Page 1 of 2
Eyðsla á 325i bsk árg. 94

Posted:
Fri 02. Dec 2005 14:19
by Hallipals
Sælir kraftsmenn! Ég var að velta eyðsluni á svona bíl fyrir mér því að ég er með svona bíl og tölvan í bílnum segir að hann sé að eyða frá 15-17 l á hundraði í mjög venjulegum akstri fer jafnvel í 18 ef maður þyngir bensínfótinn. En ég hefði haldið að þessir bílar ættu að vera að eyða í kringum 12 -14 lítrum en bíllinn minn er ekki ekinn mikið meðal við aldur (175000 km). Ég hef ekki mælt bílinn sjálfur en er séns að tölvan í bílnum sé röng eða er þetta bara eðlileg eyðsla? Hvað eru menn sem að eiga svona bíla að eyða á honum?
kv.Halli

Posted:
Fri 02. Dec 2005 14:45
by arnibjorn
já það væri gaman hvað menn segja... Ég á einmitt eins bíl og þú og næstum því nákvæmlega jafn mikinn keyrðan og það væri ágætt að heyra hvað þessir bílar eru að eyða. Eitthvað vesen í rafmagninu hjá mér þannig að tölvan virkar ekki í augnablikinu


Posted:
Fri 02. Dec 2005 15:35
by SER
Minn 325i E36 '94 beinskiptur er að eyða á milli 12 og 13 innanbæjar þá miðað við svoldið þungan bensínfót, ég er reyndar staddur í Danmörku en það ætti ekki að skipta öllu oft á tíðum kalt hérna líka. Þetta eru tölur sem að ég hef mælt sjálfur.

Posted:
Fri 02. Dec 2005 15:42
by HPH
ég trúi bara ekki að M50 mótorinn er að eiða meira en M20. Ég er á 325 87árg. og ég er að eiða í kringum 12-14/100km og ekki er ég með léttan blýfót. búinn að mæla hann tvisvar sinnum.

Posted:
Fri 02. Dec 2005 15:59
by moog
Minn 325i bsk. er að eyða eitthvað í kringum 12-13 lítra í innanbæjarakstri og er það með þungum bensínfót (virðist vera syndrom meðal 325i eigenda

)
En í langkeyrslu er hann að fara niður í 8 lítra hjá mér.

Posted:
Fri 02. Dec 2005 17:31
by Jón Ragnar
Minn E30 325ix fer nú í 25l+ í mesta kuldanum
En ég er með GÍFURLEGA þungan bensínfót


Posted:
Fri 02. Dec 2005 18:08
by Hallipals
Já það er greinilegt að ég þarf að fara að láta kíkja á minn bíl með þessa eyðslu. Ætli maður prófi ekki að mæla hann og ef að tölvan stennst þá þarf ég að láta kíkja á þetta því að þetta er greinilega ekki normal eyðsla. En hvað getur verið að? Ég veit að það er búið að taka hvarfakútinn undan hjá mér en það ætti náttúrlega bara að minnka eyðslu ekki rétt? Ég fór reyndar einusinni með bílinn í mengunarmælingu og þá kom í ljós að bíllin er að menga frekar mikið, getur það verið orsökin?
kv.Halli

Posted:
Fri 02. Dec 2005 18:22
by Vargur
Prófaðu að skipta um kertin, það var mín reynsla þegar ég átti svona bíl að þegar eyðslan fór upp þá voru það kertin.
Keyptu góð kerti.

Posted:
Fri 02. Dec 2005 18:23
by Duce
´92 325i
MAX 12 L/100 innanbæjar en ég keyri frekar rólega
btw ég er rosalega sáttur við eyðsluna
þó svo ég sé í þyngstu skónum mínum ...

Posted:
Fri 02. Dec 2005 18:35
by flamatron
Ég náði einusinni mínum 325i niður í 10L/100km, þá var líka keyrt eins og amma.

Posted:
Fri 02. Dec 2005 19:16
by Friðrik
Hvernig er það ertu búinn að vélastilla hann, ef ekki þá hefur það mikið að gera með eyðsluna að ég best veit.

Posted:
Fri 02. Dec 2005 19:28
by Hallipals
Nei ég er ekki búinn að láta vélastilla bílinn en ég þarf að láta gera það núna á næstu vikum. Ég ætla að byrja á því að skipta um kerti og sjá hvað bíllinn gerir eftir það. Hvaða kertum mæliði annars með?
kv.Halli

Posted:
Fri 02. Dec 2005 19:33
by pallorri
ekki vax kertum allaveganna

Posted:
Fri 02. Dec 2005 21:00
by IceDev
DING DING DING
Ath.... VONDUBRANDARAMÚRINN FALLINN!!

Posted:
Fri 02. Dec 2005 21:52
by Chrome
Hallipals wrote:Nei ég er ekki búinn að láta vélastilla bílinn en ég þarf að láta gera það núna á næstu vikum. Ég ætla að byrja á því að skipta um kerti og sjá hvað bíllinn gerir eftir það. Hvaða kertum mæliði annars með?
kv.Halli
Mín reynsla er sú að NGK virðist vera að virka einna skemmtilegast í BMW

það er allavega algengasta gerðin sem menn versla í þá hjá Bílanaust