bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bílablað moggans í dag. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=13084 |
Page 1 of 2 |
Author: | Kristjan [ Fri 23. Dec 2005 20:05 ] |
Post subject: | Bílablað moggans í dag. |
Framleiðslu flýtt á Z4 Coupé ![]() BMW hefur ákveðið að flýta framleiðslu á nýja Z4 Coupé sportbílnum og er fyrstu bílanna að vænta á markað þegar í júní á næsta ári. Ekki eru nema rúmir tveir mánuðir síðan Z4 coupé var kynntur sem hugmyndabíll á bílasýningunum í Frankfurt og Tókýó og því ljóst að skammt er milli hugmyndar og veruleika hjá BMW, a.m.k. í þessu tilviki. - - - Þykir BMW hafa tekist afar vel upp við hönnun bílsins og eins er nýja 265 hestafla l6 vélin sögð lofa góðu, en svo að afl hennar geri sem mest fyrir aksturseiginleika bílsins, er hann smíðaður að hluta til úr magnesíum, sem léttir hann umtalsvert. Til að bæta um betur hefur síðan verið ákveðið að hefja einnig framleiðslu á M-útgáfu af bílnum og mun sama 343 hestafla vélin prýða hana og er í BMW E46 M3. Nýju M útgáfunnar af Z4 Coupé er einnig að væntan á Evrópumarkað í júní nk. |
Author: | IceDev [ Fri 23. Dec 2005 20:07 ] |
Post subject: | |
Ég hlakka til að þessi græja lækki í verði og ég geti keypt svona M græju! |
Author: | Djofullinn [ Fri 23. Dec 2005 20:10 ] |
Post subject: | |
Vá 265 hö og örugglega léttari en Roadsterinn ![]() Þennan mun ég kaupa mér eftir nokkur ár! Held að 265 ha gaurinn + blásari sé frekar málið en ///M. Var ekki annars verið að tala um svakalegan verðmun á þeim? |
Author: | fart [ Fri 23. Dec 2005 20:22 ] |
Post subject: | |
C.a. 2x 3.0L fyrir einn M. Tæki samt frekar M bílinn en einhvern 3.0L með blásara, ef ég hefði valið. Eins og einhver sagði.. Fun is not in a straight line. Þannig að ég tæki Full ///M með öllu hans stuffi en moddaðan non M. Kanski að maðu kanni markaðinn fyrir notaðan M-Coupe seinipartinn á næsta ári. |
Author: | gstuning [ Sat 24. Dec 2005 02:18 ] |
Post subject: | |
Ekki eins og að Z4 3.0 höndli illa, að ýminda það er eins og að ýminda sér að BMW hafi ekki verið að þróa neitt í áratugi, 3.0 Z4 með blower er bókað betri eða jafngóður og M Z4 |
Author: | Kristjan [ Sat 24. Dec 2005 02:25 ] |
Post subject: | |
ííííímynda! |
Author: | Djofullinn [ Sat 24. Dec 2005 02:26 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Ekki eins og að Z4 3.0 höndli illa, að ýminda það er eins og að ýminda sér að BMW hafi ekki verið að þróa neitt í áratugi,
3.0 Z4 með blower er bókað betri eða jafngóður og M Z4 + ~150 þús kr fjöðrun + LSD og þú ert kominn með bíl sem er öflugri en ///M-inn fyrir töluvert minni pening |
Author: | MJ [ Sat 24. Dec 2005 02:40 ] |
Post subject: | |
BMW 130i er svaka dæmi ![]() |
Author: | gstuning [ Sat 24. Dec 2005 02:42 ] |
Post subject: | |
Djofullinn wrote: gstuning wrote: Ekki eins og að Z4 3.0 höndli illa, að ýminda það er eins og að ýminda sér að BMW hafi ekki verið að þróa neitt í áratugi, 3.0 Z4 með blower er bókað betri eða jafngóður og M Z4 + ~150 þús kr fjöðrun + LSD og þú ert kominn með bíl sem er öflugri en ///M-inn fyrir töluvert minni pening mmmmm, nei það vantar enn slatta af poweri til að viðhalda hröðun á við M Z4 roadster |
