Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi
Netleitarfyrirtækið Google greindi frá því í dag að þýsk vefsíða bílaframleiðandans BMW hefði verið fjarlægð úr leitarvél Goole. Ástæðan er sú að BMW beitti brögðum til að láta vefsíðu fyrirtækisins birtast ofarlega á lista leitarvélar Google. Forsvarsmenn BMW neita að hafa haft óhreint mjöl í pokahorninu.
Að sögn forsvarsmanna Google voru vinsæl leitarorð að finna í kóða vefsóðu bílaframleiðandans og var þeim að „þakka“ að hún lenti ofarlega á blaði þegar netverjar leituðu bíla eftir ákveðnum leitarorðum. Tilfæringar sem þessar eru brot á ákvæðum Google um leitarorð á vefsíðum fyrirtækja. Notendur leitarvélarinnar gátu hins vegar ekki séð, að leitarorðin áttu ekkert skylt með vefsíðu BMW og leit þeirra þá stundina.
Talsmaður BMW í Þýskalandi segist hins vegar vera sannfærður um að síða fyrirtækisins,
www.bmw.de, birtist á leitarvél Google innan nokkurra daga.