bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bóna nýjann bíl
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=14088
Page 1 of 2

Author:  Fjarki [ Tue 21. Feb 2006 22:57 ]
Post subject:  Bóna nýjann bíl

Jæja, er kominn með nýjann bíl úr kassanum, og vil láta hann líta þannig út, eftir nokkur ár.

Mælið þið með einhverju sérstöku bóni eða bara bóninu sem þið segið best í öllum bónþráðunum sem eru komnir. Samt ágætt að fá upptalningu á því aftur :lol:

En hvernig tuskur eða grysjur eru menn að nota, og hvar fáið þið þær, vil eitthvað sem rispar ekki bílinn minn.

Svo er ég með ljósa innréttingu, leður. Er það bara vatn og tuska til að þrífa, og það svo bara leðuráburður á sætin og innréttingaefni á rest, er maður þá góður eða. Þæilegt að hafa bara dökka inréttingu :(

Author:  Jökull [ Tue 21. Feb 2006 23:02 ]
Post subject: 

hvernig bíl ertu með og hvernig á litinn ?

Author:  Fjarki [ Tue 21. Feb 2006 23:04 ]
Post subject: 

Þetta er nú reyndar Volvo :oops: en langaði að spyrja ykkur sérfræðingana, og hann er gull sanseraður á litinn. Lunar Gold Met 469 :lol:

Author:  Geirinn [ Tue 21. Feb 2006 23:04 ]
Post subject: 

Kittið sem ég og félagi minn erum að nota er eitthvað á þessa leið:

Svampur, Meguiars NXT bón + svampur, Meguiars bílasápa, fata og trefjatuska til að taka bónið af (minnir mig að það heiti), tjöruhreinsir (ekki mælt með ULTRA eins og sést í öðrum þræði hér) og vaskaskinn.

Er ekki viss hins vegar hvað menn eru að nota á innréttinguna.

Meguiars vörurnar fást í Gísla Jónssyni og neeeei ég er ekki að vinna þar.

Svo bara klassíska meðalkröftuga háþrýstidælan.

Er ekki svo ríkur að hafa leðursæti í bílnum en ég myndi halda að rök tuska og leðuráburður væri málið, veit þó ekki hversu oft á að bera á. Það er annar þráður hér einhverstaðar sem hefur nafn á góðum þannig.

edit: Og fáðu þér endilega BMW sem fyrst ;)

Author:  Jökull [ Tue 21. Feb 2006 23:16 ]
Post subject: 

Bara að muna það að þegar þú þrífur bílinn að ekki sápa hann neitt fyrr en það er bara svona drulluskán eftir ná allri tjöru af fyrst.
Ef þú ferð að sápa(svampþvo) ofaní tjöru og það stuff þá risparu.Bara nóg af vatni og sápu "sápan smyr á milli laks og svamps",
það sama gildir um bónið, rakur og hreinn bónsvampur og hreint yfirborð. þú ættir að vera bara nokkuð góður með ferð uppí Gísla J :)

Author:  Fjarki [ Tue 21. Feb 2006 23:17 ]
Post subject: 

Já, það verður kannski BMW næst 8)

En já, til ótrúlegt úrval af þessum bónvörum, alltof mikið eiginlega.

Og svo eitt annað, er menn bara að bóna álfelgur, eða eru menn með eitthvað annað leynitrix.

Author:  Fjarki [ Tue 21. Feb 2006 23:20 ]
Post subject: 

Akkurat, spurning hvort maður prófi ekki vörurnar hjá Gísla.

Já nákvæmlega, tjaran er hræðileg, fer yfirleitt alltaf mestur tími í svoleðis rugl, sprauta 2 og háþrýstingur af, alger snilld, hvenrig ætli menn hafi farið að áður en hún kom til sögunar

Author:  Jökull [ Tue 21. Feb 2006 23:26 ]
Post subject: 

þú getur keypt felgusýru hjá Gísla ef ég man rétt sem maður þinnir út með vatni, hún tekur bremsurykið en ekki tjötuna. það er allt á lagi að bóna felgur það er bara að nenna því. Ekki skemtilegt verk :)

Author:  Geirinn [ Tue 21. Feb 2006 23:31 ]
Post subject: 

Félagi minn notaði einmitt svona felgusýru hjá sér og þvílíkur munur!

Author:  Fjarki [ Tue 21. Feb 2006 23:36 ]
Post subject: 

Já, er það sniðugra en tjöruhreinsir

Author:  Fjarki [ Tue 21. Feb 2006 23:43 ]
Post subject: 

Svo er eitt, það er leður á stýrinu, er það áburðurinn góði líka eða??

Author:  Jökull [ Tue 21. Feb 2006 23:58 ]
Post subject: 

jájá hreinsaðu bara allt leður með hreinsi og áburð,
en það er eitt sem má ekki gera það er að setja einhvern gljáa skit á plastið inní bílnum maður á bara að nota plast hreinsi til að halda plastinu inní hreinu og möttu :)

Author:  hlynurst [ Wed 22. Feb 2006 00:00 ]
Post subject: 

Fjarki wrote:
Svo er eitt, það er leður á stýrinu, er það áburðurinn góði líka eða??


Ég myndi nú ekki bera einhverja drullu á stýrið hjá þér. Held að það sé alveg nóg að þurrka bara af því með rökum klút.

Author:  arnibjorn [ Wed 22. Feb 2006 00:01 ]
Post subject: 

hlynurst wrote:
Fjarki wrote:
Svo er eitt, það er leður á stýrinu, er það áburðurinn góði líka eða??


Ég myndi nú ekki bera einhverja drullu á stýrið hjá þér. Held að það sé alveg nóg að þurrka bara af því með rökum klút.


Ef það er verið að setja einhver svona efni á stýrin eiga þau ekki til að verða rosalega sleip? Eða gerist það kannski ekki með svona leður áburð?

Author:  íbbi_ [ Wed 22. Feb 2006 00:27 ]
Post subject: 

ég þrýf nú bara nýja bílin sem ég er á eins og aðra bíla, það sem ég geri til að passa að vera ekki að gera för í lakkið er að ég set tjöruhreinsir á bílin og nudda hann síðan aldrei, bleyti bara vel í honum og síðan meðan hann er að grassera á bíð ég yfirleitt eina sígó eða dunda mér við að nudda felgurnar með bursta á meðan, síðan fer ég með sápu í háþrýstidælu beint á tjöruhreinsirinn og þegar ég er búin að fara yfir allan bílin með dæluni og hann allur í sápu þá nudda ég han með svampi og skola síðan af honum með hreinu vatni í dæluni, síðan fer ég jú yfir og sé hvort mér hafi yfirsést eitthvað sem er samt nánast ómögulegt þar sem maður er búin að fara mjög vel yfir áður, eftir þetta bóna ég.. tek bílin yfirleitt sona 2 svar í viku sona, og setr fljótandi bón á hann sem er kannski ekki besta en það virðist allltaf vera húð á honum og bíllin er gjörsamlega laus við allt sem heitir nuddför.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/