bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bmw 325 með M3 vél.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=14287
Page 1 of 2

Author:  Biggi Ellerts. [ Thu 02. Mar 2006 22:56 ]
Post subject:  Bmw 325 með M3 vél.

Langaði að vita meira um Bmwinn sem var eitthvað að keppa uppá braut og gerði það bara gott var á lágum 13 sec og spólaði helling var þá á radial dekkjum,2ja dyra dökkgrár ekkert fallegur en heill ,var þetta ekki 325is með ísetann M3 mótor? var hann 3jaL eða 3,2L?,hvað varð um þennan bíl er hann til enþá?Man hann tók 540 bíl uppá braut og 540 bíllinn bræddi úr. 8) [/b]

Author:  moog [ Thu 02. Mar 2006 22:57 ]
Post subject: 

gerðu bara leit að gstuning...

Author:  ///Matti [ Thu 02. Mar 2006 23:10 ]
Post subject: 

Nei er hann ekki að tala um e36 325is sem Tommi Camaro átti??

Author:  bjahja [ Thu 02. Mar 2006 23:13 ]
Post subject: 

Gunni gst á e30 svartann með e36 m3 motor (s50b30)
Tommi camaro átti gráan e36 coupe bara með venjulegum 325 mótor og læstu drifi.
Þetta hljómar bara eins og einhver misskilningur, ert að rugla þessum 2 saman.

Author:  Roark85 [ Fri 03. Mar 2006 01:30 ]
Post subject: 

er hann ekki bara að tala um bilinn hans kidda 335i

Author:  Jónki 320i ´84 [ Fri 03. Mar 2006 01:33 ]
Post subject: 

Roark85 wrote:
er hann ekki bara að tala um bilinn hans kidda 335i


Hmm fór hann einhvern tímann uppá braut??

Author:  flamatron [ Fri 03. Mar 2006 01:41 ]
Post subject: 

Held hann sé að tala um 325i hans Tomma, hann var að virka ágætlega.!!!

Author:  Svezel [ Fri 03. Mar 2006 02:01 ]
Post subject: 

flamatron wrote:
Held hann sé að tala um 325i hans Tomma, hann var að virka ágætlega.!!!


hann fór samt engar lágar 13, háar 14 ef ég man rétt

Author:  Biggi Ellerts. [ Fri 03. Mar 2006 08:49 ]
Post subject: 

Held að þetta sé bíllinn sem þeir í Gstuning voru með, þetta var gamla boddíið sirka 87-91?,snilldarbíll algjör sleeper...ef þeir hefðu komið þessu afli almennilega oní götu hefði hann örugglega verið í lágum 12,líklega léttur bíll, var þetta turbo?,held ekki, er ekki að tala um 4ra dyra turbóinn hans Stéfáns,anway takk fyrir svörin.p.s.Man einhver besta tímann á þessum bíl með .Mvélinni?.

Author:  flamatron [ Fri 03. Mar 2006 08:59 ]
Post subject: 

æjá auðvitað.!!

Author:  gstuning [ Fri 03. Mar 2006 09:24 ]
Post subject: 

13,27
satt og sannað
tjékkað og kannað
8)

þessi bíll er farinn á hauganna
vélina er í bútum og er verið að gera upp,
þegar hann kemur tilbaka þá fer ég 12.xx no problemo á radial
götudekkjum

Author:  Biggi Ellerts. [ Fri 03. Mar 2006 18:10 ]
Post subject: 

Takk fyrir það og gangi ykkur vel með GStuning.

Author:  Stefan325i [ Sat 04. Mar 2006 00:02 ]
Post subject: 

Þessi bíll var á leið í heilmálun þegar það var keyrt á hann fyrir utan heima hjá Gunna,

Hér eru nokkrar myndir af þessum bíl og ég get sagt ykkur það að það voru margir rúntarnir í þessum sem voru skemmtilegir.

Annars var bílstjóra hurðin á þessum bíl var beygluð þannig að hurðin sem þið sjáið á myndunum er af hinum fræga IM870 reyndar húddið líka :o (Nú eiga allir að segja ((( VÁ Í ALVÖRU ))))hann var svo geðveikur hérna í denn)

Annars er 325i vélinn úr þessum bíl í blæjunni hans danna, frammsætinn eru í turingnum hans Oskarsd, læsinginn er í Rauða 325i hans Hlynst .húddið af honum er á túringnum hans jóns Ragnars ( sem er samt af im870) og fleira og fleira þannig að andi hans lifir þannig séð.

Image
Image
hérna sjáið þið litinn sem var valin sem átti að príða bílinn.
Image
þetta lýtur út fyrir að vera slæmt en þessi bíll var ótrúlega heill, vantaði bara málingar slettu á hann

Author:  Knud [ Sat 04. Mar 2006 16:06 ]
Post subject: 

Mjög smekklegt hvernig húddið helst uppi :)

Author:  pallorri [ Sat 04. Mar 2006 16:09 ]
Post subject: 

Knud wrote:
Mjög smekklegt hvernig húddið helst uppi :)


Já ég var einmitt að spá í því
er þetta einhver aukabúnaður??

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/