bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Porsche spurning!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1273
Page 1 of 1

Author:  bebecar [ Wed 16. Apr 2003 23:31 ]
Post subject:  Porsche spurning!

Veit einhver ykkar hvort Porsche 911 Cabriolet er 4 sæta eða tveggja sæta?

Ég er búin að leita út um allt og ég get hvergi séð upplýsingar um þetta!

Author:  Logi [ Wed 16. Apr 2003 23:37 ]
Post subject: 

Örugglega bara 2 sæta, ég er þó ekki alveg viss. Ég hef einu sinni setið afturí 911, með þaki, og það var sko lítið pláss þar. Get ekki ímyndað mér að það sé pláss fyrir sæti afturí cabriolet!

Author:  bebecar [ Wed 16. Apr 2003 23:41 ]
Post subject: 

Nei, það er einmitt það sem ég held....

En var minna pláss en aftan í E21 t.d.? Og þá miklu minna?

Ég var bara að spá hve lengi dóttir mín kemst fyrir aftur í :wink:

Author:  Logi [ Wed 16. Apr 2003 23:46 ]
Post subject: 

:shock: E21 er nú bara spacewagon við hliðina á 911! En það fer nú líklegast ágætlega um krakka upp að ca 10 ára aldri afturí 911.

Author:  bebecar [ Wed 16. Apr 2003 23:49 ]
Post subject: 

Ætli maður verði ekki að eiga tvo..... fór ílla um þig aftan í honum eða var það þolanlegt í einhvern tíma?

Author:  Logi [ Wed 16. Apr 2003 23:51 ]
Post subject: 

:D Það var náttúrulega svo gaman að ég þoldi það alveg :D Annars eru orðin tæp 8 ár síðan þetta var, þannig að ég man það nú kannski ekki alveg!

Author:  morgvin [ Thu 17. Apr 2003 04:35 ]
Post subject: 

Ég myndi nú varla kalla þetta sæti aftur í 911 meira í áttina að glasa haldara eða eitthvað þannig.

Author:  bjahja [ Thu 17. Apr 2003 13:39 ]
Post subject: 

Ertu að spá í að gerast fjölskyldu maður á Porsche 911 :D
En nýr er allavegana með 4 sætum:
Image
Ég efast samt um að þú ætlir að skella þér á nýjan en ég finn enga mynd þar sem það sést á eldri bíl.
Sjáiði það á þessari?
Image

Author:  Jói [ Thu 17. Apr 2003 15:07 ]
Post subject:  Re: Porsche spurning!

bebecar wrote:
Veit einhver ykkar hvort Porsche 911 Cabriolet er 4 sæta eða tveggja sæta?

Ég er búin að leita út um allt og ég get hvergi séð upplýsingar um þetta!


Þú kemur mér alltaf á óvart! Nýkominn með barn númer tvö og ert þá byrjaður að spá í Porsche 911 Cabrio. Talandi um bílaáhugamann!

Allaveganna, það vill svo til að það er hérna fyrir utan hjá mér, í Svíþjóð, Porsche 911 blæjubíll, ca. '83. Kannski ég reyni að hitta á hann og spjalla við hann, fæ hann kannski til að taka mig á rúntinn. :wink: Ég leit vel inn í hann núna rétt áðan. Plássið að aftan virðist sama og ekkert. Það er sama hvaða árgerð, plássið að aftan er bara brandari. Síðan þegar blæjan fer niður þá minnkar plássið enn þá meira aftur í.

Hvers vegna hélstu annars að þú hafðir ekki séð neina mynd af 911 Cabrio aftur í?

Hvers vegna verður þetta að vera cabrio? Hvers vegna ekki targa? Ertu að tala um ákveðinn bíl eða bara almennt? Hvaða árgerð? Ca. verð?

Author:  bebecar [ Fri 18. Apr 2003 20:38 ]
Post subject: 

Þetta var nú eiginlega meira vegna forvitni.

ÉG vil helst bara bone stock. Alls ekki Targa :wink:

EN endilega taktu hann tali...

PS, nokkuð flottur þessi guli.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/