bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=13835 |
Page 1 of 1 |
Author: | adler [ Mon 06. Feb 2006 21:40 ] |
Post subject: | Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi |
Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi Netleitarfyrirtækið Google greindi frá því í dag að þýsk vefsíða bílaframleiðandans BMW hefði verið fjarlægð úr leitarvél Goole. Ástæðan er sú að BMW beitti brögðum til að láta vefsíðu fyrirtækisins birtast ofarlega á lista leitarvélar Google. Forsvarsmenn BMW neita að hafa haft óhreint mjöl í pokahorninu. Að sögn forsvarsmanna Google voru vinsæl leitarorð að finna í kóða vefsóðu bílaframleiðandans og var þeim að „þakka“ að hún lenti ofarlega á blaði þegar netverjar leituðu bíla eftir ákveðnum leitarorðum. Tilfæringar sem þessar eru brot á ákvæðum Google um leitarorð á vefsíðum fyrirtækja. Notendur leitarvélarinnar gátu hins vegar ekki séð, að leitarorðin áttu ekkert skylt með vefsíðu BMW og leit þeirra þá stundina. Talsmaður BMW í Þýskalandi segist hins vegar vera sannfærður um að síða fyrirtækisins, www.bmw.de, birtist á leitarvél Google innan nokkurra daga. |
Author: | freysi [ Mon 06. Feb 2006 22:05 ] |
Post subject: | |
Þeir fá allravegna umfjöllun og þar með fá þeir umferð á síðuna. Efast um að þeir tapi miklum flettingum af þessu, allravegna ekki í dag ![]() |
Author: | gstuning [ Tue 07. Feb 2006 00:51 ] |
Post subject: | |
ég hef aldrei EVER fengið www.bmw.de sem link þegar ég hef leitað á google, þetta er líklega trick hjá BMW og google að auglýsa hvort annað, |
Author: | Sprangus [ Tue 07. Feb 2006 15:07 ] |
Post subject: | |
Ef þeir ættla að loka á BMW fyrir að gera þetta verða þeir að gera þetta líka við allar hinar síðurnar sem gera þetta ![]() |
Author: | Hemmi [ Tue 07. Feb 2006 17:44 ] |
Post subject: | Re: Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi |
var einmitt að spá afhverju bmw.de kom upp þegar ég sló inn sexy midgets um daginn ![]() |
Author: | Ketill Gauti [ Tue 07. Feb 2006 22:24 ] |
Post subject: | Re: Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi |
Hemmi wrote: var einmitt að spá afhverju bmw.de kom upp þegar ég sló inn sexy midgets um daginn
![]() Sexy midgets ![]() ![]() |
Author: | iar [ Wed 08. Feb 2006 02:04 ] |
Post subject: | Re: Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi |
Ketill Gauti wrote: Hemmi wrote: var einmitt að spá afhverju bmw.de kom upp þegar ég sló inn sexy midgets um daginn ![]() Sexy midgets ![]() ![]() Já og bmw.de poppaði líka upp þegar maður sló inn Emil im lederhosen. Frekar pirrandi... |
Author: | Schnitzerinn [ Wed 08. Feb 2006 08:24 ] |
Post subject: | |
Það er líka búið að hreinsa ALLT útúr kóðanum ![]() Quote: <meta name="KEYWORDS" content="">
<meta name="DESCRIPTION" content=""> |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |