Page 1 of 3

Innbrot í Bimmann minn!

PostPosted: Fri 18. Apr 2003 19:09
by Heizzi
Ekki byrjar það vel hjá mér. Núna á miðvikudaginn var ég verzla mér fyrsta Bimmann og þegar ég kem að honum um 4 leytið í dag þá er búið að brjóta rúðuna og stela radarvaranum :x
Ekkert smá svekktur af því að ég var nýbúinn að setja hann í, það er í segja í gær, fimmtudag.

Það er greinilegt að þessir hottintottar svífast einskis. Og ekki var þetta nú neitt merkilegur radarvari, ég borgaði 15.000 kall fyrir hann fyrir tveimur árum síðan.
Ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að honum yrði stolið úr gamla Sunny-inum...

En öðrum nótum, fæ ég rúðuna í Bílanaust eða þarf ég að kaupa þetta af umboðinu...?

PostPosted: Fri 18. Apr 2003 19:26
by Elli Valur
þú færð rúðuna allveg örugglega hjá bílstart bara hryngja og spyrja eða fara þangað hann er oft á kvöldinn þarna

PostPosted: Fri 18. Apr 2003 19:36
by bjahja
Það er greinilega einhver faraldur í gangi, því Gr33n svokallaður (hugi.is/bilar) Hans radarvara og geisladiskum var stolið í nótt.
En ég samhryggist en til hamingju með bílinn.

PostPosted: Sat 19. Apr 2003 14:04
by Allan E36
held að bmw merkið hafi skipt máli þarna
hugsun hjá þjófi: hm radarvari úr bmw hlýtur að vera dýrt tæki
bara smá grín vertu feginn að öllum bílunum var ekki stolið

PostPosted: Sat 19. Apr 2003 19:05
by Bjarki
Ef þú þarft nýja rúðu þá selur Orkan sömu rúður og eru í BMW nema ekki með BMW merkinu en eitthvað eru þær víst ódýrari.

PostPosted: Sat 19. Apr 2003 21:04
by ///MR HUNG
Hvaða rúðu vantar þig, ég á eitthvað til af þessu.

PostPosted: Sun 20. Apr 2003 00:50
by Heizzi
328 touring wrote:Hvaða rúðu vantar þig, ég á eitthvað til af þessu.


Mig vantar rúðuna frammí bílstjóramegin, er þetta þá orginal BMW, notað geri ég ráð fyrir?
Og hvað myndi svoleiðis kosta hjá þér?

PostPosted: Sun 20. Apr 2003 14:42
by morgvin
Afhverju geta þessir innbrots þjófar ekki brotið framrúðuna og rifið hana úr, minna tap fyrir eyganda bílsins þar sem hún er oftast tryggð.

PostPosted: Sun 20. Apr 2003 14:44
by Haffi
Meira vesen? :> Annars ætti að vera auðveldast að stinga sílsinn út og opnann þannig.

PostPosted: Sun 20. Apr 2003 14:59
by morgvin
En svo er það náttúru lega þannig að þetta fólk er útúr dópað og getur ekki hugsað skýrt.

PostPosted: Sun 20. Apr 2003 16:28
by Atli Camaro
Þakkið nú bara fyrir að þeir fara ekki inn um framrúðuna því þá myndu þeir líklega traðka á húddinu og brettinu á leiðinni inn.

Annars er þetta pakk alveg nautheimskt.Það var brotist inn í bíl sem ég átti.Það var ÞRIGGJA dyra bíll og þeir brutu hliðar rúðu að aftan og brölti þaðan inn í bílinn!!!Talandi um heimsku,hefði verið mun þægilegra að brjóta hliðarúðu að framan og opna bara hurðina innanfrá,en nei þeim fannst betra að skríða inn að aftan :roll: FÍFL :!:

PostPosted: Sun 20. Apr 2003 17:41
by Haffi
En þegar það var brotin rúða í bílnum hjá vini mínum þegar bíllinn var ÓLÆSTUR!!!!!

PostPosted: Mon 21. Apr 2003 00:34
by Heizzi
Haffi wrote:En þegar það var brotin rúða í bílnum hjá vini mínum þegar bíllinn var ÓLÆSTUR!!!!!


HA HA HA HA :lol: Þetta eru svo endalaust miklir fávitar. Helvítis dópdrulluhausar!

PostPosted: Tue 22. Apr 2003 18:00
by Vargur
Atli Camaro wrote:Þakkið nú bara fyrir að þeir fara ekki inn um framrúðuna því þá myndu þeir líklega traðka á húddinu og brettinu á leiðinni inn.

Annars er þetta pakk alveg nautheimskt.Það var brotist inn í bíl sem ég átti.Það var ÞRIGGJA dyra bíll og þeir brutu hliðar rúðu að aftan og brölti þaðan inn í bílinn!!!Talandi um heimsku,hefði verið mun þægilegra að brjóta hliðarúðu að framan og opna bara hurðina innanfrá,en nei þeim fannst betra að skríða inn að aftan :roll: FÍFL :!:



ég er ekki vanur þjófur, en ætli það sé ekki betra að sitja í sætinu ef það er ekki fullt af glerbrotum. :wink:

PostPosted: Tue 22. Apr 2003 18:12
by Heizzi
Vitiði ekki um neina svona BMW partasölu fyrir utan Bílstart :?:
Hann á þetta ekki í Bílstart, Orkan er bara með framrúðurnar sem og öll hin bílrúðuísetningarfyrirtækin þannig að ég er farinn að sjá fram á að þurfa að kaupa þetta af umboðinu á morðfjár (13.000) og það sem meira er þá eiga þeir þetta ekki einu sinni til, þurfa að panta hana sérstaklega og það tekur viku. :(
Gæti ég sparað eitthvað með því að panta þetta sjálfur og hvaðan þá :?: