bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
lítrar á hundraði https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=141 |
Page 1 of 2 |
Author: | ozeki [ Sun 06. Oct 2002 13:12 ] |
Post subject: | lítrar á hundraði |
Sælir strákar (eru nokkrar stelpur hérna annars? ![]() Ég keypti E39 520i fyrir um ári síðan. Fyrsti bimminn, og kom alveg einstaklega skemmtilega á óvart. Hreint frábær bíll ! Nú er ég búin að rúlla þetta í eitt ár og fór að skoða eyðsluna, þetta er jú sæmilega stór fólksbíll vegur rúm 1500 kíló, keyrður 150k með steptronic skiftingu. Það kemur á daginn að í sumar var hann með þetta 10,1 til 10,7 á hundraðið ! Síðasta vetur var hann að taka þetta 11,2 til 12,5 Þá voru dagar þar sem ég kom að bílnum algerlega freðnum úti á bílastæði, opnaði hurðina, hallaði mér inn, rétt snéri lyklinum og vélin malaði á 700 rpm eins og hún væri heit meðan ég las á mælaborðið að það voru -19 gráður úti. Ég keyri að mestu 15 mín. túra úr og í vinnu, en svo eru langir túrar inn á milli og eitthvað rúntað líka. Ég er ekkert með sundurliðað hvað eyðslan er í hverju tilfelli, þetta er svona meðaltal og vegur þá sjálfsagt mest túrarnir úr og í vinnu alla daga. Nú væri gaman að heyra í ykkur hinum, sérstaklega þeim með 3-5 lítra vélar, hvernig eyðslan er. Menn hafa verið að væna þessa bíla (stærri Benz - BMW .... etc ) um mikla eyðslu. Haldið fram þumalputtareglu um minnst líter per hundrað kíló í eyðslu á hundraðið. Hvað segjið þið .. ? Ozeki. |
Author: | GHR [ Sun 06. Oct 2002 14:28 ] |
Post subject: | |
Ég átti BMW 520i '91, helvíti skemmtilegur bíll. Hann var ekkert að eyða svakalega, kannski 10.5-11.5 bara í venjulegum akstri (samt ekki afa akstri). Núna á ég 750i '93, en get ekki sagt til um eyðsluna því er vélin er ekki að ganga nema á 6 cyl. Ég held að þeir séu almennt að eyða um 17-22 lítrum/hundraðið (í venjulegum akstri, og eitthver ósköp með gjöf). En maður verður bara að fórna peningunum í bensín ef maður vill keyra kraftmikla og stóra bíla ![]() Vildi að bensínið myndi kosta sama hér og útí USA ![]() |
Author: | Haffi [ Sun 06. Oct 2002 20:57 ] |
Post subject: | |
Well ég er á 520 '89 E34 og ég er að fá eyða fáránlega miklu.. t.d. fer ég ekki lengra en 600km á 80 lítrum utanbæjar og ekki meira en 350km á 80 lítrum innanbæjar, þannig að ég er ekki sáttur hvað bensínið varðar svo er það að fara hækka þannig að ég er að tjúllast á þessu ![]() |
Author: | Svezel [ Sun 06. Oct 2002 22:42 ] |
Post subject: | |
Þetta finst mér ótrulega lítil eyðsla. Ég á líka E39 520i með steptronic og hann er að eyða c.a. 15 hjá mér. Hann er reyndar chippaður svo það gæti skýrt eitthvað. Er hann ný-stilltur hjá þér? |
Author: | Djofullinn [ Mon 07. Oct 2002 00:40 ] |
Post subject: | |
Já mér finnst alveg ótrúlegt hvað 520i bíllinn þinn Gummi (minn núna) er að eyða litlu, 11 á hundraði innanbæjar. |
Author: | Propane [ Mon 07. Oct 2002 09:10 ] |
Post subject: | eyðsla |
hehe ég átti 318iA hann eyddi 13-15L innanbæjar. Sá bíll fór í hakk á laugardaginn ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 07. Oct 2002 11:20 ] |
Post subject: | |
Ég er alveg sáttur við eyðsluna á mínum M5 E34 3.6 lítra. Hann er að eyða 16.5 -18 innanbæjar, fer eftir akstri, hann hefur held ég aldrei farið yfir 18. Nú fór ég út úr bænum um helgina og hann var í 10 lengst af, en fór svo í ellefu í heildina. Alls ekki ósáttur við þetta. |
Author: | hlynurst [ Mon 07. Oct 2002 12:34 ] |
Post subject: | |
Bíllinn minn er ekki að eyða miklu. Þetta er eitthvað um 12-13 lítrar á hundraðið innanbæjar og um 10 lítrar utan. Það er allavega minna en ég bjóst við. ![]() |
Author: | Stefan325i [ Mon 07. Oct 2002 12:47 ] |
Post subject: | |
Minn var að eiða svona 11-13 innanbæjar en 9-10 á langkeyrslu, en nu er termósradið mitt eithvað fuckt up þanni að bíllin gengur allt og kaldur fer ekkyfir 1/4 og er á langkeirslu á þessu bláa, ég á annað termo þarf bara að prufa að setja það í, hann er að fara með svona 17-18 l ![]() |
Author: | GHR [ Mon 07. Oct 2002 13:18 ] |
Post subject: | |
Djöfull wrote Quote: Já mér finnst alveg ótrúlegt hvað 520i bíllinn þinn Gummi (minn núna) er að eyða litlu, 11 á hundraði innanbæjar.
Já ég veit, geðveikt skrýtið, það trúði enginn mér um eyðsluna miðað við 6 cyl, 150 hö. BARA GÓÐ OG RÉTT STILLT VÉL ![]() Hvernig gengur annars að selja hann? Ertu búinn að fá eitthver ásættaleg tilboð? |
Author: | GauiJul [ Mon 07. Oct 2002 13:20 ] |
Post subject: | |
Minn er að eyða svona í kringum 20 hérna innanbæjar stundum 18 stundum 22 fer allt eftir akstri en svo er hann að fara með 10 - 12 úti á landi |
Author: | bebecar [ Mon 07. Oct 2002 14:22 ] |
Post subject: | |
Gummi 750 wrote: Quote: Já mér finnst alveg ótrúlegt hvað 520i bíllinn þinn Gummi (minn núna) er að eyða litlu, 11 á hundraði innanbæjar. Já ég veit, geðveikt skrýtið, það trúði enginn mér um eyðsluna miðað við 6 cyl, 150 hö. BARA GÓÐ OG RÉTT STILLT VÉL ![]() Hvernig gengur annars að selja hann? Ertu búinn að fá eitthver ásættaleg tilboð? Ertu að spyrja mig? |
Author: | GHR [ Mon 07. Oct 2002 15:12 ] |
Post subject: | |
Neibb, er að spyrja Djöfullinn!! |
Author: | Djofullinn [ Mon 07. Oct 2002 15:45 ] |
Post subject: | |
Já stórskrítið miðað við það að þessi bíll er keyrður 252.000 km. Nei ekki búinn að selja hann ennþá ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 07. Oct 2002 16:02 ] |
Post subject: | |
Bróðir minn er búin að reyna að selja Opel Astra 99 módel í meira en ár, vonlaust. Einn sem ég þekki er búin að vera með Passat á sölu í tvær vikur og ekki einu sinni spurt um hann. Ég held að við höfum meiri möguleika með okkar bimma þar sem það er ekki til neitt of mikið af þeim og ágætis verð á þeim. Það er alltaf verið að grennslast fyrir um minn en vantar ennþá á að menn geri manni tilboð... voða miklar þreyfingar. hvað ætlar þú að setja á bimmann? |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |