bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Veit einhver.........
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=14138
Page 1 of 1

Author:  525 [ Fri 24. Feb 2006 13:00 ]
Post subject:  Veit einhver.........

......eitthvað um þennan bíl. Þetta er 530 touring, 2001, og er til sölu hjá Bílabúð Benna. Fluttur inn í febrúar í fyrra. Þrír eigendur hér á landi síðan skv. Ekju. Upphaflega var sett á hann 3.790.000 en er auglýstur í dag og þá búið að lækka verðið um 1.1 millu. Skyldi vera eitthvað bogið við þennan bíl eða var upphaflega verðið bara svona óraunhæft?

http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=C ... _ID=141114

Author:  noyan [ Fri 24. Feb 2006 15:21 ]
Post subject: 

Ef að þú ert að hugsa um að fá þér svona bíl þá myndi ég klárlega skoða þennan hérna....
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=13786

Author:  íbbi_ [ Fri 24. Feb 2006 17:14 ]
Post subject: 

ég sá sona bíl, 01 530d ekin 130 og eitthvað minnir mig, calypso-red með Mpakka, þ.e.a.s stuðurum sílsum, og leðri á 1890.. reyndi að hringja en það var ekki svarað

Author:  Djofullinn [ Fri 24. Feb 2006 17:18 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
ég sá sona bíl, 01 530d ekin 130 og eitthvað minnir mig, calypso-red með Mpakka, þ.e.a.s stuðurum sílsum, og leðri á 1890.. reyndi að hringja en það var ekki svarað
What? Hér á íslandi eða??

Author:  ta [ Fri 24. Feb 2006 17:50 ]
Post subject: 

ég hringdi, það var vitlaust verð , átti að vera 2.890þ

Author:  íbbi_ [ Fri 24. Feb 2006 17:54 ]
Post subject: 

það hlaut að vera... ég hefði tekið hann umhugsunarlaust annars

Author:  Djofullinn [ Fri 24. Feb 2006 17:57 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
það hlaut að vera... ég hefði tekið hann umhugsunarlaust annars
Einmitt :) Hljómaði sem díll ársins

Author:  joipalli [ Thu 16. Mar 2006 17:20 ]
Post subject: 

Sæll, 525

Ég var einmitt að skoða þennan bíl, hann er mjög heillegur og frábært að keyra hann. Ekkert finnanlegt slit í stýrisbúnaði eða í vélinni. Mjög vel farinn að innan. Það vantaði reyndar einhverja færslu í þjónustubókina.

Vinsamlegast athugaðu að ég keyrði hann einungis, lét ekki ástandsskoða hann.

Það voru örfáar skellur á lakkinu og vantaði lista á hliðina á honum.

En dragðu þetta saman, hann er ekinn 94.000 km og orðinn 5 ára gamall. Þetta er vissulega gott verð fyrir mjöög vel útbúin bíl.

Til skemmtunar getur þú skoðað http://www.bmw.de -> Automobil -> Gebrauchte Automobil og smellt verðunum inn í bmwkraftur.is/innflutningur

Þetta er ekkert alveg útúr kú :D

P.s. ég er ekki tengdur þessum bíl á neinn hátt, hann er í eigu bílabúð benna.

*Edit* http://www.bilaland.is/bilaland/utkoma/default.asp?Order=1&Test=1&From=/bilaland
ON370 BMW 530I 2003 54000 Km 3.270.000 kr

Þennan væri örugglega hægt að fá lauslega undir þremur milljónum. Nýrri, minna keyrður og stór fallegur litur.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/