bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

hver er ca kostnaður að flytja bil með norrænu til islands?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=15417
Page 1 of 1

Author:  gulli [ Sun 07. May 2006 01:43 ]
Post subject:  hver er ca kostnaður að flytja bil með norrænu til islands?

veit einhver hvað það kostar cirka bát að flytja heim bíl með norrænu, þá meina lika hvernig ferlið er.. tolla dæmið og allt saman??

Author:  Danni [ Sun 07. May 2006 01:51 ]
Post subject: 

http://www.bmwkraftur.is/innflutningur/ hér er góð reiknivél sem gefur þér svona ca kostnað ;)

Author:  mjamja [ Sun 07. May 2006 01:53 ]
Post subject: 

hérna er verðlisti yfir norrænuferðir frá dk

hér er reiknivél fyrir tolla og gjöld

Author:  gulli [ Sun 07. May 2006 02:50 ]
Post subject: 

ætli það sé bara sama tolla verð þegar maður kemur með bíl hingað með norrænu og þegar maður notar atlandsskip. (í innflutningi)

Author:  xzach [ Sun 07. May 2006 13:01 ]
Post subject: 

Flutningurinn á bílnum kostaði mig 16.500kr en fyrir mig var það eitthvað svipað. Svo það er andvirði bílsins + 16.500kr margfaldað með toll+gjöld margfaldað með vsk.
Veit ekki hvað kostar að flytja inn bíl með skipi en þá hendiru því bara inn fyrir 16.500kr. Svo það er ódýrara að fara með hann í Norrænu. En þá er bara spurninginn með það hvort þú viljir eyða tíma í það (Betra kannski að vera bara heima og vinna fyrir þessum aukakostnaði). Tók mig 4eða5 daga í að komast til Íslands frá Hanstholm.
En ég hefði ekki viljað sitja heima og bíða eftir bátnum. Fannst helvíti gaman að keyra honum í gegnum þvert Þýskaland og Danmörk.

Tolladæmið. Eitt það skemmtilegasta sem ég hef lennt í. ALLIR ÞESSIR PAPÍRAR. Þarf að hafa allt tilbúið á Seiðisfirði til þess að tollafgreiða hann þar. Sem sagt borga tollinum penge.

Author:  Bjarki [ Sun 07. May 2006 17:31 ]
Post subject: 

Í fyrrasumar var frakt fyrir einn bíl 2300DKK en núna er komið 9% olíugjald þ.e. hækkun v/ verðhækkanna á olíu.
En svo er núna komið e-ð uppskipunargjald á Íslandi 6900ISK þannig m.v. gengið þá er þetta 40þús í það heila.
Ekki alveg sáttur við þetta uppskipunargjald á Íslandi því skrifstofan í DK segir að það eigi að vera sama verð fyrir alla viðskiptavini, sama hvort þeir borgi á Íslandi eða í DK, kemur í ljós á morgun.
Frakt => maður setur bílinn bara í skip en ferðast ekki sjálfur með ferjunni.

Author:  Bjarkih [ Sun 07. May 2006 23:44 ]
Post subject: 

Ef þú tekur bílinn með norrænu þá er eins gott fyrir þig að hafa allar tollskýrslur tilbúnar þegar mætt er á seyðisfjörð. Annars þarftu að bíða meðan skýrslan er græjuð, föxuð á sýslumanns skrifstofuna þar og svo þarf að borga öll gjöld þar, áður en þú getur farið með bílinn upp á Egilstaði og látið skoða hann og sett hann á númer. Ef þú ætlar að leigja rauð númer til að keyra frá Seyðisfirði upp á Egilstaði þá verðuru að gera það á Egilstöðum eða annari skoðunarstöð, það er ekki hægt niðri á Seyðisfirði.

Author:  xzach [ Mon 08. May 2006 01:29 ]
Post subject: 

Má bæta því við að þú þarft að forskrá bíllinn til þess að geta tollafgreitt hann. Mæli með að þú ljósritir skráningarskirteinið áður en þú sendir það til US, því þú þarft afrit hjá tollinum.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/