Quote:
Við komu til landsins mega ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, hafa með sér tollfrjálst þann farangur, t.d. fatnað og annan ferðabúnað, sem þeir fóru með til útlanda. Ferðamenn mega ennfremur hafa meðferðis tollfrjálsan varning sem fenginn er í ferðinni eða í tollfrjálsri verslun hér á landi (við brottför eða heimkomu) fyrir allt að 46.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 23.000 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 23.000 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld miðað við verðmæti sem umfram er. Börn yngri en 12 ára skulu njóta að hálfu þeirra réttinda er að framan greinir.