bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW kaup -eru kunnáttumenn hérna? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=12447 |
Page 1 of 3 |
Author: | BMW BUYER [ Thu 10. Nov 2005 22:33 ] |
Post subject: | BMW kaup -eru kunnáttumenn hérna? |
Sælir BMWverjar, Ungur vinnufélagi minn benti mér á þessa síðu og að hér væri allt að finna um bíla og öllu því tengdu. Ég hef verið búsettur erlendis s.l. 6 ár og þ.a.l. ekki keypt mér bíl á Íslandi þennan tíma, sölurnar hafa heldur betur breyst og nú eru allt horfið úr Skeifunni/Hlíðarenda/Borgartúni og tvö risa bílasöluplön á Kletthálsi og upp á Höfða sem er að sjálfsögðu gott mál. Ég hef verið að leita mér að BMW 316I /318I /320I ´99-´02 árg. undanfarnar vikur og skoðað sitthvað á bílasölunum. 1996 og 97 var bílasala sem sem hét Bílar & List og flutti inn Bimma og Benza í gríð og erg með niðurskrúfaða km mæla, en er farið á hausinn í dag. Er það til í dæminu að stafrænir km mælar séu skrúfaðir niður í dag á innfluttum notuðum bílum? Eru einhverjar bílasölur á markaðnum sem maður ætti hreinlega að forðast? Er einhver hérna sem hefur góða þekkingu á BMW eins og ég er að leita? Bimmar keyrðir c.a. 80-120 þús, er eitthvað sem klikkar alltaf í þessum bílum á því líftímabili? Hver er munurinn á 316I með 1900 vél og 318I með 1900 vél?? Er þessir bílar með e-ð spes bilanarecord á ákv. componentum? Ef einhver er með doctorsgráðu í BMW 3-línan árg ´99-´02 mætti hann ef hann hefur tíma ausa af visku sinni á þennan þráð um bilanagjarna hluti, body, vél, allt. Maður er svona frekar skeptískur þegar maður heyrir sölumenn segja "algjör gullmoli þetta eintak", "lág bilanatíðni" ogfl ogfl Annars góð síða í gangi hérna kv BMW buyer |
Author: | gstuning [ Thu 10. Nov 2005 22:58 ] |
Post subject: | |
Ertu að leita að bíl á íslandi til að eiga á íslandi eða versla til að nota erlendis? Ég myndi halda að versla erlendis frá væri auðveldast þá geturðu valið hvað þú vilt og hvað þú vilt ekki, Svo er evran mjög hagstæð núna, held að hún hafi ekki verið hagstæðari hvað þá dollarinn. |
Author: | karlbark [ Fri 11. Nov 2005 00:54 ] |
Post subject: | |
Farðu inn á http://begbilguiden.bilprovningen.se/ og flettu upp þeim bíl sem þú ert að spá í. Þar færðu meðaltalsniðurstöður úr árlegum skoðunum á öllum bílum í Svíþjóð. Þar geturðu séð hvaða atriði hefur oftast verið sett út á, etc.. Einnig umtal um bílinn, staðalbúnað, hvernig hann hafi komið út úr árekstrarprófum, meðaltal FOLKSAM (hvernig bíllinn hefur komið út úr raunverulegum árekstrum ár hvert), ofl. ofl. Ég prófaði að fletta upp 318i og það sem hafði oftast verið sett út á í skoðunum voru spindlarnir. |
Author: | Eggert [ Fri 11. Nov 2005 01:26 ] |
Post subject: | |
....og þegar þú ert búinn að ákveða þig 100% hvað þú vilt, og ef þú ert með staðgreiðslu, þá talarðu við Smára eða einhvern af þessum innflutningsdúddum og lætur flytja inn þrist fyrir þig með pottþétta bók og 100% réttan akstur. Þarft ekki að borga meira fyrir 5 ára gamlan bíl úti afþví að hann er með leðri eða lúgu, en mér finnst það einmitt tíðkast hérna. Það tíðkast alveg að digital mælarnir séu niðurskrúfaðir, en held það sé lítið um það hérna. Það eina sem ég get sagt þér varðandi svona þrist er að ekki fá þér 4ra cylindra bíl. Fáðu þér bíl með 2.0l sexu. Það er ekki einungis sama/svipuð eyðsla, heldur seljast þeir betur. Það eru tveir tollflokkar, svo allt sem er 2.0 og undir er ódýrara í innflutningi. |
Author: | Bjössi [ Fri 11. Nov 2005 13:56 ] |
Post subject: | |
svo geturðu líka bara farið á bílasölur hér heima og fundið bílinn sem þig langar í því það eru til 318 e46 í bunkum hérna. ef þú vilt vera öruggur um hvort að km mælirinn sé skrúfaður eða ekki þá er hægt að láta lesa tölvuna eða eitthvað þannig sjálfur átti ég 318i í ca. 10 mánuði og var mjög sáttur, eyddi litlu, komst allt sem ég þurfti að fara þó ég væri heilan vetur á heilsársdekkjum og það eina sem ég þurfti að gera við hann var að skipta um perur í framljósunum persónulega myndi ég velja 320i eða 2002 árgerð af 318i því að þeir eru með öflugri vélar |
