E36 M3 spurningar

Hér skal spjalla um BMW.

E36 M3 spurningar

Postby Saxi » Wed 15. Feb 2006 22:29

Jæja ég held að ykkur sé að takast að gera mann að BMW kalli.

Ég er búinn að vera að leita mér að frekar léttum bíl með góða aksturseiginleika og örlítið af krafti og held að E36 M3 uppfylli þau skilyrði ágætlega.

Ég hef nú samt nokkrar spurningar svona áður en maður leggur af stað inn í svona dæmi. Til að mynda ætla ég að nota bílinn sem daily driver og væri gaman að vita hvort að þessir bílar séu bilanatíkur. Ég veit að eintökin eru mismunandi en eru einhverjir hlutir sem maður þarf að vera hræddari við en aðrir? Er einhver munur á 3.0 og 3.2 ltr vélunum uppá bilanatíðni að gera?

Svo er ég að spá í hvort maður ætti að fara í convertible. Þá var ég helst að pæla í að næla mér í bíl með hardtop líka. Veit einhver hvernig þessir hardtoppar eru að virka, leka þeir kannski alveg jafn mikið og blæjurnar?

Annað í sambandi við hardtop. Getur maður keypt sér blæjubíl og bætt hardtop við seinna? eða er það kannski of mikið vesen?

Vona að einhver nenni að svara þessari langloku.

Og já ég veit af Google og er búinn að nota það hressilega :)

Þakkir

Saxi
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Postby Svezel » Wed 15. Feb 2006 22:43

Ég veit nú ekki hvaða blæjubílum þú hefur ekið en þeir sem ég hef kynnst hafa alveg haldið vatni og ekki lekið dropa. Hardtop má kaupa seinna en það auðvitað ódýrara að kaupa hann strax með bílnum og minnka flutningskostnað.

3.0 vélin á víst að vera öruggari upp á viðhald að gera og 3.2 á skv. því sem ég hef lesið að vera hætt við bilun í vanos. Ef bílarnir hafa fengið sitt góða vilhald, ekki þandir kaldir, skipt reglulega um olíu og annað í þeim dúr þá veit ég ekki til annars en að þetta séu mjög solid bílar.

Það er nú reyndar ekki hægt að segja að það sé góð reynsla af þessum bílum hér heima ef miðað við reynslu 2 spjallverja af e36 m3...
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Knud » Wed 15. Feb 2006 23:50

Djöfull myndi mér lítast vel á það hjá þér saxi... fá þér alvuru!!!
þetta er einmitt það sama og ég hef verið að velta mikið fyrir mér, reyndar ekki blæju. Sérstaklega 3 lítra.
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Postby Spiderman » Thu 16. Feb 2006 00:41

Alltaf skemmtilegt hvað fólk heldur um blæjur. Ég hef átt 3 blæjubíla og örugglega keyrt 20 bíla og ég ég hef aldrei fundið fyrir eins og einum vatnsdropa, þrátt fyrir að blæjur hafi verið lélegar á ítölskum og breskum bílum fyrir 40 árum síðan þá eru blæjur í dag rock solid og harður toppur í flestum tilfellum óþarfum nema bara uppá stífingu og kúlið :!:
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote: Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual
User avatar
Spiderman
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1117
Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Location: Hafnarfjörður

Postby Saxi » Thu 16. Feb 2006 16:40

Knud wrote:Djöfull myndi mér lítast vel á það hjá þér saxi... fá þér alvuru!!!
þetta er einmitt það sama og ég hef verið að velta mikið fyrir mér, reyndar ekki blæju. Sérstaklega 3 lítra.


Já ætli það hafir ekki bara verið þú sem komst mér á þetta M bragð :wink:


Svo með blæjurnar. Ég þekki blæjubíla nú ekki vel en það er ótrúlega mikið af sögum um að þetta haldi ekki vatni eða vindi. Veit ekki af hverju en mér myndi líða betur að hafa hardtop með. Fyrir svo utan það hversu fallegir þeir eru með svoleiðis.
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Postby siggir » Thu 16. Feb 2006 19:39

Nú líst mér á þig! Gast ekki þolað að ég væri á flottari bíl en þú :roll:
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby Knud » Thu 16. Feb 2006 19:46

Saxi wrote:
Knud wrote:Djöfull myndi mér lítast vel á það hjá þér saxi... fá þér alvuru!!!
þetta er einmitt það sama og ég hef verið að velta mikið fyrir mér, reyndar ekki blæju. Sérstaklega 3 lítra.


Já ætli það hafir ekki bara verið þú sem komst mér á þetta M bragð :wink:


Svo með blæjurnar. Ég þekki blæjubíla nú ekki vel en það er ótrúlega mikið af sögum um að þetta haldi ekki vatni eða vindi. Veit ekki af hverju en mér myndi líða betur að hafa hardtop með. Fyrir svo utan það hversu fallegir þeir eru með svoleiðis.


Haha, no turning back... ;)
ég er nú sjálfur alveg veikur líka, og þá meina ég ALVEG
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Postby ///Matti » Sun 19. Feb 2006 17:51

Viltu ekki bara bjóða í minn :lol:
00 E39 540 M-tech (seldur)
94 E36 M3 Cabrio (seldur)
User avatar
///Matti
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1344
Joined: Fri 17. Oct 2003 18:54
Location: myrk og mannaskít

Postby Saxi » Mon 20. Feb 2006 12:30

///Matti wrote:Viltu ekki bara bjóða í minn :lol:


hehe hversu mörgum kúlum þyrfti maður að ota að þér til að þú myndir velta því fyrir þér? :)


Smá of topic. Þá var ég við hliðina á þér (eða allavega bílnum þínum) í hringtorgi á föstudaginn og gott ef maður missti ekki bara allt það litla kúl sem maður átti eftir við að stara á fegurðina :D Gífurlega fallegur bíll sem þú átt þarna.
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Postby ///Matti » Mon 20. Feb 2006 19:58

hehe hversu mörgum kúlum þyrfti maður að ota að þér til að þú myndir velta því fyrir þér?


Ekki nema einni kúlu og 850 þúsundum :wink: :wink:
00 E39 540 M-tech (seldur)
94 E36 M3 Cabrio (seldur)
User avatar
///Matti
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1344
Joined: Fri 17. Oct 2003 18:54
Location: myrk og mannaskít

Postby arnibjorn » Mon 20. Feb 2006 20:00

Fínt verð maður 8)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby ///Matti » Mon 20. Feb 2006 20:17

Fínt verð maður

Jamm :wink: Hann bíður eftir þér Árni :wink:
00 E39 540 M-tech (seldur)
94 E36 M3 Cabrio (seldur)
User avatar
///Matti
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1344
Joined: Fri 17. Oct 2003 18:54
Location: myrk og mannaskít

Postby arnibjorn » Mon 20. Feb 2006 20:20

///Matti wrote:
Fínt verð maður

Jamm :wink: Hann bíður eftir þér Árni :wink:


hehe úff.. án efa mun ég eignast M3 í framtíðinni en á meðan maður er ennþá í skóla þá hugsa ég að ég láti E30 duga mér 8)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Saxi » Mon 20. Feb 2006 22:47

///Matti wrote:
hehe hversu mörgum kúlum þyrfti maður að ota að þér til að þú myndir velta því fyrir þér?


Ekki nema einni kúlu og 850 þúsundum :wink: :wink:


Hljómar alls ekki galið. Maður hefur þetta kannski bakvið eyrað. Langar samt að fara út til þýskalands og búa til smá road trip úr þessu ævintýri 8)

Saxi
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 34 guests