bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Einkanúmer: Verð
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=14308
Page 1 of 1

Author:  E36HADDI [ Sat 04. Mar 2006 00:45 ]
Post subject:  Einkanúmer: Verð

Guden Tag.

Er að forvitnast hvort að einhver hér á spjallborðinu hafi hugmynd um hvað það kosti að koma einkanúmeri á bílinn?.

Author:  Benzari [ Sat 04. Mar 2006 00:57 ]
Post subject: 

Guten abend.
Hefurðu heyrt um GOOGLE :?:

Hvað kostar að fá einkamerki ?
[Það kostar 30.700 kr. að fá einkamerki á bifreið en 28.100 kr. á bifhjól. 25.000 kr. eru vegna réttindagjalds einkamerkja, en rétturinn gildir í átta ár og þarfnast þá endurnýjunar. Sérhvert skráningarmerki kostar 2.600 kr. og svo kostar 500 kr. að skrá einkamerki á ökutæki.]





Hvað er lengi verið að framleiða skráningarmerki ?
Framleiðsla skráningarmerkja tekur 3 daga, þ.e. merkin eru komin úr framleiðslu á þriðja degi frá pöntunardegi. Það er hins vegar hægt að flýta framleiðslu skráningarmerka um einn dag, en fyrir það ber að greiða sérstakt flýtigjald. [Sé flýtigjald greitt við forskráningu eru skráningarmerkin tekin af lager og eru því tilbúin um leið og fastanúmeri er úthlutað.]





--------------------------------------------------------------------------------

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Afgreiðslutími 08:00 - 16:00



--------------------------------------------------------------------------------


--------------------------------------------------------------------------------

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Afgreiðslutími 08:00 - 16:00
Forsíða >Ökutækjaskráningar >Algengar spurningar
--------------------------------------------------------------------------------

Author:  Angelic0- [ Sun 05. Mar 2006 13:05 ]
Post subject: 

30.700 -- rétt..

en þú borgar líka bara 30.700kr í fyrsta skiptið.. og svo 1400kr þegar þú skráír á milli bíla !

Author:  gunnar [ Sun 05. Mar 2006 13:20 ]
Post subject: 

En hvernig er það, svo gildir þetta í átta ár, hvað svo, þarf maður þá að kaupa það aftur ?

Author:  Angelic0- [ Sun 05. Mar 2006 13:30 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
En hvernig er það, svo gildir þetta í átta ár, hvað svo, þarf maður þá að kaupa það aftur ?


yebz :)

Author:  gunnar [ Sun 05. Mar 2006 14:16 ]
Post subject: 

heimska helvíti..

Ætla fá mér einkanúmer á Jimnyinn... Verður smá kaldhæðni í gangi þar ;)

Author:  gunnar [ Sun 05. Mar 2006 14:56 ]
Post subject: 

Er þessi listi hjá US yfir númerin alveg tæmandi, það gæti ekkert vantað í hann. Sé að einkanúmerið sem mig langar í er ekki tekið þar en mér finnst samt eins og ég hafi séð það.

Getur verið að það vanti eitthvað í það ?

Author:  Angelic0- [ Sun 05. Mar 2006 14:57 ]
Post subject: 

nei, held að hann sé tæmandi !

Author:  Danni [ Sun 05. Mar 2006 15:17 ]
Post subject: 

Það tók mitt númer einhverjar vikur að koma á listann. Held að þetta er bara uppfært á mánaðarfresti. Er ekki 100% á því samt.

Author:  Angelic0- [ Sun 05. Mar 2006 15:19 ]
Post subject: 

hvar finn ég aftur fkn listann !

Author:  gunnar [ Sun 05. Mar 2006 15:22 ]
Post subject: 

http://www.us.is/id/3045

Us.is er mesta drasl síða í heimi. Ömurlegt að finna hlutina þarna inni.

Author:  flamatron [ Sun 05. Mar 2006 16:30 ]
Post subject: 

Þarft bara að borga 25.þús eftir 8. ár

Author:  Danni [ Sun 05. Mar 2006 18:14 ]
Post subject: 

Einkanúmer geta samt verið mjög dýr ef þú færir þau oft á milli bíla. Þarf minnir mig að borga skráningargjald og svo líka geymslugjald fyrir hinar plöturnar.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/