Page 1 of 1

Lærðu að keyra eins og maður

PostPosted: Thu 22. May 2003 01:24
by Jss
Mér datt í hug að setja inn smá könnun varðandi hverjir fóru á "Lærðu að keyra eins og maður" námskeiðið hjá B&L þar sem við erum að fara í heimsókn hjá þeim á laugardaginn. Svo er að sjálfsögðu gaman að vita þetta.

PostPosted: Thu 22. May 2003 01:25
by Jss
Já svo ég gleymi ekki að segja það þá tók ég þátt í þessu og hafði mjög gaman og gott af þessu.

PostPosted: Thu 22. May 2003 08:39
by bebecar
Sama hér... ótrúlegt hvað stöðugleikabúnaðurinn og allt þetta virkar! Hræddur um að gamli E21 færi bara beint áfram í við svona "stunt" :wink:

PostPosted: Thu 22. May 2003 18:14
by iar
Er þetta það sama og Ökuleikni BMW og B&L í apríl í fyrra? Ef svo er þá já og hafði gott og gaman af.

PostPosted: Thu 22. May 2003 20:09
by Svezel
Ég skemmti mér konunglega í þessu, ekki oft sem maður fær að taka burnout og powerslide á nýjum 525...kennarinn var reyndar ekki að fíla það :wink:

PostPosted: Thu 22. May 2003 23:12
by Jss
iar wrote:Er þetta það sama og Ökuleikni BMW og B&L í apríl í fyrra? Ef svo er þá já og hafði gott og gaman af.


Jújú, það er þetta sem ég er að tala um.

PostPosted: Fri 23. May 2003 08:59
by bebecar
Og þá er það svo spurningin - hver ykkar var það sem að keyrði út í móa og skemmdi E39 undirvagn?

PostPosted: Fri 23. May 2003 22:04
by Jss
Það var allaveganna ekki ég. Enginn sem var á sama tíma og ég, en jú við verðum að finna sökudólginn. :x

PostPosted: Fri 23. May 2003 23:25
by iar
Enginn í þeim hópi sem ég var í fór út í móa. Hafði ekki heyrt þetta fyrr.. en alveg við því að búast svosem. Myndi ekki kalla viðkomandi sökudólg, það voru jú B&L sem voru að bjóða fólki að þjösnast á E39. ;-)

Mér tókst reyndar að festa eina keilu ansi hressilega í frambrettinu. :oops:

PostPosted: Mon 26. May 2003 00:59
by Guest
iar wrote:Mér tókst reyndar að festa eina keilu ansi hressilega í frambrettinu. :oops:


Ég held að þeir séu ófáir sem gerðu það þó ég hafi alfarið sloppið fram hjá þeim en þá er bara spurningin hvort maður hefði ekki getað farið hraðar.