bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Sumarhátið Bílabúðar Benna
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=15392
Page 1 of 1

Author:  BeMostWanted [ Fri 05. May 2006 17:48 ]
Post subject:  Sumarhátið Bílabúðar Benna

Sæl veriði, það á að vera haldin smá sumarhátið hjá okkur í Bílabúð Benna um helgina. Á staðnum verður úrval flottra bíla og ýmis tilboð í gangi auk veitinga. Endilega látið sjá ykkur og skoðið það sem er á boðstólum.

Author:  ///Matti [ Fri 05. May 2006 18:57 ]
Post subject: 

Will do :wink:

Author:  Helgi M [ Fri 05. May 2006 19:15 ]
Post subject: 

Flott ég mæti,, en er ekki betra að segja kannski á hvaða dögum það verður opið ? og klukkan hvað.. :D

Author:  pallorri [ Fri 05. May 2006 19:34 ]
Post subject: 

Helgi M wrote:
Flott ég mæti,, en er ekki betra að segja kannski á hvaða dögum það verður opið ? og klukkan hvað.. :D


neinei bara aukaatriði :roll: :)

Author:  arnibjorn [ Fri 05. May 2006 19:39 ]
Post subject: 

Dezzice wrote:
Jæja gott fólk þeir hjá Bílabúð Benna hafa beðið okkur að aðstoða sig örlítið við að setja saman smá stemmingu í kringum bílasýninguna sem þeir ætla að vera með núna á laugardaginn (6. maí).

Þeir ætla að skaffa pulsur og kók og gotterí á liðið :D

Sýningin er frá 12-16:00

Okkur vantar einhverja flotta bíla til að stilla upp á svæðinu og bið ég menn að hafa samband við mig á villy@centrum.is og bjóða sig fram ef þeir geta. Mæting fyrir uppstillingu er 11:00 og þeir menn verða að vera til rúmlega fjögur niðfrá. Það er auðvitað í góðu lagi ef einhver einn eða tveir bara hreinlega verða að losna fyrr. Þetta eru takmörkuð pláss og verður valið á þetta í samráði við Benna.

Okkur vantar einnig einhverja þrjá aðila sem eru tilbúnir að bjóða sig fram í að dreifa pulsum og gotterí á liðið. Þeir sem hafa áhuga á því eru beðnir að hafa samband á villy@centrum.is líka.


:)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/