan Land Rover og Lödu Sport :lol:) en semsagt aldrei alvöru Landbúnaðarvélar.

Tommi Camaro wrote:
síðan eru þessar gengisbreyttingar alveg að fara með þá þarna upfrá loka sem mér var gefið upp 26-28 hækkaði í 34 þús milli þess sem ég pantaði það.hvernig er það er þetta ekki gengistryggt frá ykkur frá kaup degi, vinni í þessu réttingarbrassa og er í sambandi við mörg umboð en bogl er það eina sem er í vandarmálum með gengið ?!?!? skrítið!


Ég er sammála Tomma að þetta er áhætta sem fyrirtæki þurfa að taka og ættu ekki að láta bitna á viðskiptavininum en þó þeim til varnar þá hefur gengið jú hækkað mjög mikið síðustu mánuði og líklegt að þeir séu að taka mikið af hækkunum á sig þó eitthvað bitni á viðskiptavinum. Til dæmis þróun á tollafgreiðslugengi Evru það sem af er árinu:

janúar 75,98
febrúar 75,06
mars 78,09
apríl 86,99
maí 94,03

:shock:

Author:  fart [ Fri 26. May 2006 09:00 ]
Post subject: 

Neytandinn gleymir gjarnan að gengistryggja sig. Lítið mál að vera með gjaldeyrisreikning.. og um leið og eitthvað er pantað þá er keyptur gjaldeyrir í hemabankanum, til að hedga hugsanlegar hækkanir. T.d. þegar keyptur er bíll, þá er lítið mál að kaupa sér gjaldeyri sem samsvarar tolli+vaski og eyða út gengisáhættu ef bíllinn dettur inn í landið eftir að tollgengi breytist.

Þetta er samt verulega pirrandi.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/