Author: | Kristjan [ Sat 24. Dec 2005 02:44 ] |
Post subject: | |
Ég leyfi mér að ÍMYNDA mér að Z4 M Coupé eigi eftir að hafa meira en 150 þús króna fjöðrunarkerfi fram yfir þann venjulega. Svo finnst mér bara miklu svalara að vera með non blown línu m vélina í húddinu. Gæti allaveganna verið mun rólegri að gefa henni inn, ekki hef ég neina reynslu af því að eiga supercharged vél sem er hönnuð með N/A í huga og því veit maður aldrei hvað gæti gerst. Expect the worst and hope for the best? |
Author: | Djofullinn [ Sat 24. Dec 2005 02:56 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Djofullinn wrote: gstuning wrote: Ekki eins og að Z4 3.0 höndli illa, að ýminda það er eins og að ýminda sér að BMW hafi ekki verið að þróa neitt í áratugi, 3.0 Z4 með blower er bókað betri eða jafngóður og M Z4 + ~150 þús kr fjöðrun + LSD og þú ert kominn með bíl sem er öflugri en ///M-inn fyrir töluvert minni pening mmmmm, nei það vantar enn slatta af poweri til að viðhalda hröðun á við M Z4 roadster |
Author: | Kristjan [ Sat 24. Dec 2005 03:00 ] |
Post subject: | |
Verður M boddyið ekki bara hlaðnara af magnesíum og cf |
Author: | fart [ Sat 24. Dec 2005 09:08 ] |
Post subject: | |
Ég er kanski svona einfaldur, en ég vill frekar fá bílinn fullkomin frá verksmiðju fyrir aðeins meiri pening, en að finna upp hjólið fyrir örlítið minni. Z4 höndlar frábærlega segja menn, þannig að M bíll ætti að verða sjúkur. Þrátt fyrir að 3.0L+Kompressor yrði fleiri hestar (kanski 10+ meira en S54) og 400+nm (40+fleiri en S54) þá myndi ég samt vilja NA powerið frekar. Auk þess er hægt að setja S54 í 380-390hesta fyrir nokkur þúsund Euros. Mér finnst bara svo mikil upplifun að keyra M bíl, vita að maður er með stuff í hönudunum sem var hannað til að gera þetta af sérfræðingum. Vél, kassi, drif, fjöðrun, body.. allt tjúnað til að vinna saman. Það sem vegur kanski þyngst í þessu er að ég er Mechanically disabled þannig að hlutir sem ég get keypt og virka vel henta mér betur en hlutir sem þarf að setja saman eftirá. |
Author: | Logi [ Sat 24. Dec 2005 09:25 ] |
Post subject: | |
Sammála þessu. Z4 M hljómar bara miklu betur en 3,0 kompressor/turbo að öllu leiti ![]() |
Author: | Svezel [ Sat 24. Dec 2005 10:35 ] |
Post subject: | |
///M all the way baby ![]() Að keyra ///M bíl er bara engu líkt og að vita að það var allt hannað og prófað til að fullvissa að allir hlutir funkeri saman er líka mikils virði. Svo er nú meira að segja það að "kaupa fjöðrun" því fjöðrun milli í M bílunum er yfirleitt alveg gjörólík og með allt aðra afstöðu (annar camber, castor o.s.frv.). Stífari dempara og gormar er ekki að redda fjöðrun. Svo þegar þú ert orðinn leiður á aflinu þá ferðu bara að gramsa eitthvað í ///M bílnum vitandi það að þú ert með top of the line grunn. Ég er nú ekki mikið fyrir að bulla eitthvað á netinu en ég gæti alveg trúað því að ég væri kominn á Z4 M-Coupe áður en framleiðslu líkur ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |