Vildi endilega deila þessu með ykkur. Fann þetta í símanum þegar ég var að henda gömlum SMS-um úr símanum.
Nokkrar góðar frá ,,,,,ónefndum..... einstaklingi á spjallinu
Fékk þetta skeyti á árshátíðarkvöldi Kraftsins:
Á gleði kraftsins glaumur er,
gleðina menn þar bera,
matur góður í maga fer,
mér líður þar vel að vera.
Þetta barst á síðastu spurningakeppni:
Spurðir verða spjörum úr,
spakir limir taldir,
iar dæmir í þeim dúr,
þeir dómar honum faldir.
Og að lokum þetta þegar ég hafði skipt um drif á bílnum:
Á þristinum hann þrykkir nú,
þræl-læstur að virka,
þokkalega sáttur þú,
það dugar ekkert cirka.
Hrein snilld allt saman!