Author: | íbbi_ [ Fri 11. Nov 2005 18:52 ] |
Post subject: | |
já, ég reynsluók 316 coupe, e46 um daginn og guð minn almáttugur... þetta er eflaust einn af þeim alra allra máttlausustu bílum sem ég hef nokkurntíman keyrt, ótrúlegt að þeir hafi látið þetta frá sér sona, annars var bíllin sem slíkur æðislegur.. nema að jú það þurfti liggurvið að ýta í hann til að hjálpa af stað og láta farþegana út í brekkum, myndi reyna að finna 320 bíl, þeir eru orðnir 6cyl og það er bara einhvernvegin allt annað að vera á 6cyl+ bimmum ![]() |
Author: | bebecar [ Fri 11. Nov 2005 19:01 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: já, ég reynsluók 316 coupe, e46 um daginn og guð minn almáttugur... þetta er eflaust einn af þeim alra allra máttlausustu bílum sem ég hef nokkurntíman keyrt, ótrúlegt að þeir hafi látið þetta frá sér sona, annars var bíllin sem slíkur æðislegur.. nema að jú það þurfti liggurvið að ýta í hann til að hjálpa af stað og láta farþegana út í brekkum,
myndi reyna að finna 320 bíl, þeir eru orðnir 6cyl og það er bara einhvernvegin allt annað að vera á 6cyl+ bimmum ![]() Það er nú líka bara hallærislegt að bjóða uppá 316 COUPÉ ![]() ![]() |
Author: | Day [ Fri 11. Nov 2005 20:45 ] |
Post subject: | |
BMW BUYER kíktu á spjallpóstinn þinn.. |
Author: | Hannsi [ Fri 11. Nov 2005 20:46 ] |
Post subject: | |
Það ætti ekki að vera til 4cyl BMW ![]() |
Author: | Bjössi [ Fri 11. Nov 2005 22:11 ] |
Post subject: | |
316i wrote: Það ætti ekki að vera til 4cyl BMW
![]() eru þeir ekki bara til þess að koma mönnum á bragðið |
Author: | basten [ Fri 11. Nov 2005 23:00 ] |
Post subject: | |
Bjössi wrote: 316i wrote: Það ætti ekki að vera til 4cyl BMW ![]() eru þeir ekki bara til þess að koma mönnum á bragðið Góður! ![]() Besta skýringin sem ég hef heyrt hingað til varðandi 4 cyl BMW ![]() |
Author: | Hannsi [ Sat 12. Nov 2005 04:39 ] |
Post subject: | |
basten wrote: Bjössi wrote: 316i wrote: Það ætti ekki að vera til 4cyl BMW ![]() eru þeir ekki bara til þess að koma mönnum á bragðið Góður! ![]() Besta skýringin sem ég hef heyrt hingað til varðandi 4 cyl BMW ![]() sú eina sem ég hef heyrt!! átti 316 bíl og shit hvað það var grútmátlaust ![]() ![]() |
Author: | Svezel [ Sat 12. Nov 2005 09:37 ] |
Post subject: | |
e30 m3 er 4cyl ![]() |
Author: | BMW BUYER [ Sat 12. Nov 2005 14:55 ] |
Post subject: | |
Þessi svör sem ég hef fengið hér eru mun betri og skýrari en á bílasölunum. Svar við spurningu hér að ofan; 1. Ég er að leita að BMW til að nota hér heima. Spurningar til ykkar; Er ódýrara að flytja bílinn inn sjálfur en að kaupa hann hér? Hverjir eru aðal innflutningsaðilar á notuðum BMW hér á Íslandi (og traustir!!)? Hvað segir E46 mér? Passar þetta í öllum tilvikum; 316/318 = 4 cyl 320 + = 6 cyl Ég reynsluók BMW 320 árg2003 hjá B & L í vikunni (er á planinu hjá þeim silfurgr. ásett 2.290.000. ek 45þ) og hann var með steptronic skiptingu, hvenær byrjaði 3 línan að koma með steptronic skiptingu? -sjúkt að aka þessum bíl nema hvað ætla ekki alveg að fara upp í þennan verðflokk! kv. |
Author: | Svezel [ Sat 12. Nov 2005 15:03 ] |
Post subject: | |
það er frekar misjafnt hvort það er ódýrara að flytja inn eða ekki en það er auðveldara að finna það sem þú ert að leita að erlendis frá. Smári Hamborg smarihamburg@hotmail.com (0049-170-311-0600) og Georg í Úranus ( http://www.uranus.is/ ) hafa þótt góðir í innflutningi E46 er boddynúmerið, sjá http://www.s-m-u.com/bmwkraftur/E_num.html 316 og 318 eru 4cyl sem og 320d en rest er 6cyl þristarnir koma steptronic með komi e46, þ.e. 1998 |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |