Mér brá heldur mikið í gærnótt þegar ég ákvað að mæla loftþrýstingin á dekkjunum hjá mér - búinn að taka eftir því að hann var óvenju hastur á hraðahindrunum. Það var 60psi í framdekkjunum (VOWW) og 55psi í afturdekkjunum
Ég var bara heppinn að sprengja þau ekki eða að dekkin færu af felgunni.
Hvað er svona mælt með miklum þrýstingi í frekar venjulegum dekkjum??? Er ekki c.a svona 30-35psi fínt
Ég var nýbúinn að fá svona G-tech mæli lánaðan og fór út á kvartmílubraut til að mæla hann. Stoppaði bara fyrst og pumpaði ''smá'' of mikið í dekkin til að ætla ná betri tíma
Hefði átt að gruna þetta fyrr þar sem bíllinn spólaði léttilega út fyrsta gír ef ég tók spólvörnina áður, en hann hefur aldrei gert það áður þ.e.a.s spólað meira en í svona 30km/klst