bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

CB á bmwkraft???
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1265
Page 1 of 1

Author:  Allan E36 [ Tue 15. Apr 2003 16:41 ]
Post subject:  CB á bmwkraft???

Ég var að spjalla við þórð um daginn og okkur fannst það báðum góð hugmynd að meðlimir klúbbsins hefðu CB talstöðvar í bílum hjá sér
þetta er náttla bar hugmynd á frum stigi en það eru örfáir plúsar
t.d
engin peninga eyðsla útá gsm síma notkun á milli félaga á rúntinum
hægt að vara við löggunni ef að hún er á ferð
og örruglega margt fleira sem að ég man ekki núna

Það skemmtilega er að hann þórður er að selja svona talstöðvar og hefur það líka verið í umræðunni hjá okkur að reyna að fá afslátt hjá umboðsverkstæði bmw á Akureyri fyrir þá sem eu hér norðan heiða

en ég held að það væri meira í verkahring stjórnenda að skoða þau mál jafnvel þótt að við gætum gert það líka, væri mjög hentugt ef að eitthvað bilaði á bíladögum hérna fyrir norðan endilega tjáið ykkur um málið væri gaman að sjá hvað ykkur finnst :wink:

Author:  Heizzi [ Tue 15. Apr 2003 17:05 ]
Post subject: 

Það gæti verið stemmning í þessu :)

Author:  oskard [ Tue 15. Apr 2003 17:20 ]
Post subject: 

ekkert sem heillar mig :roll:

Author:  gstuning [ Tue 15. Apr 2003 17:44 ]
Post subject: 

Ég væri til í að hafa svona littlar á leiðinni norður, það væri mjög þægilegt,
þá gæti einn(Gunni/Sæmi) stýrt akstrinum á mönnum norður,
Þannig helst hópurinn og ekkert kostar að vera hringja og allir geta heyrt í einu, og spjallað í einu.

En dagsdaglega held ég að þetta sé ekki eitthvað sem þarf að hafa,


Einnig þegar eru hóprúntar þá er fínt að hafa svona ef við erum að fara til Selfoss eða eitthvað svoleiðis,

Author:  rutur325i [ Tue 15. Apr 2003 19:02 ]
Post subject: 

mér finnst þetta að ég verð að segja frekar tilgangslaust nema kannski eins og gunni segir á leiðinni norður , en ekki dagsdaglega

Author:  Gunni [ Tue 15. Apr 2003 20:04 ]
Post subject: 

það væri sniðugt að eiga svona uppá hóprúntanir. ég held að BT sé að selja svona á einhvern 10þús kall parið (2 stk). ef einhver hefur sambönd má hann endilega reyna að cutta díl á svona talstöðvum svo við getum allir verið í bandi á leiðinni. ég kaupi allavega eina ef menn eru til í þetta.

varðandi afslátt hjá verkstæðinu fyrir norðan hafiði þá endilega samband við mig (annar hvor). ég er alveg til í að reyna að möndla eikkvað. Ég heiti gunnar og það er hægt að ná í mig í s. 8222244 og email gunni@bmwkraftur.com

Kveðja, Gunni

Author:  morgvin [ Wed 16. Apr 2003 17:53 ]
Post subject: 

Þetta hljómar bæði vel og illa.

Vel - jú eins og þið voruð að segja þá er þetta hentugt til að stýra hóprúntum og fleira í þá áttina.

Illa - Eruði farnir að horfa á fast and the furious oftar en einu sinni á lífstíð ?

Author:  Allan E36 [ Wed 16. Apr 2003 20:05 ]
Post subject: 

nei bara datt þetta svona í hug
reyndar var hóprúntar aðal hugmyndin á bak við þetta + viðvörun á löggunni (sem að er svoldið fast and........)

Author:  morgvin [ Thu 17. Apr 2003 04:39 ]
Post subject: 

Einmitt ástæðan sem ég sagði þetta.

Author:  Haffi [ Thu 17. Apr 2003 16:07 ]
Post subject: 

Ein spurning: Afhverju í fjandanum viðvörun á löggunni?? Ekki eins og við séum að hóprúnta á einhverjum ólöglegum hraða! Og á leiðinni norður ætla ég halda prófinu svo ég komist heim á mínum eigin bíl en ekki einhverri rútu!

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/