bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursvegir https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=15274 |
Page 1 of 1 |
Author: | fixxxer [ Sat 29. Apr 2006 14:03 ] |
Post subject: | Akstursvegir |
Var að horfa á gamlan Fifth Gear þátt áðan. Þar voru þeir að keyra um sveitaveg í Porsche Cayman. Þetta var svona ekta akstursvegur þar sem hraðinn var ekkert endilega mikill, en mikið um beygjur og gaman að keyra á bíl sem liggur vel. Nú þegar maður er kominn á sumardekkinn og hitinn actually kominn yfir frostmark langar mig að fara að kynnast bílnum mínum betur. Eruð þið með einhverjar uppástungur varðandi skemmtilega vegi nálægt Reykjavík þar sem maður keyrir ekkert endilega ofurhratt, en nær að njóta aksturseiginleika bílsins? |
Author: | siggir [ Sat 29. Apr 2006 14:22 ] |
Post subject: | Re: Akstursvegir |
Nesjavallavegurinn er auðvitað frábær akstursvegur, Jeremy Clarkson talaði um hann sem einn besta akstursveg í heimi, Hvalfjörðurinn er líka mjög skemmtilegur. Svo er einhver spotti "á bak við" Hafnafjörð sem er gaman að keyra. Þar er samt stundum nokkur umferð. Þú kemst inn á hann einhversstaðar í Setberginu. |
Author: | Aron Andrew [ Sat 29. Apr 2006 14:46 ] |
Post subject: | Re: Akstursvegir |
siggir wrote: Nesjavallavegurinn er auðvitað frábær akstursvegur, Jeremy Clarkson talaði um hann sem einn besta akstursveg í heimi, Hvalfjörðurinn er líka mjög skemmtilegur. Svo er einhver spotti "á bak við" Hafnafjörð sem er gaman að keyra. Þar er samt stundum nokkur umferð. Þú kemst inn á hann einhversstaðar í Setberginu.
Ertu að meina Heiðmörkina? |
Author: | siggir [ Sat 29. Apr 2006 15:18 ] |
Post subject: | Re: Akstursvegir |
Aron Andrew wrote: siggir wrote: Nesjavallavegurinn er auðvitað frábær akstursvegur, Jeremy Clarkson talaði um hann sem einn besta akstursveg í heimi, Hvalfjörðurinn er líka mjög skemmtilegur. Svo er einhver spotti "á bak við" Hafnafjörð sem er gaman að keyra. Þar er samt stundum nokkur umferð. Þú kemst inn á hann einhversstaðar í Setberginu. Ertu að meina Heiðmörkina? Spottinn sem er merktur með bláu, ég veit ekkert hvað þetta heitir. ![]() *EDIT* Þetta heitir Elliðavatnsvegur. |
Author: | Zkari [ Sat 29. Apr 2006 15:32 ] |
Post subject: | |
Bláa Lónsvegurinn |
Author: | Saxi [ Sat 29. Apr 2006 15:57 ] |
Post subject: | |
Úff ég hugsaði bara Þingvellir þegar ég las þetta. Reyndar eru þeir vegir töluvert þröngir þannig að það er eins gott að þú mætir engum ef þú ert að taka á dósinni. Eins væri ekkert gott að missa bílinn þarna því það er ekkert sem tekur við þér nema hraun. Vegurinn inni í þjóðgarðinum sem liggur meðfram vatninu (sjá kort ) og vegurinn sem liggur í áttina að Uxahryggjum (Passið ykkur þegar malbikið endar) eru gargandi snilld. Stórskemmtilegar beygjur, hólar og hæðir. Meira að segja mjög skemmtilegar krappar Z beygjur á einum stað á uxahryggjaveginum (hair pins) Bara enda á því að segja að ég hef aldrei þorað að keyra af einhverri alvöru þarna en hraðatilfinningin er töluvert mikil þó maður sé ekki á útopnu. Ég er alls ekki að hvetja til einhvers ofsaaksturs þarna, þetta hefur bara verið svona "drauma akstursvegur" hjá mér í svoldinn tíma ![]() http://thingv.flashmap.gagarin.is/thingv1-is.html Saxi |
Author: | fixxxer [ Sat 29. Apr 2006 17:52 ] |
Post subject: | |
Jæja, fór Nesjavallarveginn...baaaara gaman!!! ![]() Ekki ástæðulaust að BMW er pure driving pleasure. Fór með næstum 1/4 tank á 100 km rúnti ![]() ![]() Ég get alveg tekið undir þessi orð með Clarkson, þótt hann hafi eflaust mun meiri reynslu í þessum málum. Það er samt svo hentugt að það eru engin tré meðfram veginum eins og víða erlendis til að skyggja útsýni. Maður sér oftast næstu beygjur og getur því tekið þetta nokkuð safe. Tók vel á því á köflum þar sem ég hafði góða yfirsýn á veginn og umferð. Eru samt 2-3 beygjur þarna sem geta verið stórhættulegar, sérstaklega ein þegar maður fer leiðina tilbaka ![]() ![]() En ég er ótrúlega hrifinn af þessum bíl! Aksturseiginleikar, bremsur og vélarafl er magnað og hrein unun að keyra svona vegi. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |